Eir - 01.07.1900, Page 77
189
dýfa ofan i skálina aftur, heldur skal leggja hana á pappirs-
blaðið við hliðina á skálinni og taka nýja visk. Að endingu
má þerra andlit barnsins varlega með handklæðinu. Ef að eins
annað augað er sjúkt, verður vandlega að gæta þess, að engin
ögn af greftinum eða þvottavatninu komist yfir i hitt augað;
á þá barnið að liggja á hliðinni í vöggunni og sjúka augað að
vita niður, svo að gröfturinn geti ekki runnið yfir noiið í lieil-
brigða augað Hjúkrunarkonan vefur nú pappírsblaðinu utan
um baðmullarviskirnar, er hún hefir notað, og kastar þvi í eld-
inn. Handklæðið geymir hún þar sein aðrir ná okki í það og
skálina hreinsar hún með sjóðaridi vatni. Loks þvær hún sér
mjög vandlega um hendurnar með sápu og volgu vatni.
Þetta alt verður að endurtaka undir pins og gröftur hofir
aftur safnast í augun, og er þoss oinatt ekki langt að biða,
eins og áður er sagt. Hjúkrun barnsins er því afarþreytandi;
má ekki ætla móðurinni þaö verk, að minsta kosti okki framan
af, og það því siður sem sama sóttkveikjan, er veldur augn-
veiki barnsins, verður þess ekki sjaldan valdandi, að sængur-
konunni heilsast illa og að hún verður að liggja lengi rúmföst.
Fundist hefir ráð til að forða börnum við veikinni. Ráðið
er skaðlaust.og mjög einfalt: Undir eins og barnið 01 fættog
andlit þe.is og augnalok hafa verið þvegin, er einn dropi af
2% lapisVatni látinn drjúpa inn í hvertauga. Annað er ekki
gert. Ef dropinn kemst áreiðanlega inn í augun, fær barnið
ekki þessa hættulegu augnveiki. Á því nær öllum fæðingar-
húsum er þessi aðferð tíðkuð; er einn dropi af lapisvatni lát-
inn drjúpa inn i augu hvers barns, sem fæðist þar, enda hefir
skift svo um, að augnveikin er horfin þaðan, eu var þar áður
mjög tíð og blindaði fjölda barna og nokkrar hjúkrunarkonur,
er fongu veikina af bömunum. í Svíþjóð, ef ekki nú orðið i
fleiri löndum, er Ijósmæðrum gert að skyldu að bera í augu
allra bama, er þær talca á móti, ef læknir bannar það ekki.
Þetta hefir haft þau áhrif í Sviþjóð, að augnabólga nýfæddra
bama fer þar óðum þverrandi.
Þegar nýfætt bara fær augnveiki þessa, veldur því sama
sem ætið sjúkdómur, er móðir þess hefir. Hún ætti því að