Eir - 01.07.1900, Síða 10

Eir - 01.07.1900, Síða 10
122 praktiserandi læknir árið 1837, og höfðu sýslubiíar lofað hon- um 200 ríkisdala þóknun á ári. Sýslumaður Húnvetninga Björn Blöndal sótti sama ár um það til stjórnarinnar, að skipaður væri læknir í Húnavatnssýslu með 100 ríkisdala laun- um úr ríkissjóði gegn því að sýslubúar legðu fram annað eins. Eftir talsverðar bréfaskriftir um þetta mál, hafðist það þó upp úr þessu, að 100 ríkisdali mætti borga úr jarðabókasjóði ís- lands þeim manni, sem Húnvetningar vildu að tækist á hendur læknisstörf í sýslunni með þvi skilyrði, að sýslubúar sjálfir gæfu lækninum að minsta kosti 100 ríkisdala þóknun, en skyidur ætti læknirinn að vera til þess að gegna að vetrinum allri Skagafjarðarsýslu og á sumrin þeim parti sýslunnar, sem lægi vestan Héraðsvat.na. Samkvæmt þessu var Jósep síðan prakti- serandi læknir á þessu svæði, þangað til loksins að Skaga- fjarðar- og Húnavatnssýslur voru 1856 teknar undan hinu gamla læknishéraði, sem náði yflr Norðlendingafjórðung og gerðar að umdæmi sér, er Jósep Skaftason fékk veitingu fyrir sama ár. Þegar Hjaltalin var orðinn hér landlæknir, sá hann skjótt, hversu læknaskorturinn var mikill og þareð fáir íslendingar stunduðu læknisfræði víð háskólann í Khöfn, tók hann það ráð, að vekja upp aftur að nýju innlenda læknakenslu. Samkvæmt embættisbréfi hins fyrsta landlæknis Bjarna Pálssonar var honum gert að skyldu að kenna hér læknis- fræði, og byrjaði hann á því skömmu eftir að hann kom hingað út; eftivmaður hans, Jón Sveinsson, hélt þvi áfram, en úr ^ því hans misti við, fór að draga úr læknakenslunni og um 1820 verður langt hlé á henni. Hjaltalín fór þess á leit við stjórninaárið 1860 aðhann mætti taka nokkra pilta til kenslu í læknisfræði. Var það leyft, en þó voru kenslunni sett of þröng takmörk. Árið eftir (1861) kom læknaskipunarmálið til umræðu á Alþingi, og var konungi send bænarskrá um, að landlæknirinn mætti veita stúdentum kenslu i læknisfræði eftir reglum, sem landlækni og heilbrigðisráðinu í Khöfn kæmi saman um. Gekk þetta fram á næsta ári (1862). Við þetta stóð þangað til á Alþingi 1867. Pá bar Hjaltalín fram þá uppástungu, að stofnaður væri

x

Eir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eir
https://timarit.is/publication/36

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.