Mímir - 01.06.1996, Blaðsíða 71

Mímir - 01.06.1996, Blaðsíða 71
Porfinnur Skúlason Ótti Emilíu Það var Emilía sem kom þessu öllu af stað. Ég hafði verið að súpa á mjólk og narta í kex á meðan ég fletti blaðinu, er ég skyndilega rakst á tvö orð. Af þúsundum annarra orða voru það aðeins þessi tvö sem fönguðu athygli mína, þar sem þau stóðu kolsvört yfir litlum dálki, TÆTUM OG TRYLLUM. Ég vissi að hér var gamli Stuðmannafrasinn á ferð og átti því von á tónlistarumfjöllun einhverrar ættar. I staðinn birtist þetta: Emilía hringdi: A útvarpsstöðinni Bylgjunni hafa að undanförnu heyrst auglýsingar sem enda á þessum slagorðum: „Tætum og tryllum“! Þessar auglýsingar eru aug- sýnilega ætlaðar ungu fólki og hljóða upp á sam- komur á hinum og þessum stöðum á landinu. Mér finnst þetta vera með lágkúrulegustu slagorðum sem hafa verið í gangi lengi - og hafa þau þó ekki öll verið upp á marga fiska. Þetta lýsir kannski best innræti þjóðarinnar hvernig óafvitandi má stuðla að afbrotum, misferli og lítilsvirðingu fyrir heil- brigðu þjóðfélagi. Orðin eru hlaðin krafti í augum Emilíu. Krafti sem beinist gegn þjóðfélaginu, regluríki manna. Með því að hafa þau yfir nógu oft eins og gjarnan er háttur auglýsinga geta þau auðveldlega leitt ungt og óharðnað fólk inn á glapstigu afbrota og misferlis. Orðin seiða og sefa eins og tröllin forð- um til þess eins að gera fórnarlömbin sér sam- dauna. Ómótaður unglingur á það á hættu að tryllast, verða að trölli. Skilningur Emilíu á orð- inu trylla vakti með mér forvitni sem að endingu leiddi mig áfram um ranghala íslenskrar menning- ar og sögu. Hvað þýðir orðið tröll og hverrar náttúru er veran sem það ber? Hvaða merkingu hafði orðið trylla, hefur hún breyst? Þessar spurn- ingar leituðu fyrst á mig en síðan urðu þær fleiri og fleiri. í ritgerð minni til B.A.-prófs1 leitaði ég svara við þessum spurningum á þremur sviðum, í orðsifjum, þjóðsögum og íslandslýsingum. Hér á eftir fer fyrsti hluti þriggja. Von mín er sú að uppruni orðanna geti orðið að leiðarsteinum sem markað gætu leið að dulinni merkingu. Aðferðafræðilegir þankar Orð eru tákn sem ákveðin merking er tengd við. Hægt er að líta á þá merkingu sem sáttmála fólks- ins sem tungumálið talar. Við lesum bókstafi af blaði eða nemum hljóð úr annars munni og tengj- um saman í huganum tákn og merkingu. En það er oftast ekkert í eðli orðsins sjálfs sem tengir það merkingu sinni.2 Orðið sími merkti t.d. á miðöld- um hið sama og orðið þráður merkir í dag. Þetta er ein af frumforsendum orðsifjarannsókna. Ákveðið orð er tekið til skoðunar og merkingar- þróun þess rakin aftur um aldir. Vegna þess að merking orða tekur stöðugum breytingum gerir athugun á þróun hennar okkur stundum kleift að ráða í hugsunarhátt fyrri tíma. Þó að liðinn tími verði aldrei endurvakinn að fullu þá getur merk- ingarfræðin verið sem áhald í höndum okkar til að byggja mynd af fortíðinni. En vissir annmarkar eru einnig á merkingar- fræðirannsóknum og sá mestur að algildur sann- leikur og svör verða aldrei fundin, engin niður- staða er endanleg. Líta má á merkingu orða eins og rætur á tréi þar sem einn angi tengist öðrum en ómögulegt er að segja til um það í hvaða rótar- grein upphafið liggur. Þetta gefur okkur óneitan- lega ákveðið vald í hendur. Við getum ákveðið að taka eina merkingu fram yfir aðra, fylgt einum anga en sniðgengið annan. I því felst líka nokkur hætta, sú hætta að einfalda um of það sem í eðli sínu er flókið. Með þessar hugmyndir og fyrirvara í nestismalnum getur verið fróðlegt að skoða orð- 69
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.