Úrval - 01.08.1968, Blaðsíða 65
JÓMALI HINN ÚGRÍSKI OG ... .
63
sambandi við heimsókn sína í lund-
inn helga, því venjulega aukast
slík fyrirbæri hvert af öðru. Þórir
Bjarkeyingur hefur haft manna
bezt vit á þessum efnum, vitað
hvers vænta mátti og kunnað þau
ráð sem dugðu. Þessvegna segir
hann við Karla: — mér þóttuð
þér mín njóta er undankoma vor
var með engum mannháska." Og
Snorri Sturluson hefur haft þann
skilning á þessum efnum, að hann
lætur ekki hjá líða að segja frá
þeim, og er hér nú reyndar komið
að mergnum málsins og aðalástæð-
unni til þess furðulega vanskiln-
ings og vantrausts á honum og öðr-
um íslenzkum fornritahöfundum,
sem ríkjandi hefur verið. Meðan
menn hafa þá trú að slík fyrir-
brigði geti ekki verið að marka,
geta þeir ekki heldur lært að meta
að verðleikum þá höfunda, sem
kunna frá slíku að greina. En
jafnskjótt og þau mál næðu viður-
kenningu, væri rutt úr vegi aðal-
hindruninni fyrir réttu mati á hin-
um íslenzku fornbókmenntum. Og
verður líka margt til þeirra að
sækja, sem menn skildu ekki áður
og veittu þess vegna litla eftirtekt.
☆
Tœkniöldin
Nemendur viS Tækniháskólann í Delft í Hollandi geta valið hvaða
bók sem er af þeim 120.000 bókum, sem eru í bókasafni háskólans. Og
þeir geta valið þær á mjög frumlegan hátt, þ.e. aðeins með því að
velja sér númer á skifu, líkt og væru þeir að hringja í síma. Þegar
nemandinn í bókaskrárdeildinni velur sér númer þeirrar bókar, sem
hann óskar eftir, kvifcnar á lampa yfir hillunni, sem bókin er geymd
í, og þá veit bókavörðurinn, að Það er óskað eftir bók, og hann veit
einnig nákvæmlega, hvar hana er að finna, því að númer hennar kem-
ur fram á skilti. E'f bókin er ekki í notkun, stingur bókavörðurinn
henni í rennu, og eftir henni fer hún að útlánaborðinu. Og síðan
er bókarlánið skráð með því einu að ýta á hnapp.
Science Service.
í Saudi-Arabíu eru efcki neinar deilur um það, hvort karlar eða
konur séu betri ökumer.n. Konum er einfaldlega bannað að aka bif-
reið. En takist yfirvöldunum að hafa hendur í hári akandi konu, er
það eiginmaður hennar, sem lendir í steininum.
Road md Track.
Tilkynning niðri við höfn í litlum bæ á einni af skozku eyjunum:
„Skipið fer frá þessari bryggju á mánudögum, miðvikudögum og föstu-
dögum, ef veðrið og guð leyfa það, og á fimmtudögum og laugardög-
um hvort sem er.
E. Daly.