Úrval - 01.08.1968, Blaðsíða 115
BIRKIKOFI
113
um betrunarhælum voru börn og
unglingar, sem haldin voru afbrota-
hneigð, bara lokuð inni. Það mætti
einnig segja, að þau hafi verið
„gleymd“, þangað til þau höfðu af-
plánað hegningu sína eða urðu nógu
gömul til þess að flytjast í raun-
verulegt fangelsi. Það var aðeins
eitt atriði, sem Tom Pinnock var
eins sannfærður um og frú Shank:
■ „Það er ekki hægt að reka illt burt
með illu. Það hefur verið reynt nógu
oft.... jafnvel af sérfræðingum!" ■
Brátt varð ,,Birkikofi“ sterkasti
hlekkurinn í langri keðju, sem
myndaði hina nýju meðhöndlunar-
áætlun. Vegna skilningsríkrar af-
stöðu yfirvaldanna hefur Washing-
tonfylki nú móttökumiðstöð, sem
unglingadómstólarnir senda alla af-
brotaunglinga til. Þar dvelja þeir í
6 vikur, svo að hægt sé að rannsaka
hvern þeirra mjög gaumgæfilega,
áður en ákveðið er, hvaða stofnun
hæfi honum bezt. Þær ýtarlegu upp-
iýsingar, sem móttökumiðstöðin get-
ur þannig veitt, gerir forráðamönn-
um á „Hlynstíg“ það fært að segja
til um það fyrir fram af miklu ör-
yggi, hverjar stúlknanna muni hafa
mest gagn af hinni yfirgripsmiklu
og gaumgæfilegu meðhöndlun, sem
veitt er í „Birkikofa“.
I fyrstu álitu menn, að sérhver
stúlka ætti að fá möguleika á að
komast á „opna“ deild, burtséð frá
því, hvers eðlis hennar persónulegu
vandamál væru, En bitur reynsla
hefur þegar sýnt, að það getur ekki
gengið. Hinar tiltölulegu frjálsu að-
stæður á „opnu“ deildunum voru
ekki heppilegar fyrir erfiðustu
stúlkurnar, sem áttu við mestu
vandamálin að stríða, heldur veitti
slíkt hinum gáfuðustu þeirra að-
eins tækifæri til að valda óró og
hleypa öllu í uppnám. Nú eru „erf-
iðustu“ stúlkurnar sendar til „Birki-
kofa“ beint frá . móttökumiðstöð
fylkisins.
Engar tvær af þeim mörgu stúlk-
um, sem búið hafa í „Birkikofa"
síðustu 6 árin, hafa verið eins. Þær
hafa alltaf orðið að fá sérstaka með-
höndlun hver fyrir sig. Engar tvær
hafa fengið alveg sömu meðhöndlun.
En það hefur náðst góður árangur í
95 tilfellum af hverjum löð.
Stundum gerist kraftaverkið á
nokkrum vikum, en stundum þarf
margra mánaða gaumgæfilega með-
höndlun og umönnun, sem einkenn-
ist af kærleika og alúð, áður en ár-
angur næst.
Gott dæmi um þetta er Linda
Hall, 16 ára gömul stúlka. Hún var
aðeins stórt barn, þegar hún kom í
„Birkikofa", en hún var þá haldin
slíku morðhatri, að jafnvel hinir
duglegustu læknar höfðu álitið hana
geðveika.
LIST HINS ÓGERLEGA.
Þegar Linda Hall var 16 ára,
höfðu betrunarstofnanirnar í heima-
fylki hennar, New Yorkfylki, gefið
upp aila von um hana, og því hafði
hún verið sett á geðveikrahæli. Það-
an flúði hún. Og svo skaut henni
skyndilega upp vestur á Kyrrahafs-
strönd í Washingtonfylki. Lögregl-
an hafði hendur í hári hennar, þeg-
ar hún handtók ungan mann fyrir
þjófnað og eiturlyfjaneyzlu. Linda
bjó með honum í vesælli íbúð í
fátækrahverfi og var þunguð.