Eir - 01.07.1900, Síða 78
190
leita læknis, þegai' hún er staðin af barnssæng, en ekki er til
neins að ráðfæra sig við aðra eða fara eftir kerlingabókum,
því að það er ekki heiglum hent að lækna þessa veiki til fulls,
en hún er hættuleg fyrir heilsu og líf konunnar. Ef hún eign-
ast íleiri börn, er hætt við, að þau fái sömu augnveikina, og
ætti hún því að biðja ljósmóðurina að sjá um, að borið væri
í augu þeirra fyrnefnt meðal strax eftir fæðinguna. Hið sama
ættu sængurkonur að gera, er hafa haft hvít klæðaföll. Þetta
munúi gora augnveikina sjaldgæfari, en óneitanlega er aðferð
Svia iangbezt.
Því hefi ég orðið svo langorður um augnveiki þessa, að
ég geri mð fyrir, að hún kunni að fara að stinga sér niður í
öðrum kauptúnurn landsins og í sveitunum, en veikin á hinn
bóginn ákaflega hættuleg fyrir sjónina og auk þess mjög næm,
en má verða því nær skaðlaus, ef læknis er leitað strax og
ráðum hans fylgt. Sérstaklega vil ég vekja athygli ljósmæðra
landsins á veikinni, því að þær eru oft fyrst spurðar ráða,
þegar um nýfædd börn er að ræða. Auk þess mega þær hafa
gát á verkfærum sínum og öðrum munum, er þær nota við
hjúkrun móðurinnar eða barnsins, að sóttkveykjan flytjist ekki
með þeim til annara. Verkfærin verður að sjóða í vatni, áður
en þau eru notuð við aðra. Handklæði barnsins verður og að
sjóða vandlega, áður en aðrir taka það til notkunar. Suða drep-
ur sóttkveykjuna á skömmum tíma. Svamp barnsins þarf
fremur öllu öðru að sótthreinsa, en hann skemmist við suðu ;
mun nægja að láta hann liggja i 2 sólarhringa í lútstarku kar-
bólvatni (4%) svo að yfir hann fljóti. (Framh.)
Björn ólafsson.
-0<0~>-