Lögfræðingur - 01.01.1899, Blaðsíða 109
Erfíiaábúi\ sjálfsábúð og loiguábúð.
10!)
vænlegri til búnaðarframfara, en sjálfsábúð*'). í þessari
nefnd voru menn, sem enginn vafi er á, að eru með skyn-
sömustu mönnum og fróðustu um búnað hjer á landi, og
þó er þetta ekki nema háífur sannleiki. Framfarir í land-
búnaði geta vel átt sjer stað, ef leiguábúðinni er komið
fyrir á heppilegan hátt. futnnig stendur landbúnaður á
Englandi á nijög háu stigi, og þó erti leiguliðar þar sex-
falt fieiri, en sjálfseignarbændur1 2). A þ>ýskalandi erleigu-
liðabúskapur einnig í góðu lagi, og svo segir vísinda-
maðurinn v. d. Goltz: «Leigujarðir eru, að minnstakosti
nú sem stendur, þær jarðir á jþýskalandi, sem eru best
setnar, og að menningu og framtakssemi standa leiguliðar
raeðal fremstu bænda»3). f>etta bendir á að leiguliða-
búskapur þurfi eigi að vera óvænlegur til búnaðarframfara.
Mjög er óvíst, hvort vjer værum betur farnir, þótt allir
bændur á þessu landi væru í einu vetfangi orðnir sjálfs-
eignarbændur og enginn leiguliði. f*að er að vísu enginn
efi á, að það væri betra að hafa efnaða sjálfseignarbændur,
heldur en fátæka leiguliða, en hitt er mjög mikið efamál,
hvort betra væri að hafa sjálfseignarbændur, sem væru
jafn fátækir sem leiguliðarnir; sjálfseignarbændur, sem að
eins ættu jarðir sínar að nafninu, eu væru skuldum hlaðnir
og skuldum háðir.
Búnaður hjer á landi stendur á lágu stigi fyrir fá-
tækt landsmanna og þekkingarleysi á búnaðarmálum.
J*etta er nóg til að gefa mönnum hugmynd um, að bún-
1) Al|>. tíð. 1895. C. bls. 505.
2) A. Eraenkel, Landbiugskrisen. Khavn. 1896. bls. 46 —47.
3) Ereiherr Th. von d. Gioltz, Landwirtschaft í Schönbergs,
Handbuch der politischen Oekonomie. 4. Auft. Túbingen.
1896. II. 1. bls. 89.