Eir - 01.07.1900, Page 14
126
fjárlögunum 1888 og 1889 veitti þingið árlegan styrk til 5
aukalækna á þessum stöðum: 1. í Dalasýslu og Bæjar-
hreppi í Strandasýslu þar kom læknir 1890 (Sigurður Sig-
urðsson). 2. á Seyðisfirði ásamt meðMjóafirði, Loð-.
mundarfirði og Borgarfirði; þar kom læknir 1888 (Guðm.
Sclieviug). 3. á Skipaskaga á Akranesi moð 4 syðstu
hreppum Boj garfjarðarsýslu; þar kom læknir 1886 (Ólafur
Guðmundsson). 4. í Dyrhólahreppi og Eystri og Vestri
Eyjafjallahreppum; þar kom læknir 1887 (Stefán Gislason).
5. í Dýrafirði ásamt Önundarfirði, Siigandafirði og
Arnarfirði; þar kom læknir árið 1888 (Oddur Jónsson).
í fjárlögunum 1892 og 1893 var enn bætt við fjárveiting
til aukalæknis í ÍMngeyjarsýslu fyrir austan Jökulsá;
þar kom læknir 1890 (Björn Blönal) og ennfremur tii auka-
læknis i Ólafsvík með vesturhluta Snæfellsnessýslu;
þar kom læknir 1892, (Gísli Péturson).
í fjárlögunum 1894 og 1895 var enn bætt við þessum
aukalæknishéruðum: 1. Hérað ið mi 11 i S t r a u m f j arð a rá r í
Hnappadalssýslu og Langár á Mýrum; þar kom læknir
1894 (Friðjón Jónsson) 2. Eyjahreppur og Múla-og Gu fu-
dalshreppar í Barða strandasýslu; þar kom læknir
1897 (OddurJónsson). 3.Breiðdals- Beruness- og Geitlands.
hreppar í Suðurmúlasýslu; þar kom læknir 1897 (Ó. Thor-
lacius). 4. Grunnavíkur- og S léttuhreppar í ísafjarð.
arsýslu; þar er enn iæknislaust. 5. Strandasýsla; þar
kom læknir 1897 (Guðmundur Scheving). 6. Grýtubakka-
Háls- og Ljósavatnshreppar; þar kom læknir 1894 (Sig-
urður Hjörleifsson). í fjárlögunum 1896 og 1897 var loks bætt;
við þessum aukalæknishéruðum :
1. Grímsnes- Biskupstungn a- Hrunamanna-
Gnúpverja-Skeiða- og Þingvallahreppum i Árnessýslu,
þar kom læknir 1896 (Magnús Ásgeirsson). 2. Broiðaból-
staðar- Engihlíðar- Vindhælis- Torfalækjar- og
Svínavatnshreppum í Húnavatnssýslu; þar kom lækni
1897 (Sigurður Pálsson). 3. Breiðdals- Valla- Fljótsdals-
hreppar, Fellah'reppur fyrir ofan Þorleifará og Jökuls-