Goðasteinn - 01.09.1998, Page 160
Goðasteinn 1998
Um Grashagann lá leiðin austur
með Jökultungum fyrir norðan Höfða
eins og sagt var og þessi leið oft valin
þegar Fjallabaksleið syðri var farin. Þá
var farið norðan við Ófæruhöfða, að-
eins austan við Utigönguhöfða, því
næst austur úr Þvergili sem er norðan
undir Sléttafelli og var þá komið í
Kaldaklof. Margt mælir með því að
þarna hafi oftast verið farið þegar
Fjallabaksleiðin var farin fyrrum.
Innan við Þverárgil, vestan við
Kaldaklof, er gil samhliða Kaldaklofi
sem heitir Eineistingsgil.
Reiðleiðin frá Krók í Hvanngil
Hverfum þá aftur fram á Krók þar
sem fyrr var frá horfið. Vað er á fljót-
inu rétt neðan við þar sem skyndibrúin
er sett sem áður er getið. Þá er komið í
suðurenda Sátu og liggur leiðin þar
austan í Sátu. Þá verður fyrir allhár og
mjór tindur neðan við hestagötuna sem
kallaður er Albertsböllur. Rétt norðan
við hann liggur leiðin niður og austur
af Sátu í átt að Torfatindi. Milli Sátu og
Torfatinds er dalur, Torfalón, sem áður
er getið og nær upp að Sátubotnum og
Jökultungum.
Þegar komið er austur undir brúnina
sunnan Torfatinds verður á vegi okkar
grasfit, Torfafit, allvel gróin að austan.
Við hana rennur Torfakvísl sem á þá
stuttan spöl eftir í Markarfljót rétt ofan
við Torfahlaup. Þar rennur Fljótið í
þröngu gljúfri norðan undir Stóra-
Grænafjalli á Fljótshlíðarafrétti. Þjóð-
saga er um að þar hafi ungur maður úr
Keldnasókn hlaupið yfir með unnustu
sína í fanginu á flótta undan föður
hennar sem ekki vildi að þau ættust.
Hljóp hann á eftir en dró ekki alla leið
yfir en náði taki á hríslu og bjargaði
strákur honum sem varð til þess að
með þeim tókust góðar sættir. Allmörg
örnefni eru kennd við Torfa en svo hét
strákurinn. Lýkur þá sögu Torfa. Þá
höldum við austur yfir Bratthálskrók
sem takmarkast að vestan af Markar-
fljóti en að austan og sunnan af Kalda-
klofskvísl. Þegar komið er upp rétt við
suðurenda Torfatinds verður fyrir okk-
ur braut eftir bíla sem kemur vestan við
Alftavatn eins og áður er getið og ligg-
ur niður að Torfahlaupi þar sem það
sést vel og gott að skoða. Liggur leiðin
nú nokkuð fyrir sunnan Torfavatn í
stefnu sunnan við Brattháls, kemur þar
fram á brekku sem liggur niður bratta
móbergsfláa, heitir þessi brekka
Klámbrekka. Neðan við brekkuna er
vel gróið ver sem heitir Stígsver við
suðurenda Brattháls. Þar suður af er
Bratthálskrókur. Þegar komið er yfir
Stígsver liggur leiðin fyrir enda Bratt-
háls og síðan inn með honum að austan
að Bratthálskvísl og yfir hana rétt þar
sem hún fellur í Kaldaklofskvísl. Þegar
komið er upp sandbrekku er rétt norðan
við hestagötuna ávöl bunga gróðurlaus
að mestu, heitir hún Tunnualda. Þaðan
er stutt leið á vesturbrún Flvanngils.
Hvanngil
I Hvanngili eru leitarmannaskálar
frá fornu fari. Fyrst komum við að
skála sem byggður var 1963. Á lofti
hans er svefnrúm fyrir fjallmenn en
-158-