Goðasteinn - 01.09.1998, Page 213
ANNÁLAR
Goðasteinn 1998
Sveitarfélög
sundlaugina á þessu ári, að auki við venju-
bundið viðhald var nokkuð um nýfram-
kvæmdir vegna öryggismála sem hafa
verið undir smásjá vegna hörmulegra slysa
við sundlaugar undanfarin ár.
I ágúst var tekin ákvörðun í hrepps-
nefnd um að byggja íþróttahús á Hellu. Var
samið við Rangá hf. um að byggja húsið.
Iþróttahúsið verður u.þ.b. 1250 fm. að
stærð og jafnframt er byggð 300 fm. tengi-
bygging við sundlaugarbyggingu. Fram-
kvæmdir við byggingarsvæðið hófust í
desember og áætlað er að íþróttahúsið
verði tekið í notkun á haustdögum 1999.
Framkvæmdir á vegum annarra en
sveitarfélagsins voru þær helstar að hjónin
Helgi Bjarni Óskarsson og Guðrún Arndís
Eiríksdóttir luku við nýbyggingu á Hellu,
þar sem þau reka veitingastaðinn Kansl-
arann ásamt verslun, söluskála og mynd-
bandaleigu. Að auki hafa þau leigt út hluta
af nýja húsinu undir hárgreiðslustofuna
Hárfínt og umboð VIS hf. Olíudreifing
ehf. reisti nýja birgðastöð við Dynskála,
Reykjagarður hf. alifuglasláturhús, var
með umtalsverðar framkvæmdir hjá sér
vegna stækkunar og fráveituframkvæmda
og byggt var við Stóðhestastöðina í
Gunnarsholti. Eignarhaldsfélagið Atgeir
ehf., sem myndað var af Atvinnuþróunar-
sjóði Suðurlands, Sjóklæðagerðinni hf. og
4 sveitarfélögum í vestanverðri Rangár-
vallasýslu, keypti fyrirtækið Max hf. og
húsnæði að Dynskálum 8 á Hellu. Fram-
kvæmdir við húsnæðið stóðu yfir í lok
ársins og fyrirhugað var að rekstur sauma-
stofu myndi hefjast upp úr áramótum með
störfum fyrir allt að 15 manns. Jafnframt
stóðu yfir framkvæmdir við byggingu
a.m.k. tveggja einbýlishúsa.
Umhverfisverðlaun
Að tillögu umhverfisnefndar Rangár-
vallahrepps voru veittar viðurkenningar að
áliðnu sumri eins og undanfarin ár vegna
góðrar umgengni og snyrtimennsku. Vegna
70 ára byggðarafmælis Hellu voru veittar
fleiri viðurkenningar en áður. Eftirtaldir
hlutu viðurkenningu að þessu sinni:
Helga Garðarsdóttir og Þorsteinn Sig-
fússon fyrir Kornbrekkur.
Dóra Sjöfn Stefánsdóttir og Óskar
Jónsson fyrir Nestún 11 á Hellu.
Guðrún Dröfn Ragnarsdóttir og Ragnar
Pálsson fyrir Ártún 5 á Hellu.
Ásta Magnúsdóttir og Magnús Giss-
urarson fyrir sumarbústaðinn Hellisnes í
Ketlu.
Vistheimilið Gunnarsholti fyrir átak í
útliti húsa og á umhverfi staðarins.
Eftirtaldir hlutu sérstaka viðurkenningu
fyrir áralanga snyrtimennsku og góða
umgengni:
Þórunn Jónasdóttir og Guðni Jónsson
fyrir Laufskála 3 á Hellu.
Áslaug Jónasdóttir og Jón Óskarsson
fyrir Laufskála 6 á Hellu.
Ymislegt
Skólahald á Hellu gekk hefðbundið og
vel fyrir sig að venju. Fyrir utan fram-
kvæmdir við nýbyggingu sem þegar hafa
verið tíundaðar má nefna að tölvukostur
við skólann var endurnýjaður og nokkurt
viðhald fór fram við eldri byggingar og
búnað.
Atvinnuleysi var með minnsta móti á
árinu og hefur reynst nokkuð örðugt fyrir
fyrirtækin að manna störf hjá sér á köflum.
Sameining slökkviliða í sýslunni var
nokkuð til umræðu á árinu, en ekki var
komin niðurstaða í árslok.
Umræða um sameingarmál sveitarfé-
laga var einnig nokkuð á döfinni, en engar
marktækar viðræður um slíkt voru hafnar í
lok ársins.
Hreppsnefndin hélt borgarafund í des-
ember, mæting þar var frekar slök, eða ein-
ungis u.þ.b. 40 manns.
Oli Már Aronsson, oddviti.
-211-