Mímir - 01.07.1987, Qupperneq 73
Tilbrigði við þetta þema er einnig hrifning
hennar á fossinum í 1. kafla.
Það svæði, sem ísól leitar einna mest til í
náttúrunni, er hraunbreiða inni á heiði sem
nefnist Dvergárhraun. Hún kynnist staðnum
sem barn og er strax heilluð; .. þar átti hún
heim, æfintýraríki. Hún var kóngsdóttir
hraunsins . ..“ (bls. 209). Hún fór oft út í
hraunið sem barn; „Miklu oftar en nokkurt vit
var í, sagði fólkið. ísól hafði gleymt sér í hvert
einasta sinn.“ (bls. 209). Hraunið er staður sem
ekki ölium er gefið að skilja. ísól hafði, ásamt
föður sínum, fylgt þangað Englendingi, „há-
Iærðum manni“, og hún lýsir honum sem
bjánalega spaugilegum þar sem hann tiplar
dauðhræddur yfir „meinlausa urðina og mos-
ann".
[ísól] langaði til að hrópa: Farðu asninn þinn
og láttu elsku mosann minn í friði! Og hún hló
af hjarta þegar hún las lýsingu hans á þessu
ferðalagi þeirra, þar sem hann líkti hrauninu
við steinrunnið eða stirnað djöflaríki, en geigur-
inn og skiiningsleysið skein út úr hverju orði.
(bls. 209-210)
Skemmtilegri lýsingu á hinu villta svæði
kvennamenningarinnar er vart hægt að finna.
Faðir/Móðir
En hvaðan skyldi hið villta náttúrueðli ísólar
vera upprunnið? Þar er komið að annarri
meginandstæðu sögunnar, nefnilega Faðir/-
Móðir. ísól hefur þegið náttúrueðlið í arf frá
móður sinni. Persónuleiki Isólar er samsettur
úr tveimur ólíkum þáttum, móðureðlinu og
föðureðlinu. Þetta er sett upp í sögunni sem
skýring á togstreitunni í sál hennar. Frelsis-
þráin og náttúruhvötin eru tengdar móðurinni,
viljinn til að sinna skyldunni og ganga inn í
kvenhlutverk hefðarinnar er kominn úr föður-
ættinni.
Foreldrar ísólar kynntust þegar faðir hennar,
Gunnar Árdal, var á ferð í Ameríku. Móðir
hennar, Björk, var fædd í Ameríku því foreldr-
ar hennar höfðu „flúið" fsland þegar átti að
meina þeim að eigast og gifta móðurina öðrum
manni. Móðurafi og amma ísólar eru sem sagt
fólk sem hlýðir kalli ástarinnar og lætur ekki
kúga sig. Það er lögð mikil áhersla á náttúru-
eðlið í móður ísólar. Hún var „heiðið náttúru-
barn“ sem elskaði náttúruna og „skildi allt sem
var frjálst." (bls. 106). Hún var bæði óskírð og
ófermd.
Föðureðlið er hins vegar allt annað. Faðir
Isólar er vel menntaður og unir sér best við
lestur bóka og ástundun þjóðlegra fræða. Hann
og hans ætt er fólk sem hefur skynsemina að
leiðarijósi og hlýðir kalli skyldunnar fremur en
löngunarinnar. Þetta er dregið fram með frá-
sögnum af ættmennum úr föðurættinni sem
fórnuðu listadraumum sínum fyrir skylduna
(málarinn í Straumnesi og systir hans, amma
ísólar). Þetta tvískipta eðli, sem ísól hefur þeg-
ið í arf, má setja upp í eftirfarandi andstæðu-
pör:
Faðir/Móðir
Skynsemi/Tilfinningar
Bæling/Frelsi
Menning/Náttúra
í þessum andstæðupörum höfum við þrjár af
þeim andstæðum sem Héléne Cixous dregur
upp sem grundvallar-andstæður í andstæðusýn
karlveldisins.
Það eru þessar andstæður sem eiga í sífelldri
baráttu í sál ísólar. Reyndar hafa áhrifin frá
móðureðlinu stórlega minnkað þar sem móðir
ísólar deyr við fæðingu hennar og í hennar stað
kemur Jóhanna fóstra sem heyrir til hinu svið-
inu, sviði föðurins. Jóhanna hefur alla tíð sinnt
skyldu sinni og bælt niður tilfinningar sínar. Á
yngri árum átti hún unnusta sem var henni sí-
fellt ótrúr, en það hvarflaði aldrei að henni að
gera neinar kröfur til hans, hennar tilfinningar
skiptu aldrei máli — bælingin var fullkomin.
Þættir móðureðlisins standa því höllum fæti
í baráttunni við þætti föðureðlisins í sál ísólar.
Enda hefur föðureðlið fullan sigur að lokum.
Hin norræna móðir/Svanurinn
Baráttan milli hinna ólíku eðlisþátta í skap-
gerð Isólar birtist einna helst í leit hennar að
73