Mímir - 01.06.2005, Page 20

Mímir - 01.06.2005, Page 20
borginni og þeim iifnaði sem þar þrífst um fíkn sína. „Björt Ijós, borgarljós“ fjallar um dreng sem er fæddur undir fjallinu en féll ekki líf í sveit. Hann stakk því af til borgarinnar þar sem borgarljósin blinda hann. Borgin umvefur hann örmum sínum, blíðum en banvænum, og smátt og smátt vinnur hún á honum. Hann tærist upp að innan jafnt sem utan líkt og holdsveikisjúklingur. Sú litla og stopula stund sem hann stóð við í borginni er öll skráð á honum, hann hefur misst sína lokkandi brá og hatar nú borgina eins og sjálfan sig. Þar sem hann situr, svitnar og bíður endaloka sinna á klósettinu á stöðinni, hugsanlega smitaður af alnæmi, óskar hann þess helst að hann væri laus við frestinn. Þar á hann kannski við gálgafrestinn úr útfararsálminum um blómið: Hvorki fyrir hefð né valdi hopar dauðinn eitt strik, fæst sízt með fögru gjaldi frestur um augnablik [...] (Hallgrímur Þétursson, 1944, bls. 228) Fíklinum virðist sem dauðinn kvelji sig, hafi veitt honum þennan frest sem allajafna fæst ekki og hann vilji síst allra. Hann vill losna við þessa kvöl, sem tilvistin er, enda þótt fyrir honum liggi engin paradísarvist. En honum verður ekki kápan úr því klæðinu, þrátt fyrir að nautnalífið hefði átt að vera búið að ganga af honum steindauðum fær hann frestinn. Textann má skoða sem reynslusögu fíkilsins. Söguna um hvernig hann sekkur dýpra og dýpra ofan í fíknina. Rétt eins og holdsveikisjúklingnum virðist honum engin útgönguleið fær, eina leiðin er að fljóta fram: & þyngdaraflið það örmagnast, tíma og eilífð er varpað fyrir róða & það snjóar óminni og alsælu upp af speglinum góða Fíknin vinnur bug á öllu. Þegar hann hefur sogið alsæluna upp af speglinum er öllu öðru varpað fyrir róða. Og rétt eins og holdsveikisjúklingurinn getur fíkillinn enga mótspyrnu veitt. Hægt en örugglega liggur leiðin í gröfina. Megas hefur í gegnum tíðina verið í hlutverki eiturfíkilsins á grafarbarminum og oftar en einu sinni hafa gengið kjaftasögur um að hann sé dauður. Þær voru sérstaklega áberandi eftir tónleika hans „Drög að sjálfsmorði", en þá var hann mjög illa farinn vegna lyfjaneyslu að eigin sögn (Einar Kárason, 1984). Vegna (ó)lifnaðar síns var honum stillt upp sem utangarðsmanni sem væri þjóðfélaginu til vansa.7 Hann var andstæða venjulegs fólks. Gert var lítið úr honum í fjölmiðlum og jafnvel skrifað leikrit sem var lítið annað en níð um hann, þ.e. leikritið „Valmúinn springur út á nóttunni" eftir þá bræður Jón Múla og Jónas Árnasyni. Um stælinguna á Megasi í leikritinu segir í leikdómi: „...einhver grátlegasta smekkleysa sem ég hef horft uppá og nánast ótrúlegt að góður leikari eins og Hjalti Rögnvaldsson láti hafa sig út í slíkt “(Sverrir Hólmarsson, 1978). Megas var samsamaður persónum sínum, enda féll goðsögnin um dópfíkilinn Megas vel að þeim. 2. Sjónarhorn - sjónbeining - sjónarmið í fyrsta kaflanum var litið á paródíurnar „Þaradísarfuglinn" og „Heimspekilegar vangaveltur um þjóðfélagsstöðu" auk þess sem drepið var á textann um sveitastrákinn sem verður borgarsollinum að bráð. Allir eiga þessir textar það sameiginlegt að mælendur þeirra eða aðalsögupersónur eru utangarðs; geðsjúklingur, róni og fíkniefnaneytandi. Þeir eru fólk sem allur þorri almennings vill lítið hafa með að gera í nánasta umhverfi sínu. í textunum er hversdagurinn dagur utangarðsmannsins. Textar Megasar segja frá atburðum, kómískum, hversdagslegum eða átakanlegum, sem varpa Ijósi á líf persóna hans og lífsstíl. Hann túlkar afkimana í íslenskum samtíma og með kveðskap sínum bendir hann á fjölbreytileika mannlífsins og þá þöggun sem alltaf á sér stað um það sem er illa séð eða truflar millistéttina á einhvern hátt. Þannig hefur Megas orðið nokkurs konar talsmaður olnbogabarna þjóðfélagsins. Þegar hann syngur um fatlafól kætast fatlaðir ekki síður en aðrir, þó ekki sé nema vegna þess að vakin er athygli á að þeir séu til. Þegar hann syngur um rónana og eiturlyfjaneytendurna kætast líklega færri, og þá kannski sérstaklega þeir sem hættir eru eiturneyslunni, vita af vandanum og hafa bæði vilja og þor til að horfast í augu við hann. Ekki er ólíklegt að án þess að það hafi beinlínis vakað fyrir honum hafi Megas með viðleitni sinni til að draga umræðu um þessi mál upp á yfirborðið gert frumkvöðlum í áfengis- og vímuefnameðferð hér á landi starfið hægara. En Megas lét ekki staðar numið. Þegar hann hóf að syngja um ástir til barna uppúr miðjum níunda áratugnum fannst mörgum eins og loksins hefði Megas gengið of langt. Margir aðdáenda hans og fylgismanna frá upphafi ferilsins sneru baki við honum og gengu í lið með þeim sem alltaf höfðu haft illan bifur á textasmíð hans og tónlist. Menn vildu ekki horfast í augu við að til væru menn 18 7 Sbr. lesendabréf í dagblöðum sem vitnað var til á bls. 8.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.