Mímir - 01.07.1987, Síða 67

Mímir - 01.07.1987, Síða 67
Soffía Auður Birgisdóttir: Hin norræna móðir og svanurinn Andstæðusýn og togstreita í Dalafólki 1 eftir Huldu Inngangur Þessi ritgerð var samin sem prófritgerð í námskeiðinu: Konur og bókmenntir II, sem Helga Kress kenndi í Almennri bókmennta- fræði á vormisseri 1986. Sumar þeirra hug- mynda minna sem hér koma fram hafa vafa- laust mótast af umræðum þar. Ritgerðin birtist hér nær óbreytt. I ritgerðinni er skáldsagan Dalafólk I eftir Huldu skoðuð í ljósi kenninga franska fræði- mannsins og femínistans Héléne Cixous. Tilgangurinn var að athuga hvort sjá mætti í skáldsögunni þá andstœðusýn sem Cixous (sem byggir mikið á kenningum Jacques Derrida) telur vestræna menningu hvíla á. Að mati Cixous er þessi andstœðusýn mikil hindrun í vegi kvenna, þröskuldur sem er rótfastur í vest- rænni menningu og nær yfir alla orðræðu hennar. Þetta veldur konum erfiðleikum bæði að skapa sér jákvætt og virkt hlutverk við að tjá reynslu sína með tungumálinu sem og innan menningarheildarinnar. í Dalafólki I er þessi andstæðusýn allsráð- andi. Kvenhetja sögunnar á í sífelldri baráttu við sjálfa sig, baráttu sem gengur út á að sætta sig við það hlutverk sem menningin ætlar kon- um. Einnig er athyglisvert hversu ráðandi and- stæður eru í öllu tungumáli verksins og mynd- máli þess. I Sjá Héléne Cixous: „Castration or Decapitation?" Signs: Journal of Women in Culture and Society, Volume 7, Number I (Autumm 1981), bls. 41—55. Einnig Toril Moi: Sexual/Textual Politics. Feminist Literary Andstæðusýn Franski rithöfundurinn og fræðimaðurinn Héléne Cixous hefur sett fram þá kenningu að öll vestræn menning og menningarorðræða sé byggð á andstœðusýn karlveldisins.1 Allt sem stjórnar lífi okkar, sem hef'ur áhrif á okkur, sem fram kemur í Iistum, trúarbrögðum, tungumál- inu, fjölskyldumynstrinu, samræðum o.s.frv., er bundið í táknkerfi sem grundvallast á tvenndarandstæðum (binary-oppositions) sem sett eru upp sem pör (couples). Innan hvers andstæðupars er ríkjandi stigveldi (hierarchy) eða valdastrúktúr, á þann hátt að annar þáttur parsins er „yfir“ hinum, er jákvæðari og virk- ari. Hin baklæga andstæða sem rekja má öll hin andstæðupörin til er, samkvæmt Cixous, höfuðandstæðan karl/kona. Til að halda þeirri hugsun við Iýði að karl/- kona teljist óumbreytanlegt andstæðupar, verð- ur hin menningarlega orðræða að bera með sér að munurinn á þessum hugtökum (þ.e. karl/- kona) sé „náttúruleg“ forsenda og undirstaða annarra tvenndarandstæðna. Að mati Cixous er þetta einmitt hængurinn á orðræðu karl- veldisins: Andstæðuparið karl/kona vekur ósjálfrátt upp fjölda annarra andstæðna, svo sem stór/lítil, sterkur/veik, ráðandi/undirgefin, hreyfing/kyrrstaða, virkur/óvirk. Það sem skiptir einna mestu máli í þessari Theory. Methuen. London and New York, 1985. Kaflinn: „Héléne Cixous: an imaginary utopia." Aðallega bls. 104-107. 67
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.