Úrval - 01.11.1973, Page 25
Á PUTTANUM í DAUÐANN
23
um vöruðu unga puttaferðafólkið
við og létu það fá bæklinga, sem
fjölluðu um áhættuna. Nöfn fólks-
ins og heimilisföng voru skrifuð nið
ur og bréf voru send foreldrunum,
þar sem beðið var um, að þeir legðu
að syni eða dóttur að ferðast með
öruggari hætti. Námsfólk á staðn-
um settist að í hópum í ráðhúsinu
og sagði, að herferðin hefti, ferða-
og hreyfingarfrelsi þess. Herferðinni
var aflýst. „Hvað getum við gert
meira?" spyr Mike Sguobba, höf-
uðsmaður í lögreglunni í San Diego.
Einmitt, hvað er hægt að gera
meira? Oft hefur verið stungið upp
á algjöru banni við því að ferðast
á puttanum á þjóðvegunum, og öll
ríki Bandaríkjanna hafa einhvers
konar lög, sem eiga að vinna á móti
slíkum ferðaháttum. En samkvæmt
reynslu segja lögregluvfirvöld, að
lagasetning sé ekki lausnin. Fyrir
tveim árum var til dæmis frum-
varp um algjört bann lagt fyrir kal
iforníska löggjafann. Áköf og víð-
tæk mótmæli gegn því voru meðal
námsfólks og hópa, sem beriast fyr
ir frelsi borgarans, og þrýstingurinn
varð nægur til þess að sú skoðun
kæmist á, að lagasetningin samrýmd
ist ekki stjórnarskránni. Lögreglan
bendir einnig á að erfiðara yrði að
framfylgja slíkum lögum heldur en
bara að grína fólkið í hónum og
sennilega eins gagnslaust. ,,Þið get-
ið ímyndað ykkur erfiðleikana.11
segir eftirlitsmaður nokkur. ..Við
hefðum ekki við að taka börnin
höndum. Þau yrðu svo mörg, að það
yrði að setia upp sérstakan umferð-
ardómstól."
Úr því að lögin virðast ekki koma
að gagni, þá er sá kostur fyrir hendi
að auka flutningsmöguleika að og
frá heimavistum — þær eru uppá-
halds veiðisvæði kynferðisglæpa-
mannanna — svo að nemendurnir
þurfi ekki að grípa til þess að ferð-
ast á puttanum. En því miður eru
skólayfirvöld treg til þess að gera
þetta. En eftir að stúlku úr San
Diego ríkismenntaskólanum var
nauðgað og síðan myrt í júlí síðast-
liðnum, ákvað einn úr kennaralið-
inu að taka málin í sínar hendur.
Jack Haberstroh, kennari í félags
fræðum, komst að raun um, að flest
ar nauðganirnar á stúlkum, sem
ferðuðust á puttanum, áttu sér stað
við kafla á þjóðveginum, þar sem
mikið af námsfólki fór um miili
skólans og heimilis síns. Hann fór
og keypt tvo ævagamla langferða-
bíla, breytti þeim bannig að þeir
líktust skordýrslifrum og útbjó þá
með rock-tónlist á segulböndum og
hafði ókeypis smárétti. Þessi bíla-
þjónusta Haberstrohs fékk nafnið
Bjölluleiðin og varð þegar í stað
afar vinsæl meðal nemendanna, o.S
nú veita bílarnir nærri, 100 nemend
um skjól á hverjum degi. Margt
þessa fólks mundi annars ferðast á
puttanum. Með því að kaupa aug-
lýsingapláss á bílnum hafa verzlun-
armenn staðarins stuðlað að því. að
fyrirtækið borgar sig og gefur meira
að segja dálítinn arð.
Þó að yfirvöld menntaskóla, þar
sem heimavistirnar eru umsetnar
af þessari plágu, sem kynferðisglæoa
mennirnir eru, fylgdu fordæmi Hab
erstrohs, þá yrði aukning á bíla-
þjónustu nálægt framhaldsskólum
aðeins að nokkru leyti til að leysa