Úrval - 01.08.1968, Blaðsíða 87
AUGU ÞÍN KOMA UPP UM ÞIG
85
laglegri ungri konu. Þeir voru beðn-
ir um að velja þá, sem félli þeim
betur í geð. Önnur myndin olli miklu
jákvæðari viðbrögðum en hin, og
flestir sögðu, að þessi kona væri
miklu meira aðlaðandi á allan hátt.
Þeir sögðu t.d., að „hún væri þess
háttar persóna, sem væri miklu in-
dælli í viðkynningu" eða að „hún
væri miklu alúðlegri og indælli á
allan hátt.“ Myndirnar voru eins á
allan hátt nema að því leyti, að sjá-
öldrin á annarri myndinni höfðu
verið stækkuð af ljósmyndaranum,
þegar hann gekk frá myndinni, en
sjáöldrin á hinni myndinni höfðu
verið minnkuð. Og hvor myndin
skyldi hafa fengið langflest atkvæð-
in? Auðvitað sú, þar sem sjáöldrin
höfðu verið stækkuð.
Hvers vegna finnst okkur fólk
meira aðlaðandi, þegar sjáöldur þess
eru útþanin? Vísindalegar tilraunir
hafa sýnt, að þegar einhver horfir
á mann með útþöndum sjáöldrum,
þá er slíkt merki um, að hinum
sama geðjast að manni. Og fólk
virðist skynja slíkt alveg ósjálfrátt.
Þegar einhver horfir á mann með
útþöndum sjáöldrum, jafnjvel þótt
aðeins sé um mynd að ræða, þá
virðist þetta gefa til kynna, að þeim
hinum sama geðjist að manni eða
mundi geðjast að manni, ef maður
hitti hann eða hana. Við höfum til-
hneigingu til þess að láta okkur
geðjast að því fólki, sem við finn-
um, að geldur slíkt í sömu mynt.
Sams konar athuganir voru gerð-
ar við háskólann í Missouri, en þá
var stuðzt við lifandi fólk, en ekki
ljósmyndir. Karl- og kvennemendur
við háskólann voru beðnir um að
velja sér félaga, þannig að það var
aðeins um tvo að ræða, sem velja
skyldi á milli, og voru þeir alveg
eins klæddir. Þar að auki höfðu
aðrir 200 nemendur áður látið það
í ljósi með kosningu, að þeir álitu
þá báða jafn laglega og aðlaðandi.
Sérhver stúdentanna var beðinn um
að velja þann, sem hann áliti, að
yrði þægilegri í viðkynningu og auð-
veldara að tala við, þar eða tilraun-
in, sem gera ætti, hefði það í för
með sér, að þeir yrðu að hafa nána
samvinnu. Sjáöldur annars nemand-
ans voru þanin út með hjálp augn-
dropa. Þrisvar sinnum fleiri stú-
dentar völdu þann með útþöndu
sjáöldrin. Þegar þeir voru spurðir
að því, hvers vegna þeir hefðu gert
það, gátu þeir ekki gefið neina skýr-
ingu, heldur sögðu þeir bara, að
þeir hefðu valið þann, sem þeim
fyndist „meira aðlaðandi“, „vin-
gjarnlegri“ eða „alúðlegri". Þótt
enginn þeirra segði, að valið byggist
á sjáaldusstærðinni, þá lágu sann-
anirnar fyrir, svo að ekki varð um
villzt.
Lítill strákur segir við félaga sinn: „Ég ætla mér að njóta vel
þessara ára, áður en stelpurnar breytast í hitt kynið.‘
J. M.