Eir - 01.07.1900, Side 75
187
flestum blindraskólum í Norðuiálfunni telst svo til, að nœrfelt
fjórði hver nemandi skóla þessara hafi blindast af þessum sjúk-
dómi. Svo ber þess að gæta, að hér er ekki talinn allur sil
fjöldi manna, er veiki þessi hefir gert meira eða minna sjón-
dapra, stundum einsýna og stundum hálfblinda eða meira á
báðum augum, því að ekki eru teknir á blindraskólana nema
alblindir unglingar eða þeir, sem vegna sjóndepru hafa ekki
getað lært algengustu vinnu i heimahúsum. Erlendis er
enginn sjúkdómur nándar nærri eins háskalegur fyrir
sjónina og þessi, að bólunni einni undanskilinni í þeim lönd-
um, er ekki hafa bólusetningarskyldu.
Sú er þó bót í máii, að sama sem öll börn geta orðið
jafngóð af sjúkdómi þessum, ef þau fá nógu snemma góða
læknishjálp og nákvæma hjúkrun. Börnin, sem hér hafa veikst,
hafa öll orðið jafngóð að einu undauteknu, enda var i það okia
skifti læknis vitjað of seint.
Orsök veikinnar er sjúkdómur í fæðingarvegi móðurinnar,
og kemst sóttkveikjan (Neissers Gdliococcus) þaðan á augna-
lok barnsins eða inn í augu þess meðan á fæðingunni stendur.
Frá fæðingu barnsins liða 2—4 dagar þangað til fei’ að brydda
á augnveikinni; byrjar hún moð því, að augnalokin eru Hmd
saman, þegar bamið vaknar, og ígul vilsa kemur úr augunum.
Á fám dögum breytist útferðin i gulan gröft, og er hanri oft
svo mikil), að hann rennur niður kinnar þegar augun eru
opnuð. Augnalokin liafa þrútnað smám saman, og oft er barnið
ekki vikugamalt, þegar gröfturinn hefir étið sár á hornhimn.
una; sárið dýpkar fljótlega, gat komur á augað og full blinda,
ef veikin er látin sjálfráð. En hvort sem svona fer eða ekki,
þá batnar veikin trauðla á minna en 4 vikum, og oft tekur
hún 6 til 8 vikur. Allan þann tíma þarf nákvæma hiúkrun
dag og nótt og afarmikla varfærni, svo að veikin berist ekki
á þá, sem hjúkra barninu, eða aðra, því að á fullorðnum
er augnveiki þessi en hættulegri og langvinnari, en á ung-
börnum.
Sóttkveykjan er í útferðinni úr augum barnsins og kemst
þaðan óðar í alt, er kemur nálægt andliti þess, t. d. í föt þess,