Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Page 109
108
Múlaþing
sambandi. Þeir sem þetta hafa lesið munu e. t.
v. álíta sem svo, að ég telji sannfræði sögunnar
á svo traustum grundvelli, að í engu verði
hnikað. Þessu er þó engan veginn þannig farið.
Því er ekki að leyna að á sögunni eru hnökrar
sem hæpið er að fái staðist. Engan veginn
verða þeir þó að teljast vera stórvægilegir og
breyta litlu um hinn eiginlega söguþráð. Engu
að síður eru þeir til lýta og því þykir rétt að
geta sumra þeirra hér.
Ég vil þá fyrzt nefna frásögnina um hestinn
Freyfaxa. Hversu hann stóð kyrr er önnur hin
hrossin voru ,,skjörr“ og hljóp svo heim á
Aðalból og sagði Hrafnkeli frá. Þetta minnir
mig einna helzt á þjóðsögur er gengu af Eiríki
í Vogsósum, er hann galdraði stráka fasta við
bakið á hestum þeim er þeir riðu í óleyfi hans.
Þrátt fyrir þann mikla ósanninda blæ sem er á
þessu atriði sögunnar, telur Sigurður að höf-
undur sögunnar hefði getað haft lifandi dæmi
fyrir sér og nefnir í því sambandi einhverja
skröksögu af hesti á síðustu árum sem væri
eitthvað lík Hrafnkelssögu. Því miður hef ég
ekki getað komizt að hinu sanna um þetta, en
undarlegt er það, að einmitt það atriði sem
virðist með mestum ólíkindablæ í allri sögunni
skuli höfundur greinarinnar Hrafnkötlu telja
næstum það eina í sögunni er fái staðist.
Annað atriði virðist skjóta nokkuð skökku
við, við almenna söguskoðun, en það er að
sagan segir að um það leyti sem Hrafnkell
fór að koma fótunum undir sig á Hrafnkels-
stöðum, hafi í þann tíma komið sem mest skip
af Noregi til Íslands og námu menn þá sem
mest land á Héraði. Nú segir Landnáma að
Hrafnkell hafi komið út síð landnámstíðar sem
og má ráða af sögunni. Vitað er, að þeir Graut-
Atli og Brynjólfur gamli voru á undan Hrafn-
keli og höfðu lagt undir sig lönd á svipuðum
slóðum á Héraði að sögn Landnámu. Vitað
er að hinir fyrztu landnámsmenn slógu eign
sinni á miklar víðáttur en síðar þéttist byggðin
á þeim. Ekki er fullvíst hvenær byggð tók
að þéttast á Fljótsdalshéraði og mætti það
vel hafa gerzt síð landnámstíðar. Móti þessu
mælir að sagan telur Jökuldal vera orðinn
albyggðan upp að brúm á dögum Hrafnkels.
Sé þetta rétt, en að Héraðið hafi þá verið minna
byggt, er skýringin líklega sú að mönnum hafi
fundizt Jökuldalur byggilegri. Þetta kann að
Laxárdalur upp af Fossvöllum í Jökulsárhlíð. Ljósmyndari og eigandi myndar: Skarphéðinn G. Þórisson.