Eir - 01.07.1900, Side 72
184
ar og hornhimnunnar.1 llvita augans er meira eða minna
rauð einkum út frá bólunum. Að jafnaði er ekki þessi veiki
beinlínis hættuleg fyrir sjónina og ekki heldur hvarmaveikin,
sem fyr er getið, ef þær eru einar út af fyrir sig.
Ef veikin rceðst á hornhimnuna fær barnið hornhimnubólgu,
sem er hættuleg fyrir sjónina. Það einkenni hornhimnubólg-
unnar, sem mest ber á, er áköf ljósfælni. Barnið þolir ekki
birtuna, kreistir vanalega augun fast saman, heldur höndunum
fyrir þeim, gengur lotið og vill helzt vera þar sem skuggsýnt
er. Ef það sefur í björtu herbergi, liggur það oft á grúfu vegna
birtunnar. Einkum er barnið mjög Ijósfælið á morgnana, þegar
það vaknar. Ef manni tekst að sjá inn í augað, sést að það
hvíta í því er rautt, og, ef vel er aðgætt, má sjá hvítan blett
oða depil á hornhimnunni. Það er ekki sjaldan, að barnið fær
hnerra, þegar augað er opnað, og tárin streyma niður kinn-
arnar. í rökkrinu minkar ijósfæinin en hverfur þó oft ekki,
og við lampaljós er hún mikil. Fremur sjaldgæft er það, að
minna beri á ijósfælninni, en mest ber á henni, ef veikin er í
báðum augum í senn. Oft tekur af kinnunum og útbrot koma
á þær vegna tárarenslisins. Sömuleiðis fylgir þessu oftast kvef
með aftökum og sárum neðan við nefið.
Undir oins og vart verður þossara sjúkdómseinkenna skal
leita læknis. Þangað til ráð læknisins koma, má baða augað
öðru hverju með hreinu soðnu vatni og hengja litla svarta
blöðku lauslega fyrir augað. Meðan veikin er í auganu, má
barnið ekki fást við lestur eða smágjörva handavinnu. Ef við-
eigandi ineðul eru höfð við augað, læknast hornhimnubóigan,
en lækningin er ekki fullkomin. Eftir verður ör á hornhimn-
• unni, og er það að sjá sem hvítur eða gráleitur blettur eða
depill; það er kallað ský eða vagl. Skýið eyðist að visu tals-
vert næstu mánuðina, en sjaldan hverfur það alveg, þótt það
dyljist augum, er ekki hafa vanist að greina slíkt. Hornhimnu-
bólga er mjög gjörn á að taka sig upp aftur; gerir hún það
oft hvað eftir annað með lengra eða skemra millibili. Við
1 Hornhimuan er kringlótta himnan, kúfta og gagnsæja, sem er
framan á miðju auganu og er nokkru minni um sig en tíeyringur.