Úrval - 01.11.1973, Qupperneq 94
92
ÚRVAL
Hve alvarleg er þá dauðsfalla-
hætta sú, sem orsakast af sígarettu-
reykingum?
Árið 1971 var í skýrslu frá Kon-
unglega læknaskólanum í Bretlandi
eftirfarandi yfirlýsing:
„Sígarettureykingar eru nú jafn
þýðingarmikil dauðaorsök eins og
hinar miklu drepsóttir taugaveiki,
kolera, og berklar voru samanlagt
fyrri tíma kynslóðum í þessu landi.“
Allar drepsóttir orsakaðar af
taugaveiki í Vestur-Evrópu frá upp
hefi 16. aldar, hafa orsakað færri
dauðsföll en þau, sem alls eru viður
kennd af orsökum sígarettureyk-
inga á einu ári í Bandaríkjunum
einum.
Sígarettureykingar hafa búið fleir
um örlög en berklaveikin gerði í
Evrópu á allri 19. öld.
Árlega tala dauðsfalla í Bandaríkj
unum af völdum sígarettureykinga
er hærri en tala látinna af gulusótt,
sem þekkt er í sögu veraldar.
HVAÐ ER HÆGT AÐ GERA?
I fyrsta lagi er tími til kominn til
að afnema lagalega fjarstæðu.
Árið 1905 var tóbak og önnur
fíknilyf með lögum gert útlægt úr
Bandaríkjunum. En ári síðar var
gerð samþykkt um lyf, sem urðu til
þess að tóbak vegna ónæmisáhrifa,
sem það hefði, féll ekki lengur und
ir þennan lagabálk um eiturefni,
enda ekki þá talið hægt að skil-
greina það sem eitur.
Síðan hefur það samt sem áður
sannarlega verið viðurkennt, með
ýmsum eiturefnasamböndum, sem
eru í tóbaksreyk, menga umhverfi
og falla áreiðanlega undir lög um
vernd neytenda, og ónæmisáhrifin
eru vægast sagt blekking.
Hitt er hins vegar staðreynd að
í því eru sjö efni, sem sannarlega
valda krabbameini og eins og áður
er sagt 15—20 sambönd þekktra eit
urefna, sem fara um munn og nasir
56 milljón manna á dag að meðal-
tali 27 sinnum beint ofan í lungun.
Um ónæmi tóbaks þarf ekki heldur
að ræða.
f öðru lagi þurfum við lög um
„fullkomlega öruggar11 sígarettur,
samstæð lögum, sem banna tilbún-
ing óhollrar fæðu, varasamra lyfja,
skaðlegra fegrunarmeðala, hættu-
legra leikfanga og húsgagna.
Satt að segja eru óskaðlegar síga-
rettur hugsanleg staðreynd nú orðið.
Notkun hreinsaðs tóbaks með ör-
litlu eða engu nikotín innihaldi er
vel hugsanleg, og væri slík fram-
leiðsla sameinuð þeim síum sem
fullkomnastar finnast, væri næstum
alveg hægt að fjarlægja hættuna af
reykingum.
En það mundi einnig afnema þá
ástríðu eða löngun, sem gerir tóbak
svo eftirsóknarvert. Slíkar aðferðir
mæta því geysiharðri andstöðu hiá
hinum voldugu tóbaksframleiðend-
um.
Þriðja atriðið er almenningsálitið,
samvizka fólksins.