Mímir - 01.06.2005, Blaðsíða 123

Mímir - 01.06.2005, Blaðsíða 123
(2) „Keðjuverkandi u-hljóðvarp“. í beygingu þríkvæðra orða: a. banani - bönunum (eða banönum, sjá (6)-a); rakari - rökurum b. talaði - töluðum; kallaði - kölluðum (3) U-hljóðvarp og brottfall. a. jökull - jökli b. böggull - böggli (4) Víxl a : ö þar sem u er hvergi sjáanlegt. í beygingu: a. barn - börn; glas - glös b. grannt - grönn; svart - svört í orðmyndun: c. gat: götóttur d. galdur: göldróttur (5) Engin víxl þar sem vænta mætti. í nefnifalli karlkynsorða o.fl: a. garður (ekki *görður) b. grannur (ekki *grönnur) c. allur (ekki *öllur) d. farðu (ekki *förðu) e. barnum (ekki *bör+num) f. kaktus (ekki *köktus) í orðmyndun: g. sandugur (sbr. (10) lll-b) h. hlandugur(sbr. (10) IV-b) (6) Víxl á „óvæntum“ stöðum. a. banönum (ekki bönunum, sjá þó (2)-a) b. kartöflum (ekki *körtuflum) c. Japönum (ekki *Jöpunum) d. Aröbum (ekki *Örubum) e. afgönskum (ekki *öfgunskum) f. almanök (ekki *ölmunuk/*almönuk) Af þessum örfáu dæmum sem hér hafa verið tínd til í þeim tilgangi að sýna algeng víxl a : ö í málinu í margvíslegum orðmyndum, auk dæma um „u-hljóðvarpsleysi“ þar sem búast mætti við sömu víxlum, má við fyrstu sýn ætla að ekki sé gott að henda reiður á umdæmi u-hljóðvarpsins. Er t.d. einhver munur á tilurð ö-hljóðsins í börn og börnuml Af hverju er a í orðinu grannur en ö í grönnum? Hvað skýrir þá muninn á börnum og barnum? Hvernig má það vera að sumir segja bönunum en aðrir banönuml Hvernig stendur þá á því að við höfum ekki á sama hátt tvímyndirnar rökurum - *rakörum? Og af hverju segja allir kartöflum en enginn 'körtuflum? Svona mætti halda lengi áfram til að benda á „margbreytilega hegðun" u-hljóðvarps en þessi dæmi verða látin nægja til að sýna um hvers lags hrærigraut er að ræða sem erfitt er að átta sig á við fyrstu sýn. í næsta kafla verður fjallað um sum þessara atriða og reynt að skoða hvað hér er á ferð. 3. U-hljóðvarpsvíxl í málinu: hvers eðlis eru þau? í þessum kafla er ætlunin að varpa Ijósi á mismunandi skoðanir á því hvers eðlis u-hljóðvarpið er í raun og veru: í fyrsta lagi hvort víxl a : ö sem koma fram séu beygingarlegs- eða hljóðkerfislegs eðlis og í öðru lagi verða rakin helstu rök með og á móti því að u-hljóðvarp geti verið virkt í nútímamáli. 3.1 Hljóðkerfis- eða hljóðbeygingarreglur? Málfræðingar hafa deilt um það hvort u-hljóðvarp sé virk hljóðkerfisregla í íslensku eða hvort víxl a og ö séu beygingarlega skilyrt og hljóðlegt umhverfi ráði þá engu. Generatífistar hafa gengið út frá því að tungumál búi yfir baklægum grunnmyndum sem yfirborðsmyndirnar séu svo leiddar af með lifandi, hljóðfræðilegum og hljóðkerfislegum reglum. Eirík Rögnvaldsson má nefna sem fulltrúa íslenskra generatífista. Hann gerir ráð fyrir því (sbr. 1981, 1993) að u-hljóðvarp sé virk samtímaleg hljóðkerfisregla í málinu, þ.e.a.s. þegar u stendur í eftirfarandi atkvæði breyti það a í ö. Hann lítur einnig svo á að slík víxl geti í sumum tilvikum skýrst af beygingarlegri reglu. Eiríkur hefur skilgreint hljóðbeygingarreglur sem reglur „sem valda hljóðavíxlum og miðast við nærveru ákveðinna beygingarþátta." (1993, bls. 36). Hljóðkerfisreglur segir hann hins vegar að séu „óháðar öllum beygingarlegum atriðum [...] /a/ breytist t.d. í [ö] fyrir áhrif frá /y/ í næsta atkvæði á eftir í nafnorðum, lýsingarorðum, töluorðum, fornöfnum og sögnum; það er aðeins hið hljóðfræðilega umhverfi sem skiptir máli.“ (1993, bls. 35) í eftirfarandi beygingardæmum nafnorðs og lýsingarorðs má betur átta sig á þeim greinarmun sem Eiríkur gerir á víxlum a : ö í beygingu: (7) et. ft. kk. et. kvk. et. nf. barn börn grannur grönn þf. barn börn grannan granna Þgf- barni börnum grönnum grannri ef. barns barna granns grannrar í þgf. beggja orðanna hér að ofan má sjá að a verður að ö þegar u er í eftirfarandi atkvæði en slík víxl í nafnorðum, lýsingarorðum, töluorðum, fornöfnum og sögnum telur Eiríkur einmitt staðfesta að u-hljóðvarpið sé virk hljóðkerfisregla. Hann bendir einnig á að í langflestum tilvikum undirgangist tökuorð og nýyrði þessa reglu. 121
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.