Úrval - 01.08.1968, Blaðsíða 16
14
ÚRVAL
ar eru steinhrúgur. Á kortum Jór-
daníubúa af svæði þessu er það
kallað „fyrrverandi aðsetur Gyð-
inga“. í þeim fáu byggingum, sem
enn eru uppistandandi, búa ara-
biskir flóttamenn frá því svæði,
sem er á þessum sömu landakortum
kallað „Palestína, hernumin af
Gyðingum”.
Helmingur Jerúsalem var Gyð-
ingum opinn, en það var sá hluti
borgarinnar, sem hafði sprottið upp
á síðustu áratugum sem úthverfi
utan gömlu borgarmúranna. Eftir
að borginni var skipt árið 1948,
greip ísraelsmenn mjög sár löng-
un til þess að sjá inn í gamla borg-
arhlutann, þótt þeir gætu ekki far-
ið þangað. Landamærin milli ísra-
els og Jórdaníu voru um hálfri
mílu frá þeim stað, sem hið forna
musteri hafði staðið á, musterið,
sem Gyðingar áttu að fara í píla-
grímsferð til þrisvar á ári, á vor-
hátíðunum páskum og Shavouth og
á hausthátíðinni Succoth. Þegar
þessar hátíðir nálguðust, streymdu
hlaðnar járnbrautalestir til borg-
arinnar með pílagríma, sem vildu
fylgja hinum gömlu boðum biblí-
unnar um að fara til Jerúsalem.
Ungir menn, haldnir miklum eld-
móði, fóru í járnbrautarvögnun-
um upp eftir mjóu járnbrautarlín-
unni, sem bugðaðist um hæðir Júdeu
til borgarinnar. Þeir voru með
bænasjöl og bænabækur og lásu
upphátt og sungu sömu sálmana,
sem sungnir voru af sams konar
Gyðingum, sem fóru í slíkar píla-
grímsferðir fyrir 2000 árum.
Þegar þeir komu til hinna nýju
úthverfa borgarinnar, klifu þeir
Zionsfjall, sem var sá eini hluti
gamla borgarhlutans, sem hélt
áfram að lúta yfirráðum fsraels-
manna. Þeir klifruðu upp á þök
bygginga uppi á Zionsfjalli og
reyndu að skyggnast yfir hina
gömlu borgarmúra til þess að koma
auga á Grátmúrinn, sem hafði
staðið af sér eyðileggingu Róm-
verja árið 70 eftir Krist, þegar
þeir eyddu Jerúsalem.
Jafnvel erlendir ferðamenn í
ísrael, sem vissu, að þeir færu brátt
yfir í gamla borgarhlutann, urðu
smitaðir af æsingunni og slógust í
hóp fsraelsmanna. Þeir gægðust
inn í þennan heim, sem þeir ætl-
uðu bráðum að stíga inn í, komu
auga á turna og hvelfingar og hæð-
ir með sömu hrifningu og trúræk-
inn Gyðingur, sem reynir að sjá
í anda óljósar útlínur hinnar
himnesku Jerúsalem. Annars stað-
ar í ísrael, og reyndar um víða
veröld, strengja Gyðingar þess heit
um páskana, að þeir muni eyða
næstu páskum í hinni helgu borg.
„Að ári í Jerúsalem,“ eru loka-
orð páskaguðsþjónustu þeirrar.
Gyðingar í Jerúsalem segja: „Að
ári í hinni himnesku Jerúsalem,"
og síðan reyna þeir að skyggnast
yfir til gamla borgarhlutans.
En enginn á raunverulegt heim-
ili í Jerúsalem. Margir þeirra, sem
hafast við í gamla borgarhlutanum,
eru arabiskir flóttamenn. Flestir
Gyðingar í nýja borgarhlutanum
eru innflytjendur eins og reyndar
má segja um fsraelsmenn yfirleitt.
Eina ástæðan fyrir því, að
múhameðstrúarmenn geta haft of-
an af fyrir sér þar, er sú, að þar er