Úrval - 01.08.1968, Blaðsíða 50
48
ÚRVAL
einhver brögð í tafli, en ást hans
á „ravioli" sigraði dómgreind hans.
Og hver haldið þið svo, að hafi
skyndilega birzt við matborðið,
auðvitað bara af tilviljun? Það var
grönn, dökkhærð, fjörleg 16 ára
stúlka, Lena að nafni. Þetta varð
pabba að falli, eða eins og hann
orðaði það: Hann gat staðizt Lenu
eða „ravioli“ svona sitt í hvoru
lagi, en þetta hvort tveggja saman-
lagt var of mikið fyrir hann.
„Svo að þú giftist. Og svo þurft-
irðu einhverja fasta vinnu, svo að
þú byrjaðir aftur á því að gera við
skó.“ ’Ég lauk sögu pabba fyrir
hann.
„Si, si, þá þú vita það.“ Pabbi
tók upp hina skóna, sem við höfð-
um sólað og sett hæla á, og bar þá
yfir að vélunum.
„Pabbi,“ sagði ég, „ég er að velta
því fyrir mér, hvort ég hefði næg-
an kjark til þess að flytjast til
ókunnugs lands og setjast þar að
eins og þú gerðir. Ég get ekki skil-
ið, hvað hefur getað fengið þig til
þess að taka upp á slíku.“
Hönd pabba var á handfanginu,
tilbúin til þess að setja vélarnar í
gang. Hann sneri sér að mér og
sagði skælbrosandi: „Þú ekki segja
engum, en pabbi þinn hann var bara
vitlaus strákur með stórar, kolvit-
lausar hugmyndir í hausurinn.“
•fr
Skoöanajafnvœgi.
Skoðanakönnun, sem gerð víu. hjá húsmæðrum í Lundúnum, leiddi
í ljós, að það voru 57 hlutir, sem þeim geðjaðist vel að, og 90, sem
þeim geðjast illa að. Aðeins einn „hlutur“ birtist á báðum listunum
....... eiginmenn.
London Life.
Þegar Bismarck var sendiherra í St. Pétursborg árið 1860, tók hann
eftir vopnuðum varðmanni, sem gekk fram og aftur á litlum bletti
á grasflötinni fyrir traman konungshöllina. Bismarck varð forvitinn
og spurði Alexander keisara, hvers vegna þessi varðmaður væri þarna
á verði. Keisarinn vissi það ekki og skipaði svo fyrir um, að málið
skyldi rannsakað. Og að þrem vikum liðnum hafði gátan verið leyst.
Eftir að hafa gluggað í alls kor.ar plögg frá fyrri tímum, fundu þeir
tilskipun eina, ritaða af Katrínu miklu í eigin persónu. í þessari til-
skipun skipaði hún svo fyrir, að varðmaður skyldi hafður á verði á
vissum bletti á grasflötinni fyrir framan höllina til þess að tryggja
það, að ekkert. illt. skyidi henda smáblóm, sem var að reyna að skjóta
kollinum upp úr snjónum. Og árið 1912 eða 116 árum eftir dauða
hennar, var ennþá varðmaður á þessum sama stað i minningu um
lítið blóm og sem hollustuvottur um stórbrotna konu.
F. E.