Mímir - 01.06.2005, Side 104

Mímir - 01.06.2005, Side 104
Iðunnar og dráp Þjassa. í Snorra-Eddu er Loka lýst á eftirfarandi hátt: Sá er enn talðr með ásum, er sumir kalla rógbera ásanna ok frumkveða flærðanna ok vömm allra goða ok manna. ... Loki er fríðr ok fagr sýnum, illr í skaplyndi, mjök fjölbreytinn at háttum. Hann hafði þá speki um fram aðra menn, er slægð heitir, ok vélar til allra hluta. Hann kom ásum jafnan í fullt vandræði, ok oft leysti hann þá með vélræðum.12 Orðin mjök fjölbreytinn at háttum má túlka á þann hátt að Loki hafi auðveldlega getað skipt um gervi og tekið hamskiptum, enda kemur hann oft fram í öðrum gervum en sínu eigin. Tvisvar þarf hann á utanaðkomandi hjálp að halda til þess og fær lánaðan fjaðurham Freyju til að fljúga til Jötunheima, annars virðist hann geta skipt um gervi án fyrirhafnar. í sögunni um dauða Baldurs kemur hann tvisvar fram sem kona, fyrst þegar hann fær Frigg til að segja sér að mistilteinninn hafi ekki svarið að deyða ekki Baldur og þá „... brá hann sér í konu líki.“13 Síðan er hann í gervi Þakkar, tröllkonunnar sem neitar að gráta Baldur, svo hann snúi heim úr helju.14 í sögunni um borgarsmiðinn bregður hann sér í merarlíki og ber fyl,15 og er fluga í helli (valdssona.16 Hamskipti Loka hafa greinileg áhrif á afkvæmi hans, hvort sem hann er faðir eða móðir þeirra. Óvættirnar Fenrisúlf og Miðgarðsorm og dauðagyðjuna Hel á hann með Angurboðu og með Svaðilfara á hann hestinn Sleipni. Einu mennsku börnin sem hann virðist hafa eignast eru synirnir Narfi og Váli, sem hann átti með Sigyn, en æsirnir breyttu Vála í úlf og drap hann bróður sinn og var Loki fjötraður með þörmum hans.17 Ellis Davidson álítur að þegar Loka sé kennt um dauða Baldurs sé það byggt á hugmynd um að einhver undirheimakraftur standi gegn Óðni og valdi dauða sonar hans. í Snorra-Eddu er það gýgurin Þökk sem neitar að gráta Baldur og heimta hann þannig úr helju og var talið að það væri Loki í dulargervi. I Baldrs draumum ásakar Óðinn völvuna um hefndarhug gegn Baldri og segir hana hvorki vera völvu né vísa konu, heldur móður þriggja þursa. Viðbrögð völvunnar verða þau að hún segir að enginn muni sjá hana aftur fyrr en Loki losni 12 Snorri Sturluson 1949, bls. 46. 13 Snorri Sturluson 1949, bls. 80. 14 Snorri Sturluson 1949, bls. 84. 15 Snorri Sturluson 1949, bls. 61-62. 16 Snorri Sturluson 1949, bls. 149-150. 17 Snorri Sturluson 1949, bls. 86. 102 úr böndum sínum. Þar með er gefið i skyn að Loki tali fyrir munn hinnar látnu völvu og sé sjálfur móðir þriggja þursa og að Angurboða sé nafn á kvenkynsmynd Loka og að þursarnir séu Hel, Miðgarðsormur og Fenrisúlfur.18 Þetta er athyglisverð tilgáta og enn athyglisverðara er það að hér er Loki í kvengervi. Ef kvengervi Loka er í gýgjarformi og hann hefur gert eitthvað af því að bregða sér í það, gæti það útskýrt ásakanir Óðins í Lokasennu og skýrt betur af hverju Loki á svo auðvelt með að bregða sér í líki fylgdarmeyjar Þórs í Þrymskviðu og talar jafnvel um sjálfan sig í kvenkyni. Ef Loki átti sér kvengervi sem hann brá sér oft í, var hann auðvitað alltaf argur, því hann var í senn kona og maður, jötunn og ás. Þetta kemur heim og saman við orð Óðins í Lokasennu: átta vetr vartu fyr jörð neðan, kýr mólkandi ok kona, ok hefr þú þar börn borit, ok hugða ek þat args aðal.19 Þessi kynferðislega aðdróttun er samtvinnuð því að hafa verið neðanjarðar, sem á að öllum líkindum að þýða að Loki hafi verið kona jötna og trölla, hverra kynhneigð sé gróf og hömlulaus. Svipað liggur að baki fjölmörgum aðdróttunum í öðrum bókmenntagreinum, til dæmis þegar Skarphéðinn kallar Flosa brúði Svínfellsáss í Njálu, og þegar Þór þarf að fara til jötna í kvengervi í Þrymskviðu. Kvenímyndin sjálf var ekki niðrandi, eingöngu þegar karlmenn þóttu hegða sér eins og konur.20 En kvengerving Loka hefur ekki alltaf í för með sér hörmungar fyrir æsina. í Þrymskviðu verður hún ásum og mönnum til bjargar, þegar hann hjálpar Þór að endurheimta Mjölni, auk þess sem kænska Loka og innlifun í kvenhlutverkið bjargar Þór margoft frá afhjúpun og gerir klaufaskap Þórs því hlægilegan en ekki harmrænan. Innlifun Loka er svo mikil að hann virðist tala um sjálfan sig í kvenkyni og álíta sjálfan sig vera kvenkyns. í 20. erindi Þrymskviðu segir Loki við Þór þegar báðir hafa klæðst kvenbúningi: ‘Mun ec oc með þér ambót vera, við scolom aca tvau i iotunheima’ 18 Ellis Davidson 1964, bls. 188. 19 Eddukvæði 1949, bls. 150. 20 Meulengracht Sorensen 1980, bls. 28-29.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.