Andvari - 01.01.1983, Blaðsíða 91
ANDVARI
PRESTSDÓTTIRIN FRÁ REYKHOLTI
89
eða gulli eftir atvikum. Hátíðabúningur kvenna á þessum tímum krafðist
slíkra gersema.
Traustar heimildir benda til þess, að þeim hjónum hafi búnazt vel á
Fitjum, þar ríkt ást og eindrægni og umgengni öll verið með menningarbrag.
En þau hörmulegu örlög sóttu Ragnheiði á Fitjum heim, að hún missti
mann sinn í blóma lífsins. - Björn andaðist að Fitjum 27. september 1844,
hátt á 47. aldursári. Bróðir hans Þorsteinn smiður og bóndi á Húsafelli smíð-
aði veglegan legstein, sem hvílir á leiði Björns í kirkjugarðinum á Fitjum.
Hefur mér verið tjáð af nákunnugum á Fitjum, að legsteinn þessi hafi til þessa
dags staðið af sér næstum á furðulegan hátt veður og vinda tímans.
Börn þeirra Fitjahjóna Björns og Ragnheiðar voru þessi:
1. Jakob, f. 29. júní að Lundi 1836, d. 14. febrúar 1919. Kenndur við
prestsetrið Saurbæ í Eyjafirði, þar sem hann var síðast og lengst prestur.
2. Rannveig, f. 28. okt. 1837, d. 17. maí 1866 á Signýjarstöðum í Borgar-
fjarðarsýslu.
3. Eggert (eldri), f. 24. nóv. 1838, dó þriggja vikna.
4. Eggert (yngri), f. 8. júní 1840, dó í nóv. sama ár.
5. Guðrún Kristín, f. 3. júní 1841, dó í nóv. sama ár.
6. Jón, f. 29. ágúst 1842. Fluttist vestur í Vatnsfjörð.
7. Björnheiður, f. 15. okt. 1844 að föður sínum látnum. Hún dó 24.
desember 1845.
í næstu köflum hér á eftir fáum við að kynnast Ragnheiði Eggertsdóttur
nánar.
Hver einn bcer á sína sögu / sigurljoð og raunabögu.
Sannfróðir fullyrða, að búskapur og bústjórn á Fitjum hafi í engu verið
áfátt þau fimm ár, sem Ragnheiður stóð þar uppi sem ekkja eftir lát eigin-
manns síns. En að þeim tíma liðnum urðu söguleg þáttaskil á ævibraut Ragn-
heiðar á Fitjum. Hinn 3. nóvember árið 1849 er þetta fært í kirkjubók Fitja:
,,í hjónaband samangefin: Sigurður Helgason 62 ára, hreppstjóri og bóndi á
Jörfa í Krossholtssókn í Kolbeinsstaðahreppi, og Ragnheiður Eggertsdóttir
47 ára (ekkja) búandi á Fitjum. Svaramenn: hreppstjóri Jón Einarsson Dag-
verðarnesi og bóndinn Jón Guðmundsson Haukatungu. - Gefin saman í kirkju
eftir þrjár lýsingar. - Aths. Helminga fjárlaga. Morgungjöf 40 spesíur. Ef
konan lifir lengur, heldur hún bæði þessari og enni fyrri morgungjöf auk skipta.
Því næst skal vikið að sambúð þeirra Ragnheiðar Eggertsdottur a Fitjum og
síðari manns hennar Sigurðar Helgasonar frá Jörfa.
Hafi glæsilegar vonir verið tengdar hjúskaparmálum þeirra, áttu þær ekki
fyrir sér að rætast. Orð fór af því, að skjótt hefði orðið gustasamt t Fitjabæ,
eftir að Sigurður var setztur þar í húsbóndasætið. Mælt er, að sjaldan valdi