Úrval - 01.08.1968, Blaðsíða 129
BIRKIKOFI
127
stúlkur árlega. Það hefur með
öðrum orðum náðst góður árangur í
95 af hverjum 100 tilfellum! í þau
6 ár, sem „Birkikofi“ hefur starf-
að, hefur aðeins ein stúlka þaðan
lent í fylkisfangelsinu.
Það verður samt að álíta, að
starfsfólk „Birkikofa" hafi beðið
ósigur, hvað Marian Black snerti,
að minnsta kosti enn sem komið er.
Framfarir hennar í „Birkikofa“ voru
aðdáunarverðar, en þegar hún var
flutt á opnu deildina, fannst henni
sem hún stæði að nýju andspænis
fjandsamlegri veröld, sem hefði
engan áhuga á henni. Og því dró
hún sig aftur inn í hina fyrri skel.
Það kom greinilega í ljós, að hún
gæti ekki spjarað sig án stöðugs
og nákvæms lækniseftirlits, og því
var hún flutt á barnadeildina á
fylkissjúkrahúsinu. Þar eru við-
brögð hennar jákvæð við þeirri
gaumgæfilegu og stöðugu með-
höndlun, sem hún fær þar. En fram-
farirnar eru samt hægar. Það er
mögulegt, að það fari eins fyrir
henni og móður hennar, þ. e. a. s.
að hún dæmist til þess að eyða allri
sinni ævi sem sjúklingur á opin-
berum stofnunum. En enn þá hafa
menn samt ekki gefið upp alla von
um auðugri og mannúðlegri tilveru
henni til handa.
Ramona Torres hefur gifzt land-
búnaðarverkamanni og á mjög bráð-
lega von á barni. Maðurinn hennar
hefur að vísu notið mjög lítillar
skólamenntunar, og þar að auki
hefur hann gerzt brotlegur við lög-
in oftar en einu sinni. En hann hef-
ur samt ekki átt í neinum útistöð-
um við lögregluna, síðan hann gift-
ist, og sama er að segja um Ram-
onu. Því miður eru fjárhagsástæð-
ur þeirra mjög bágbornar, en samt
hefur þeim tekizt að sjá fyrir sér
sjálf hingað til án opinbers styrks.
Sá, sem hefur eftirlit með Ramonu,
lýsir heimili hennar þannig, að það
sé „þriggja herbergja skúr, en þar
sé allt hreint og í röð og reglu.“
Og hann tók það sérstaklega fram,
að hún hafi búið til blómakassa og
komið þeim fyrir fyrir utan glugg-
ana. Eftirlitsmaður hennar álítur
hana að vísu enn vera í hópi þeirra,
sem brugðið getur til beggja vona
um, en samt er möguleiki á því,
að sjálfsvirðing sú, sem Ramona
öðlaðist í „Birkikofa", muni hjálpa
henni í núverandi erfiðleikum henn-
ar og gera henni kleift að eignast
bjartari framtíð.
Jane Hutchins, fallega, rauð-
hærða stúlkan með háu greindar-
vísitöluna, er nú í leikskóla, og
gengur henni alveg prýðilega. Saga
Christie Farrell er þó að öllum lík-
indum sú athyglisverðasta enn sem
komið er. Hún leggur stund á þjóð-
félagsfræði við háskóla og hefur
þegar tekið fyrsta hluta af prófi
sínu. Það er ætlun hennar að helga
líf sitt starfinu fyrir ungar stúlkur,
sem eru á leið út á afbrotabraut-
ina.
Tammy Wells, sem var „húsmóð-
ir“ við hádegisverðinn, sem ég
snæddi í annarri heimsókn minni
til „Birkikofa", flutti heim til afa
síns og ömmu eftir dvölina á „Hlyn-
stíg“. Hún vann sér inn dálitla pen-
inga við barnagæzlu, á meðan hún
gekk í menntaskóla, og trúlofaðist
svo fljótlega ungum manni, sem