Úrval - 01.08.1968, Blaðsíða 43
BARÁTTA VÍSINDAMANNA VIÐ . . .
41
því, að af 53 sjúklingum, sem þjáð-
ust af höfuðverk, sem orsakaðist
ákveðið af lélegu ástandi augna,
þörfnuðust 28 gleraugna eða þurftu
að skipta um gleraugu.
Oft ganga menn með ofnæmishöf-
uðverk árum saman, án þess að
komizt hafi verið að því, að það sé
ofnæmi, sem höfuðverknum veldur.
Sá verkur og staðsetning hans er
ekki skýrt afmörkuð frá öðrum teg-
undum höfuðverks, en þó er um
ýmislegt að ræða, sem getur bent
til þess, hvort um ofnæmishöfuðverk
er að ræða. Sumir, sem þjást af
höfuðverk, þjást af ýmsu ofnæmi,
ananðhvort á vissum tíma árs eða
árið um kring, svo sem stífluðu nefi,
exemi, útbrotum eða asthma. Við
með höndlun slíkra sjúklinga hafa
læknar sprautað í sjúklingana efn-
um, sem hafa þau áhrif, að þeir
verða ekki eins næmir fyrir áhrifum
plöntufrjódufts í andrúmsloftinu og
ryks utan húss eða innan. Flestum
slíkum sjuklingúm batnaði mjög
mikið, og 36% þeirra losnuðu alger-
lega við höfuðverkjaköst.
Enn er margt ólært um höfuð-
verki. En hversu kvalafullir sem
þeir geta verið, eru þeir í fæstum
tilfeilum lífshættulegir.
Eiginkonan segir við vinkonu sína: „Vesalings maðurinn minn er
alveg örþreytlur. Hann hefur átt hræðilegan dag á skrifstofunni í dag.
Maðurinn, sem hann lætur sökina alltaf bitna á, mætti nefnilega ekki
til vinnu í dag.“
J.M.
Unga stúlkan við vinkonu sína: „Ég held, að .það sé alvarlegt.
Flann vill, að ég hitti sálfræðinginn hans."
Joe Ryan.
Argentískur vinur minn stakk þrem sendibréfum í rifu á hlið bank-
ans í hverfinu okkar, en hún er fyrir geymslu verðmæta eftir lokun-
artima bankans. Ég varð of seinn að stöðva hann. „Nú, ég set bréfin
mín alltaf í póst hér,“ sagði hann, þegar ég útskýrði það fyrir hon-
um, að þetta væri ekki bréfakassi.
Við urðum óttaslegnir, þegar okkur datt i hug, að pósturinn hans
hrúgaðist stöðugt upp í bankanum. Og því gengum við á fund banka-
stjórans. „En hve það var gaman að hitta yður,“ sagði bankastjórinn
við vin minn. „Við höfum póstlagt bréfin yðar nú siðustu sex mán-
uðina. E’n fyrst þér eruð nú staddur hér, ætla ég svona rétt að nefna
það og vona, að þér afsakið, að ég hef orð á þvi, að það var ekki
alveg nóg burðargjald á flugbréfunum í tvö skipti. Því bættum við
nauðsynlegum frímerkjum á bréfin, því að annars hefðu þau verið
send með skipspósti, og það tekur svo langan tíma.“
M. D. fí.