Úrval - 01.08.1968, Blaðsíða 104
Eigum við, er iiið verðum miðaldra að líta yfir jarinn veq, taka
þá að hlífa okkur eða örvænta? Alls eklci, segja sálfræðingamir.
Miður aldur er sennilega „bezti liluti ævinnar'.
Misskilningur um
miðaldra fólk
Áhugi þjóðfélagsfræð-
inga á þeim hluta
mannsævinnar, sem
nefndur er miður ald-
ur, hefur aukizt mjög
hin síðari ár, en mikill misskilning-
ur ríkir um eðli þessa æviskeiðs.
Fólk á aldrinum 40 til 60 ára er
um fjórðungur bandarísku þjóðar-
innar. Það vinnur fyrir meira en
helming af tekjum einstaklinga og
völd þess eru töluverð. „Það er þetta
fólk, sem tekur ákvarðanir og
stjórnar,“ segir Bernice L. Neugart-
en, sem er prófessor við þá deild
Chicago háskóla, er fjallar um þró-
un og þroska mannsins.
Þróun læknavísindanna hefur
valdið því að sá hluti mannsævinn-
ar, sem nefndur er miður aldur, hef-
ur sífellt lengzt. Nú orðið köllum
við fólk ekki gamalt eins snemma
og gert var hér áður fyrr,“ segir
frú Neugarten. „Á 50. aldursári er-
um við líffræðilega yngri en for-
eldrar okkar voru á sama tíma.“
Frú Neugarten, sem er 52 ára
gömul, er ein af þeim mörgu vís-
indamönnum, sem rannsaka nú
þennan aldursflokk. Ásamt vísinda-
mönnum við Californíu háskóla og
fleiri vísindostofnunum, hefur hún
gert uppgötvanir, sem uppræta
margan misskilninginn um miðaldra
fólk, bæði karla og konur, sem
Margir telja að miður aldur hefj-
ist um fertugt. Rannsóknir sýna
hins vegar, að menntaðir og vel efn-
aðir Bandaríkjamenn verða ekki
eins fljótt miðaldra og til að mynda
verkamenn. Mælikvarði bygginga-
verkamanns á raunverulegan aldur
sinn er líkamsþrekið. Ekki er ósenni-
legt, að þegar hann er í kringum 35
ára finnist honum, að hann sé orð-
inn miðaldra. Maður, sem aftur á
móti stundar lítið sem ekkert lík-
amlega erfiðisvinnu, en notar huga
sinn þeim mun meira, finnst að öll-
um líkindum hann ekki vera orðinn
102
Readers Digest