Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Page 105
104
Múlaþing
getið virðist Eyvindur hafa farið ytri leiðina
(Bessagötur) til Aðalbóls. Myndi þá leið hans
hafa legið í gegnum skarðið á milli fjallanna
(Fjallaskarð) og þar hafi Eyvindartorfa verið.
Virðist þá ekki fjarri lagi að gefa fjöllunum
sitt hvoru megin Eyvindarnafn og síðan ánni
og dalnum það sama.
Þá er næst að víkja að þeirri fullyrðingu
Sigurðar, að Hrafnkelsdalur hafi ávallt verið
nærri óbyggilegur og þar hafi aldrei verið nein
byggð að ráði og sennilega lagst af þegar á
þjóðveldisöld.
Verður í þessu sambandi að rekja byggða-
sögu dalsins í stórum dráttum. Hrafnkelssaga
segir að Hrafnkell byggði allan dalinn, sem
var óbyggður er hann kom þangað. Sagan
getur þó ekki um fleiri en fjögur bæjanöfn í
dalnum semsé: Aðalból, Hól, Leikskála og
Laugarhús, en ráða má af sögunni að þeir
hafi verið allmiklu fleiri eða ekki innan við
10 talsins. Í Brandkrossa þætti segir að þar
hafi verið nær 20 bæir og er þó öll frásögnin
þar tekin upp eftir Landnámu eins og sagt var.
Ekki finnst mér ósennilegt, að Brandkrossa
þáttur fari hér með rétt mál, enda ætti höfundi
hans að hafa reynzt auðvelt að fá örugga vit-
neskju um þetta atriði.
Einhver skekkja er þó í þessu, því eins
og segir í sögunni var Jökuldalur albyggður
upp að brúm þá er Hrafnkell kom þar fyrzt,
og síðan byggði Hrafnkell allan Hrafnkelsdal.
Nú er það alkunna að fyrr á öldum náði byggð
í Jökuldal og Brúardölum langt vestur fyrir
Brú. Ekkert er líklegra en að þar hafi einmitt
myndast nokkur byggð þá þegar á dögum
Hrafnkels og að sjálfsögðu hefur hann gerzt
goði þeirra sem og annarra Jökuldalsmanna.
Hafi nú 10 þessara býla verið í dalnum
sjálfum, en 7-8 norðan Jökulsár er frásögn
þáttarins ekki svo fjarri lagi.
Brúin sem vitað er að var á Jökulsá til forna
hefur síðan tengt þessi byggðarlög saman
og var þar með komin nógur fjöldi bæja í
heila kirkjusókn og er þá gert ráð fyrir að
efstu bæir á Jökuldal utan Brúar hafi fylgt
þar með. Engar öruggar heimildir eru þó til
um kirkju í Hrafnkelsdal, en þjóðsögur geta
um kirkju á Bakkastað. Það örnefni er ennþá
Örnefnið Laugarhús er þekkt úr Hrafnkelssögu. Þar eru nú fjárhús frá Aðalbóli. Ljósmyndari og eigandi myndar:
Skarphéðinn G. Þórisson.