Úrval - 01.11.1973, Page 29
NÝ TÆKNI í TANNVERND
27
götvanir í efnafræði á meðal nútíma
sigra í vísindum. Þessar uppfinning-
ar í efnafræði gætu komið í stað-
inn fyrir varnarhimnuna — plakið.
Þá yrði einnig komið í veg fyrir
tannborun, hennar yrði ekki þörf
framar.
Þar eð tann- og gómsjúkdcmar
orsakast af bakteríum, eru margir
vísindamenn sannfærðir um að ým-
iss konar vakar yrðu nothæfir og
notaðir til að gera bakteríur, sem
valda tannskemmdum óvirkar.
Rannsóknir á innkirtlum manns-
líkamans gera líklegt að nota megi
munnskolun til að efla vakana til
varnar
En til þess tíma, sem efnafræðin
og líffræðin útrýma þörfinni fyrir
„plak“, verða tannlæknar að halda
áfram með sínar fyrirbyggjandi ti!
raunir og aðgerðir.
Dr. Seymour J. Kreshover, einn
hinna kunnustu vísindamanna í
tanntækni og tannlækningum segi'u
„Við þekkjum nú þegar nóg til að
hindra tannskemmdir að mestu og
tímabundna sjúkdóma, með tann-
hirðingu, heilsusamlegu mataræði
og eftirliti tannlæknis með ákveðnu
millibili.
En hér þarf mikla vakningu þar
sem alltof margir telia tannskemmd
ir siálfsast og ófrávíkjanlegt böl.
Aðaláherzlan verður nú lögð á að
finna ráð til að auðvelda fólki tann-
hirðingu.“
Jafnvel nýjustu framfarir með
nýjum tækium og tækni koma ekki
í veg fyrir að tannlæknar fái enn
um sinn nóg að gera til að sigrast
á tómlæti fjöldans gagnvart tann-
og gómskemmdum.
„Fyrir tíu árum, hefðum við talið
tilgangslaust að hefja sókn,“ segir
einn af sérfræðingum í tannvernd-
un. „En nú ætti þetta að vera vinn-
andi vegur.“
TANNVERND:
Ráð sérfræðinga.
BURSTUN
Burstið efri-góms tennurnar nið-
ur, tennur neðri góms upp, með
léttu, en ákveðnu átaki. Það kemur
í veg fvrir að bakteríur setjist að við
tannrætur til eyðingar og skaða.
Notið bursta, með beinu skafti,
flötu og mjúku yfirborði burstans
sjálfs. Skiptið oft um bursta.
TANNKREM
Krem er nauðsynlegt til hreins-
unar á þeim svæðum munns og
góms, sem burstinn nær ekki til,
einkum milli tanna. Setjið kremið
mjúklega milli tannanna og burst-
ið fram og aftur frá hlið. Forðist
að særa góminn.
ÖNNUR RÁÐ TIL
TANNHREINSUNAR
Sumir tannlæknar ráðleggja notk
un sérstakra, þrístrendra tann-
stöngla til að hreinsa milli tanna.
Aðrir mæla með vatnstannstönglum.
En slíkar aðferðir á ekki að þurfa
til daglegra þrifa.
MUNNSKOLUN
„Krem til munnskolunar og munn
skolvökva ætti ekki að þurfa dag-
lega,“ segja sérfræðingar. Geta þó
haft sitt gildi í hófi til munnhirð-
ingar. Teljið ekki munnskolun nægi
lega til hreinsunar lími og „plaki“,