Goðasteinn - 01.09.1998, Page 249
ANNALAR
Goðasteinn 1998
íþróttafélög
rún Björnsdóttir. Besta afrek í frjálsum
íþróttum átti Irena Sólveig Steindórsdóttir,
hún stökk 2.20 m í langstökki án atrennu á
Rangæingamóti innanhúss í desember og
gefur það 1030 stig.
Viðurkenningar 10 ára og yngri hlutu
Kári Rafn Þorbergsson, Helga Sæmunds-
dóttir og Sunna Björg Bjarnadóttir. Andri
Freyr Björnsson, Björk Grétarsdóttir og
frena Sólveig Steindórsdóttir í flokki 11-12
ára, Ingi Hlynur Jónsson og Telma Björk
Fjalarsdóttir í flokki 13-14 ára, Jón Hans-
son og Bergrún Björnsdótir í flokki 15-16
ára og Elfa Rún Arnadóttir í tlokki 17-18
ára. Einnig fékk körfuboltalið Heklu
viðurkenningu vegna góðrar ástundunar og
góðs gengis í vetur.
Umf. Hekla er 90 ára á þessu ári og af
því tilefni var á aðalfundi tlutt stutt yfirlit
um starf félagsins frá upphafi. I lok fundar
var síðan boðið í kaffi.
Umf. Hekla sá ásamt íþróttafélaginu
Garpi um Rangæingamót í frjálsum íþrótt-
um utanhúss á Hellu 23.-24. ágúst. Félagið
var efst í stigakeppni 16 ára og yngri á því
móti og einnig á Rangæingamóti innan-
húss í desember í sama flokki. Innan-
félagsmót var haldið í mars og Umf. Sel-
foss og Umf. Hekla kepptu á Selfossi 23.
júlí í flokkum 14 ára og yngri.
Þjálfari í sumar var Sigríður Anna Guð-
jónsdóttir, en í vetur hefur Guðmundur
Rúnar Helgason séð um frjálsíþrótta- og
fimleikaæfingar.
Steindór Tómasson hefur séð um körfu-
boltaæfingar drengja og Guðrún Elín Ingv-
arsdóttir um körfuboltaæfingar stúlkna.
Umf. Hekla tók þátt í kyndilhlaupi í
maí, og í júní var leikjanámskeið. Einnig
sá félagið um kvennahlaupið 15. júní sl.
Síðastliðinn vetur stóð félagið fyrir
námskeiði í línudansi, einnig sá félagið um
skákkennslu fyrir yngri kynslóðina.
Aðalfjáröflun ársins var ruslatínsla á
Töðugjöldum á Hellu og dósasöfnun.
Kristín Bragaclóttir
Ungmennafélagið Ingólfur
Stjórn félagsins skipa: Þröstur Guðna-
son formaður, Kristinn Guðnason gjaldkeri
og Ragnheiður Jónasdóttir ritari.
Starf félagsins var svipað og undanfarin
ár, mest í félagslegum og umhverfislegum
nrálefnum. Sem sagt - ræktun lýðs og
lands.
Unglingar hreinsuðu rusl meðfram
aðalvegum í sveitinni, en það hefur verið
árvisst verk nokkuð lengi. Er það nú létt
verk þar sem rusl safnast ekki upp milli ára
og fer jafnvel minnkandi ef eitthvað er.
Félagið hélt hið árlega leikjanámskeið
að Laugalandi í samstarfi við Ungmenna-
félagið Merkihvol. Þátttaka var mjög góð
eins og undanfarin ár. A þjóðhátíðardag-
inn var haldin árleg skemmtisamkoma á
flötunum við Kampsrétt á Lýtingsstöðum.
Þar þreyttu menn meðal annars ýmsar
kúnstir á hestum.
Göngudagur fjölskyldunnar var haldinn
á sjösofendadegi þann 27. júní í hægu en
hálf þungbúnu veðri, svo að ekki komu
allir sem höfðu ætlað sér. Þrátt fyrir það
voru á tjórða tug manna saman komnir á
hlaðinu í Húsagarði. Ekið var sem leið lá
inn í Réttarnes og Landréttir skoðaðar
undir leiðsögn Ásgeirs Auðunssonar á
Minni-Völlum, en þar hefur ekki verið
réttað fé síðan Hekla gaus 1980. Síðan var
gengið upp á hraunbrúnina sem réttirnar
standa sunnan undir og upp með Árgili
sem Rangá fellur um austan hraunsins.
Lítið fór fyrir formlegheitum í félaginu á
árinu og því engir skráðir fundir.
Þröstur Guðnason
-247-