Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Page 75

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Page 75
74 Múlaþing Ekki verða talin upp ritverk hennar í þessari samantekt en er hægt að nálgast í mörgum greinum sem skrifaðar hafa verið um hennar líf og ritstörf. Guðrún varð bráðkvödd á heimili sínu 906 Banning Street, mánudagskvöldið 25. mars 1946. Fáum mínútum áður höfðu hjónin verið að ráðgera að gefa út allar þær sögur sem hún ritaði eftir að Hillingalönd hennar komu út árið 1938. Gísli sá einn um þá útgáfu og nefndi hana Dagshríðar spor (Jakob Jónsson, 1950). Einar Páll (1950) segir að Guðrún átti fjölmennan aðdáendahóp út frá því að hún var kærleiksrík vorsál. Í minningargrein um Guðrúnu Finnsdóttur í Tímanum miðvikudaginn 15. maí 1946 fer Einar Páll Jónsson bróðir Gísla yfir lífshlaup hennar: „Frú Guðrún H. Finnsdóttir stóð í fremstu röð íslenzkra smásagnahöfunda. Hún vann stofnþjóð sinni ómetanlegt gagn með ritverkum sínum, er brugðu upp ljósum myndum af aðstæðum, andlegum og efnis- legum, þeirra íslenzkra manna og kvenna, er kvatt höfðu heimahaga og tekið sér ból- festu erlendis. Hún hafði óvenju skarpa innsýn í sálarlíf þeirra persóna, er hún í sögum sínum klæddi holdi og blóði, og skipaði þeim til sætis með kærleiksríkri samúð. Hún var skáld af guðs náð. Auk skáldgáfunnar svipmerktist líf Guðrúnar af óbifandi vinfesti og fágætri röggsemi í hússtjórn.“ Guðrún H. Finnsdóttir rithöfundur Yfir þínu æviskeiði eldar brunnu dag og nótt; heimaunnin uppistaðan ívafið í fortíð sótt. Breiður var og útskyggn andi ofið glæst þitt ritna mál; þú varst úti til æviloka ung og tigin vökusál. Þér var ungri í blóð þitt borið bjargföst trú á lands þíns mennt, og um okkar frægu feður fjöldamargt í æsku kennt. Orðsins list frá arni Snorra yfir þínum störfum brann. Vaxtaþrá þíns innsta eðlis aldrei nokkur takmörk fann. Fangbreið var þín móðurmildi margir gistu bæinn þinn; þaðan streymir ávalt andi ylríkur um huga minn. Þitt var yndi alla daga: eyða skuggum, bæta kjör; fáir áttu í orðum meiri andagift né snillisvör. Æðsta lögmál lífs og þroska lætur sálir fylgjast að; máttug Helja, mannsins fylgja, megnar ei að rjúfa það. Lífsins sól rís upp af unnum eftir þungra drauma nótt, fagurlýsir dánardjúpin dimm, og veitir öllu þrótt. Fóstran vestræn vorsins örmum vefur þig að barmi sér; þú gafst henni æviátök, eitthvað þér í staðinn ber. Þó að lífið lifi alla, líka dauðinn heimtar sitt. Fram um ár og aldaraðir Ísland blessar nafnið sitt. Einar P. Jónsson, 1946.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.