Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Page 30

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Page 30
29 B Vísnakver dregið í dagsljós Þorsteinn Erlingsson – Páll Ólafsson Þórður Tómasson Byggðasafnið í Skógum nýtur þeirrar sæmdar að varðveita í sýningu skrifstofu Þorsteins Erlingssonar skálds, með búnaði hennar og bókasafni. Uppsetning hennar eftir ljósmyndum var mér heiður og gleði í safnstarfi. Nú árið 2017 ganga flestir safngestir framhjá henni án þess að hún snerti hjá þeim nokkra nýtilega taug. Snillingurinn Þorsteinn, sem vakti svo mörgum yndi með ljóðum sínum fram um æskudaga mína, hefur horfið í skuggann við hrun gamallar þjóðmenningar. Ég minnist svo margra gleðistunda þar sem ljóðasöngur lyfti mönnum í hæðir. Brjóstmynd Þorsteins, gerð af Ríkarði Jónssyni listamanni, rís á brekkubrún bak við Skógaskóla. Varla nokkur maður gefur henni gaum. Við uppröðun á bókasafni Þorsteins varð fyrir mér handskrifað vísnakver hans, stráð vísum og kvæðum eldri og yngri skálda frá öllum landshlutum. Glöggt er að Þorsteinn hefur fært efnið á kverblöð hvað eftir sem honum barst það og mjög mikið er skráð eftir minni manna. Ég held að kverið hafi aldrei komist í færi við þá sem í fræðasýsli sóttu að bókmenntaarfi þjóðarinnar. Það hefur fjölmargt markvert fram að færa. Um ljóð meistarans Þorsteins lætur það ekkert í té. Páll Ólafsson á þar stærstan hlutann og kverið bregður nokkurri birtu á skáldskap hans og efstu ár. Ég fagnaði þessum fundi. Páll Ólafsson var mér líkt og handgenginn allt frá æsku. Móðir mín Kristín Magnúsdóttir, f. 1887, var alin upp á Ysta-Skála undir Eyjafjöllum hjá Kristínu dóttur séra Björns Þorvaldssonar í Holti (1807–1874), áður á Stafafelli í Lóni. Sr. Björn og Páll voru málvinir góðir. Páll átti einatt viðstöðu á Stafafelli í æsku Kristínar og sjálf dvaldi hún um skeið á Ketilsstöðum á Völlum. Hún braut oft í blað með hve glatt var í húsi þar sem Páll var gestur og oft söng hún við rokkinn á Ysta-Skála ljóð Páls: „Gott áttu hrísla á grænum bala.“ Móðir mín kunni ljóðið, lagið líka. Það loðir enn í minni mínu. Aldrei fór Páll framhjá Holti í Reykja- víkurferðum án þess að koma þar við og þar keypti hann uppáhalds reiðhross sitt, Stjörnu, víðfræga í ljóðum. Þorvaldur sonur Björns seldi og sr. Björn sagði við hann: „Varaðu þig á honum Páli Ólafssyni að hann fari ekki með hana Jórunni þína næst.“ Kona Þorvaldar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.