Úrval - 01.08.1968, Blaðsíða 7
Dcilir þessa lands eru helmingis til hærri í lofti ofar sjávarmáli
en tindar Orœfajökuls og finnst þeim sem þangað koma
óviðbúnir, að þeir nái ekki andanum. Verður þeim illt, svo
að allt snýst fyrir þeim, geta varla lireyft legg né lið, en þetta
lagast smátt og smátt, en þó aldrei að fullu. Litir eru þama
skærir og tærir, og fjall, sem kann að vera í fjölmargra kílómetra
fjarlægð, sýnist munu vera snertanlegt með hendi, eða
krakanlegt með hrífuskafti. Og er svo sagt að sá sem ekki hefur
komið til Tíbet, hann hafi ekki séð allt það af linetti þessum,
sem vert er að sjá.
Smáþættir um Tíbet
Eftir MÁLFRÍÐI EINARSDÓTTUR
IIUOT /1 í TÍBET er himinninn
HlllnfVW ekki Már eins og hér,
heldur dimmblár, nærri
svartur, og það veldur
því, hve fátt ber á milli.
Dalir þessa lands eru helmings til
hærri í lofti ofar sjávarmáli en tind-
ar Öræfajökuls, og finnst þeim sem
þangað koma óviðbúnir, að þeir nái
ekki andanum. Verður þeim illt, svo
að allt snýst fyrir þeim, geta varla
hrcvft legg né lið, en þetta lagast
smátt og smátt, en þó aldrei að fullu.
Litir eru þarna skærir og tærir, og
fjall, sem kann að vera í fjölmargra
kílómetra fjarlægð, sýnist munu
vera snertanlegt með hendi, eða
krakanlegt með hrífuskafti. Og er
svo sagt að sá sem ekki hefur komið
til Tíbet, hann hafi ekki séð allt
það af hnetti þessum, sem vert er
að sjá.
En þangað hefur enginn komið.
Enginn af íslandi, enginn af Norð-
urlöndum, fáeinir af Bretlandseyj-
um, og helzt í ófriðarerindum að
boði yfirmanna sinna, fáeinir menn
af Indlandi (og ætla alveg að sálast
þar), en allmargir Kínverjar að boða
trú, (Og taka land af íbúum þess
og set.ia landslög, setja varðlið við
vegi og gatnamót, brosa framan í
alla, drepa enga lús, því verið gæti
að lús væri langamma manns, ill eða
lítilfjörleg, endurborin, samkvæmt
trú Tíbets, stela engu frá neinum,
svelta heldur, o.s.frv., samkvæmt
því sem Kínverjar segja sjálfir, en
Dalai lama, sem flýði til Indlands,
5