Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Page 61

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Page 61
60 Múlaþing Breysk varstu brynjuð beztu kostum, og í hvívetna Héraðsprýði. (Heimild: Helgi Hallgrímsson, 1994.) Hver var Bergþóra Helgadóttir á Geirólfsstöðum? Bergþóra var fædd á Geirólfsstöðum 2. mars 1852. Það eru nokkrar heimildir til í tímaritum um sögu Bergþóru Helgadóttur. Ónefndur höfundur skrifar í tímaritið Óðinn árið 1924 grein um þau hjónin Bergþóru og eiginmann hennar Finn Björnsson. Finnur var fæddur 20. desember 18512. Árið 1880 gengu Finnur og Bergþóra í hjónaband og hófu búskap á Geirólfsstöðum. Hann var mikill hvatamaður að stofnað væri búnaðarfélag í hreppnum og var í stjórn þess frá byrjun og alveg til dauða- dags. Hann gegndi fleiri ábyrgðarstörfum og var formaður sóknarnefndar þegar hann lést. Hann var vel hagur maður, bæði á járn og tré, og voru þau vik og greiðar ótaldir sem hann lét grönnum sínum í té á því sviði, oft fyrir lítið gjald eða ekkert (Óðinn, 1924). Alþekkt var það og að ef einhver hinna fátækari bænda sveitarinnar þurfti að byggja upp hjá sér eða ef einhver varð fyrir vinnu- tjóni fyrir sjúkdóm eða óhöpp, þá varð Finnur jafnan manna fyrstur til að stinga upp á, að hlaupið væri undir bagga af sveitungum og veitt ókeypis hjálp. Lundin var létt og góð, átti til kímni og glettni, er svo bar undir, en þó góðlátlega svo að jafna fór vel á. Oft brosti Finnur, þegar aðrir hefðu þráttað, enda var jafnaðargeðið og stillingin, á hverju sem gekk, eitt af einkennum hans (Óðinn, 1924). 2 Á heimsíðunni www.islendingabok.is má sjá að Finnur Björns- son var fæddur þann 23. desember. En í manntalinu og í grein- inni í tímaritinu Óðni er gefinn upp fæðingardagurinn 20. des- ember. Bergþóra er fædd skv. sömu tímaritsgrein 20. mars en 2. mars skv. manntalinu og heimasíðunni www.islendingabok.is. Bergþóra Helgadóttir var rétt um þremur mánuðum yngri en Finnur. Hún var alin upp á Geirólfsstöðum, fyrst hjá foreldrum sínum og síðar hjá móður sinni, eftir að hún varð ekkja, þangað til hún giftist Finni 1880. Í tímaritinu Óðinn (1924) er persónulegum einkennum Bergþóru lýst vel: „Bergþóra var mjög vel gefin kona, skör- ungur í lund og að allri gerð. Sótti hún það sjálfsagt til móður sinnar og móðurafa, Sigurðar hreppstjóra á Mýrum, sem var afburðamaður á sinni tíð og mesti merkis- bóndi. Bergþóra var ekki síður vel verki farin á kvenna vísu, en Finnur á karla, nema fremur væri, enda ein af allra fremstu konum Fljótsdalshjeraðs á sinni tíð um alla handavinnu kvenna. Auk þess var hún fróð kona og fræðigjörn, og einkum mjög vel heima í sögu og ættfræði, eins og móðir hennar. Bergþóra var höfðingi í lund og að risnu, sem hvorugt gat leynst, þó að þröngur efnahagur og erfið aðstaða væru henni oft fjötur um fót. Hún var frændrækin kona, vinföst og hollráð, vönd mjög að virðingu sinni og sinna og frábitin öllu tildri… Það er jafnaðarlegast húsmóðurin, sem heimilið tekur svip sinn og blæ frá. Og það var líka eins og ríklyndi og mikillæti Bergþóra og Finnur á Geirólfsstöðum. Myndin er fengin úr tímaritinu Óðinn frá 1924.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.