Andvari - 01.01.1983, Side 5
BJARNI VILHJÁLMSSON:
KRISTJÁN ELDJÁRN
Þegar dr. Kristján Eldjárn lét af starfi forseta Islands 31. júlí 1980,
átti hann að baki langan og óvenjulega glæsilegan embættisferil. Hann
hafði þá verið forseti Islands í 12 ár og áður þjóðminjavörður í 21 ár og
minjavörður í Þjóðminjasafni hálft þriðja ár. Allan sinn starfsferil hafði
hann varið hverri frjálsri stund til ritstarfa. Hann var því kunnur sem fom-
leifafræðingur og sérfræðingur í menningarsögu víða um lönd, ágætur rit-
höfundur, sem gerði sér far urn að kynna þjóð sinni fræði sín í ljósu máli
og með listrænu orðfæri. Það rnætti því ætla, að hann hefði átt góðri
heilsu og miklu starfsþreki að fagna. Hin síðari ár gekk hann þó ekki heill
til skógar, þó að á fárra vitorði væri, enda féll honum aldrei verk úr hendi.
I ágústlok 1982 var svo komið, að hann átti e'kki annars kost en ganga
undir hættulega hjartaaðgerð. Aðgerðin fór fram í sjúkrahúsi í Cleveland
í Ohio í Bandaríkjunum og virtist í fyrstu ætla að takast vel. En skyndilega
brá til hins verra, þannig að öll hjargráð urðu árangurslaus. Hann andaðist
í sjúkrahúsinu 14. september 1982 hátt á 66. aldursári. Það var mikil raun
vandamönnum hans og vinum að sjá honum á hak með svo snöggum hætti.
I landinu varð þjóðarsorg við fráfall hans.
Það er nú liðið talsvert á 53. ár, síðan fundum okkar Kristjáns bar fyrst
saman. Vorið 1931 komum við hvor úr sinni heimabyggð og þreyttum
próf upp í 2. bekk Menntaskólans á Akureyri, sem þá skiptist í gagnfræða-
deild með þriggja vetra nárni og í menntadeild, sem tók önnur þrjú ár.
Urðum við síðan samferða til stúdentsprófs, sem við lukurn vorið 1936.
A háskólaárum okkar skildust leiðir i bili, en lágu þó aftur saman haustið
1941, og eftir það rofnaði ekki samband okkar.