Úrval - 01.11.1973, Qupperneq 23
Á PUTTANUM í DAUÐANN
21
tali á tæpu ári. Flest fórnarlamb-
anna voru ungar stúlkur, er ferðuð-
ust á puttanum. Hann skaut þá síð
ustu og fleygði nöktum líkama henn
ar í fjarlægt árgil. Hún hét Sylvia
Simik, var 21 árs, nemi við háskól-
ann í Colorado og var á leið til
vinnu sinnar í veitingahúsi og ferð-
aðist á puttanum.
Lögreglan og vegaeftirlitið segja,
að risin sé feikileg alda ofbeldis og
glæpa, sem bitni á ungu fólki, sem
ferðast á puttanum, sérstaklega
stúlkum. Reyndar segja skrár lög-
reglunnar í borgum, þar sem mikið
er um námsfólk, sem ferðast á putt
anum, sögu, sem ætti að varða miög
miklu bæði foreldra og námsfólk
jafnt. Til dæmis voru í Boulder á
síðasta ári 70% nauðgunarfórnar-
dýra stúlkur, sem ferðuðust á putt-
anum. f Boston var hlutfallið 33%.
Lögreglan í Berkeley í Kaliforn-
íu bendir á, að 30% nauðgana, er
urðu þar fyrstu tvo mánuði ársins,
hafi fylgt í kjölfar brottnáms fólks,
sem ferðaðist á puttanum.
Þessu má líkja við fjárhættuspil.
Fyrir áratug síðan var það fremur
undantekning en regla, að ungt
fólk ferðaðist á puttanum á banda-
rískum þjóðvegum. Puttaferðamenn
irnir voru flestir flækingar og þa"
var hinn miskunnsami .Samverji
þjóðvegarins, sem tók þá áhættu
að verða fyrir árás eða rændur.
En nú til dags er afar vinsælt
meðal ungs fólks að ferðast stað úr
stað á þennan hátt. Það er, oft fé-
lítið og bendir á, að það hafi ekki
efni á að ferðast með áætlunarfaT'-
artækjum. Gagnfræðaskólanemend-
ur ferðast á puttanum til og frá
skólum, eins og það sé sjálfsagður
hlutur. Aðrir fara að þjóðvegunum
á hverju sumri, saklausir flækingar,
sem ekki eru búnir öðru en poka-
skjatta á bakinu, trausti til samferða
mannanna og löngun til að sjá land
ið. Að minnsta kosti fjórða hvert
ungmenni er stúlka. En þeim er
jafnan hættast.
Á puttaferðalagi eru möguleikar
stúlku til að komst ósködduð á á-
fangastað engu meiri en möguleikar
á vinningi í fjárhættuspili. Tölur
lögreglu, viðtöl við hin ungu fórn-
ardýr sjálf og skrá yfir ungt fólk,
sem ferðast á puttanum frá Boston
til San Francisco leiða í ljós, að einn
af hverjum sex verður fyrir ein-
hvers konar kynferðisglæp, allt frá
ósiðlega hegðun og upp í nauðgun
með meiðingum. Þrátt fyrir þessa
vitneskju flykkjast stúlkur út á veg
ina í enn meiri mæli en áður. Fyrir
þúsundir þeirra endar ferðin með
skelfingu.
Við skulum líta á mál kaliforn-
ísku stúlkunnar, sem fór á puttan-
um í skólann með snyrtilegum, vel
klæddum og vingjarnlegum pilti á
mótorhjóli. Klukkustundu seinna
fannst hún á fáförnum vegi höfuð-
kúpubrotin, brotin á báðum kinn-
beinum og 36 þumlunga langan rýt-
ing í brjóstinu. Hún lifði þetta af.
þótt ótrúlegt sé. Þessi stúlka var 12
ára, þegar þessi atburður gerðist.
Árásarmaðurinn, sjóliði, sem nú er
á hæli fyrir geðsjúka afbrotamenn,
var seinna ákærður fyrir tíu aðra
glæpi gagnvart puttaferðafólki og
lögreglan grunar hann um marga
fleiri.
Til allrar óhamingju er slíkt of-