Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Page 96

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Page 96
95 H Um sannfræði Hrafnkelssögu Agnar Hallgrímsson Hrafnkelssaga er eitt af öndvegisverkum íslenzkra fornbókmennta. Að sam- setningu er sagan meistaraverk. Hún er ,,hrein perla meðal ættarsagnanna“, eins og Finnur Jónsson kemst að orði um hana. Óþarft mun að rekja efni þessarar sögu, svo kunn er hún flestum Íslendingum, enda er efni hennar á þann veg að það festist vel í minni og verður mönnum hugstætt. Meðal annars af þessari ástæðu var það lengi vel trú manna, að Hrafnkelssaga væri ein hin áreiðanlegasta af Íslendingasögum, þannig að margir mátu hana meira en aðrar sögur, þar sem þær greindi á. Af fylgjendum þessarar kenningar má nefna fræðimenn eins og Guðbrand Vigfússon, svo og þá Finn Jóns- son, Boga Th. Melsteð og Björn M. Ólsen, auk þess erlendu fræðimennina eins og t.d. Knut Liestöl. Sumir þessara manna, t.d. Finnur Jónsson og Björn M. Ólsen töldu þó að sagan væri að nokkru leyti höfundarverk. Engu að síður hefðu höfundar eða ritarar sögunnar haldið sig fast við sannsögulegar heimildir, enda þótt rjátlað hefði verið við efnið í með- ferð skrásetjaranna. Allir voru þessir fræðimenn því fylgjandi sagnfestukenningunni svonefndu, sem gerði ráð fyrir að sögurnar hefðu varðveizt í munn- legri geymd, allt þar til þær voru skrásettar. Segja má, að þetta hafi verið ríkjandi skoðun fræðimanna innlendra sem erlendra allt fram til ársins 1940. Það ár markar mikil þáttaskil hvað snertir viðhorfið til sannleiks- gildis Hrafnkelssögu og Íslendingasagna almennt. Þetta ár kom út í safninu Studia Islandica ritgerð Sigurðar Nordals prófess- ors, sem hann nefndi Hrafnkötlu. Kver þetta innihélt allnýstárlegar kenningar um uppruna og sannindi sögunnar, sem mörgum kom á óvart. Höfundur segir sjálfur í inngangskafla að skoðanir þessar muni ekki einungis brjóta í bága við trú flestra fyrri fræðimanna og almennings á Íslandi um sannindi sögunnar og traustleika hinna mögulegur sögusagna, sem nú séu ríkjandi meðal erlendra fræðimanna og meðferð sagnaritaranna á efninu (sbr. bls. 6). Samt telur höfundur, að ekki verði lengur hjá því komizt að leiða þjóðina í allan sann- leika um sannindi helztu Íslendingasagna og kveðzt hafa valið Hrafnkötlu í þessu skyni enda þótt það sé sú Íslendingasaga, sem hann hafi hingað til talið einna sannorðasta í efnis- meðferð.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.