Úrval - 01.10.1963, Side 106
118
endurbygging Vestur-Þýzkalands
og efnahagsleg viðreisn hófst á
árunum eftir striSið, en slikt
hafði í för með sér betri lífs-
kjör, jókst fjöldi tilfella krans-
æðásjúkdóma stórlega.
I vissum löndum, svo sem
Portúgal, Spáni, Indlandi og
ýmsum Austurlöndum, en þar
býr fólk við léleg lífskjör, neytir
fólk mjög litillar dýrafitu, í
sumum tilfellum engrar. í stað
hennar koma olíur og feiti úr
jurtarikinu.
í löndum þessum er miklu
minna um kransæðasjúkdóma en
í Bandaríkjunum eða mörgum
löndum Vestur-Evrópu. Þegar
Japanir flytja frá heimalandi
sínu til Hawaieyja eða Kaliforn-
íu og um leið til betri lífskjara,
eykst cholesterolmagn blóðs
þeirra, og um leið verður þeim
augsýnilega hættara við að fá
kransæðakölkun.
Líkskoðun lierlækna .Banda-
ríkjahers á hermönnum, er féllu
í bardögum í Kóreustyrjöldinni,
leiddi i ljós, að um var að ræða
kransæðakölkun margra þeirra,
er skoðaðir voru. Aldur her-
mannanna var frá 18-42 ára,
en meðalaldur 22 ár. Almennt
er álitið, að æðakölkunar gæti
eingöngu meðal roskins og gam-
als fólks, en svo er þó ekki. Hiin
kemur fram hjá öllum aldurs-
flokkum.
ÚR VAL
Hættur, sem mönnum stafa uf
mutaræðinu.
Ýmsar sannanir, sem komið
hafa fram, virðast tengja áhrif
af mettuðum dýrafitutegundum
og cholesteroli í fæðu manna
við hina miklu aukningu krans-
æðasjúkdóma. Vegna þessarar
niðurstöðu ætti að hafa það
hugfast, hversu þýðingarmikið
það er að minnka neyzlu fæðu-
tegunda, sem innihalda þessi
efni.
Fitur, sem eru i föstu ástandi
við herbergishitastig, eru yfir-
leitt mjög mettaðar, en fitur,
sem eru í fljótandi ástandi við
sama hitastig, eru yfirleitt ó-
mettaðar. Kókóshnetuolía er þó
undantekning frá þessari reglu,
þar sem hún er mjög mikið
mettuð.
Fitutegundum í fæðu úr nátt-
úrunnar ríki er skipt í þrjá
hópa: mettaðar, ein-ómettaðar
og fjöl-ómettaðar, og fer sú
skipting eftir fjölda auka vatns-
efnisfrumeindanna í sambandi
við fitusýru fitunnar. Mettaðar
fitur auka cholesterolfram-
leiðslu líkamans. Ein-ómettaðar
fitur (sem eru fyrir hendi í
olífuolíu) auka ekki cholester-
olmagn blóðsins. Fjöl-ómettaðar
fitur, sem eru fyrir hendi í
korni, baðmullarfræjum og fiski-
olíum, draga úr cholesterolmagn-
inu með því að hjálpa líkam-