Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Page 107

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 2020, Page 107
106 Múlaþing dal munu sammála um að á þessum stað sé bæjarstæði ákjósanlegast í öllum dalnum. Því leikur ekki vafi á því að þar hefur Hrafnkell búið, þar sem hann átti úrval alls dalsins. Allar sögusagnir um Steinröðarstaði, er verið hafi annars staðar hljóta því að vera tilbúningur. Nú hafa sumir viljað færa Aðalból sögunnar inn á svonefndan Glúmsstaðadal (afdal inn úr Hrafnkelsdal) og telja að það komi betur heim við frásögn sögunnar. Öll sagan ber það með sér, að Aðalból er stað- sett einhvers staðar í miðjum dalnum, sem er reyndar rétt miðað við nútímann. Örnefnið Tobbhóll hefur líka varðveizt gegnt undan Aðalbóli nútímans. Þegar Hrafnkell segi við Einar, að hann skuli gæta ásauðar í seli og að Freyfaxi gangi í dalnum fram, er auðsætt að hann á við dalina tvo innfrá er heita nú Glúms- staðadalur og Þuríðarstaðadalur enda eru kunn fleiri örnefni þar innfrá (Grjótá o.s.frv.) sem benda ótvírætt til þess, að selið hafi ekki verið þar sem hét Aðalból. Ég nefni hér nokkur dæmi þessu til styrktar: 1 ,, …síðan var fært í sel frammi á Hrafn- kelsdal, þar sem heitir Grjótteigssel…“. 2 ,, …hesturinn hleypur ofan eftir dalnum til Aðalbóls…“. 3 ,, …morguninn eftir lét hann [Hrafnkell] taka sér hest og leggja á söðul og ríður upp til sels…“. Auðséð er að hér er um alllangan veg að fara. Það sem vantar helzt uppá að hafa Aðalból þar sem það er núna, er að engin Freyfaxahamar er þar nálægt, hans sé fyrzt að leita þar innra. Ég tel þó hæpið að taka frásögn sögunnar bókstaflega um þetta enda gat þessi villa hafa komist inn í handrit síðar meir. Nú segir sagan að Freyfaxi gekk á dalnum fram með liði sínu. Það verður því að gera ráð fyrir að Þjóstarsynir hafi orðið að gera sér ferð á hendur inn á dalinn til að geta séð þennan örlagagrip. Hvað er þá eðlilegra, en að þeir hafi notað þann hamar sem nálægastur var til þess að fyrirfara honum. Þetta finnzt mér a.m.k. sennilegri skýring en sú, að Hrafnkell hafi búið inni í afdal, þar sem aldrei var víst að annað en sel. En fyrzt minnst er á Freyfaxa er ekki fjarri lagi að geta þess, að Sigurður telur ósennilegt að Hrafnkell hafi nefnt sig Freysgoða, en í Landnámu er hann aðeins nefndur goði og í Njálssögu og Brandkrossa þætti hefur hann ekkert viðurnefni, og því auðsætt að Freys- dýrkun hans hafi verið uppspuni. Því er til að svara, að margar sagnir eru til um Freysdýrkun að fornu og má þar nefna Freysgyðlinga, sem voru afkomendur Þórðar Össurarsonar. Það þarf engum að koma á óvart þótt þessa sé ekki getið í Landnámu þegar þetta er haft í huga. Það finnst mér renna nokkrum stoðum undir frásögn sögunnar, að af þeim Freysörnefnum í landinu eru tvö á Fljótsdalshéraði. Er annað þeirra bærinn Freyshólar, sem var hjáleiga frá Hafursá og í goðorði Hrafnkels. Hitt er Freysnes við vestanvert Lagarfljót í Fellum. Í Freysnesi var að fornu þingstaður (vorþing), og er því ekki ólíklegt, að sá staður sé eitthvað tengdur við goðann á Aðalbóli, eða einhverja af afkomendum hans, enda þótt sagan segi, að hann legði Freysdýrkun af er hann hrökklaðist frá Aðalbóli. Verið getur að hann hafi tekið hana upp aftur er velgengni hans jókst. Slíks eru mörg dæmi og felst reyndar í mannlegu eðli. Þingstaðinn í Freysnesi hef ég sjálfur skoðað og gert uppdrátt að. Greinilega mátti sjá hleðslur þar eftir búðatóftir og önnur mann- virki. Þarf því ekki að efast um, að þarna voru goðar að verki fyrir kristnitöku sem héldu upp á landbúnaðarguðinn Frey. Sögurnar um meðferð Þjóstarsona á goða- húsi Hrafnkels telur Sigurður alveg fráleita, þar sem það stóð engum nær en Sámi að halda uppi hofi og blótum sem arftaki Hrafnkels. Því er til að svara að í fyrsta lagi er lítið vitað um hof og goðadýrkun til forna, og bendir reyndar til þess að þau hafi ekki ávallt verið miklar byggingar. Í öðru lagi verður að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.