Mímir - 01.06.2005, Síða 109

Mímir - 01.06.2005, Síða 109
sá sigur er ekki fullkominn, því að hún fær ekki þann sem hún kýs helst, því hún samþykkir að kjósa sér maka eftir fótum hans og hafði þar með takmarkaða möguleika á að auka veg sinn með hjónabandinu. En það var eitt aðalmarkmiða miðaldahjónabanda á íslandi, að auka veg brúðhjónanna og mynda með þeim bandalög sem styrktu ættarböndin og það var ekki gert með svona handahófsbrúðkaupum.52 Auk þess er hún ekki raunverulegur sigurvegari að lokum, því hún gengur til liðs við óvini sína og verður ein þeirra og að lokum skildu hún og Njörður, því hvorugt þoldi bústaði hins. í Ynglinga sögu segir að eftir skilnað þeirra hafi hún gifst Óðni og eignast með honum marga syni.53 Nafn Njarðar er náskylt nafni germönsku gyðjunnar Nerthus án þess að vitað sé um bein tengsl þar á milli. Kannski voru Njörður og Nerthus tvíkynja guðapar, líkt og Freyr og Freyja. Sú hugmynd hefur komið fram að gyðjan Nerthus hafi orðið að guðinum Nirði og að Skaði hafi upphaflega verið karlkynsvera en orðið kvenkyns til að fylgja maka sínum - sú hugmynd hefur þó ekki verið rökstudd nægilega.54 Ef Njörður og Nerthus voru tvíkynja (systkina)par getur það skýrt orð Loka að Njörður hafi getið Frey við systur sinni,55 sem og þegar hann ýjar að því að Freyja sé gift bróður sínum.56 Ef Skaði var upphaflega karlkyns skýrir það margt í eðli hennar, til dæmis er hún í Gylfaginningu sögð fara á skíðum með boga og skjóta dýr.57 Hún kemur herklædd til Ásgarðs og fær að velja sér karlkyns brúði eftir fegurð brúðarinnar. Þrátt fyrir að Skaði líkist að mörgu leyti valkyrjum og meykóngum, skortir hana kvenlega eiginleika þeirra og fegurð, auk þess sem Njörður yfirvinnur hana aldrei. Eignmaðurinn verður alltaf að yfirbuga karlmennskueðli kvenhetjunnar, annað hvort mistekst Nirði það, sem skýrir af hverju hjónabandið gekk ekki upp, eða hann hefur ekki roð í karlmanninn Skaða, sem hefur ekki glatast að fullu, þrátt fyrir kynyfirfærsluna. Að auki er nafn hennar mjög óvenjulegt, ekki eru önnur dæmi um það að kvenmannsnöfn endi á -i, og beygist líkt og veik karlkynsorð. Lokaorð Því miður komust fleiri æsir ekki í þessa ritgerð og því valdi ég þá sem mest er um að segja, þótt aðrir hafi verið freistandi, líkt og Baldur, hinn fullkomni guð, og Freyr, sem fórnaði karlmennskutákni sínu til 52 Lindow 1992, bls. 131-132. 53 Islenzk fornrit XXVI bls. 1979, 21. 54 Ellis Davidson 1964, bls. 106 55 Eddukvæði 1949, bls. 154. 56 Eddukvæði 1949, bls. 152-153. 57 Snorri Sturluson 1949, bls. 41. þess að fá Gerði sem konu. Það virðist vera erfitt fyrir konur að fá á sig ergisstimpil, af ásynjum eru hvorki Freyja né Skaði kallaðar argar, þrátt fyrir hegðun sem er ólík hinni hefðbundnu kvenhegðun. Freyja virðist afsökuð vegna hiutverks síns, en hegðun Skaða ertalin aðdáunarverð, jafnvel þótt hún fari langt frá kynhlutverki sínu. Karlarnir eru hins vegar oft álitnir argir, jafnvel Þór á þá nafnbót á hættu fyrir að dulbúast sem Freyja í Þrymskviðu. Óðinn og Loki eru svo sannarlega argir, Óðinn stundar seið og klæðist kvenmannsfötum, en Loki fullkomnar skilgreiningu á ergi, hann er jafnt kona og karlmaður og verður bæði faðir og móðir. Niðurstaða mín er sú að æsirnir voru argir, í það minnsta þeir er hér hefur verið rætt um. En ergi þeirra kemur ekki að sök, því hún hefur æðra markmið, þeir eru guðir og lúta ekki sömu siðferðisreglum og mennirnir. Breyskleiki guðanna í goðsögunum skiptir miklu máli og brestir þeirra og mistök eru aukin og ýkt upp, bæði til skemmtunar og aðvörunar. Heimildaskrá Clover, Carol. 2002. „Hárbarðsljóð as Generic Farce.“ The Poetic Edda, Essays on Old Norse Mythology: 95-108. Routledge, New York & London. Eddukvæði (Sæmundar-Edda). Fyrri hluti. 1949. Guðni Jónsson bjó til prentunar. íslendingasagnaútgáfan, Reykjavík. Ellis Davidson, H.R..1964. Gods and Myths of Northern Europe. Penguin books. Green, Ronald M.. 1987. „Morality and Religion." The Encyclopedia of Religion, Volume 10: 92-106. Macmillan Publishing Company, New York. Holtsmark, Anne. 1982a. „Mannjevning." Kulturhistorisk leksikon for nordisk middelalder: 325-326. Rosenkilde og Bagger. Holtsmark, Anne. 1982b. „Senna." Kulturhistorisk leksikon for nordísk middelalder: 149-151. Rosenkilde og Bagger. l'slenzk fornrit XXVI. 1979. „Heimskringla l.“ Bjarni Aðalbjarnarson gaf út. Hið íslenzka fornritafélag, Reykjavík. Jón Karl Helgason. 2002. „“Þegi Þú, Þórr” Gender, Class and Discourse in Þrymskviða.1' Cold Counsei: 159-166. Routledge, New York & London. Lindow, John. 1992. „Loki and Skaði." Snorrastefna 25. - 27. júlí 1990: 130-142. Stofnun Sigurðar Nordal, Reykjavík. Meulengracht Sorensen, Preben. 1980. Norrontnid. Odense Universitetsforlag, Óðinsvéum. Rieger, Gerd Enno. 1975. „Þrk. 20 við scolom aca tvau." Skandinavistik; 7-10. Verlag J. J. Augustin, Gluckstadt. Snorri Sturluson. 1949. Edda Snorra Sturlusonar. Guðni Jónsson bjó til prentunar. íslendingasagnaútgáfan, Reykjavík. Strömbáck, Dag. 1935. Sejd, textstudier i nordisk retigionshistoria. Carl Bloms bocktryckeri, Lundi. 107 i
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.