Menntamál - 01.04.1962, Síða 60
50
MENNTAMÁL
kvæmd hefur verið fyrir nokkrum árum, jafnvel þótt hún
hafi verið gerð af vandvirkni.
Freistandi væri að íhuga, hvað valdi breytingum sem
þessum. Stafa þær fyrst og fremst af tilviljunarkennd-
um ástæðum, svo sem mælingarskekkjum við prófanirn-
ar, eða hafa hæfileikar mannsins raunverulega tekið
breytingum? Ef leitazt skyldi við að svara þessari spurn-
ingu, hefði þurft að athuga miklu nánar með öðrum að-
ferðum þá einstaklinga, sem breyttust mest við þessa til-
raun. Þetta var ekki gert.
Nokkuð voru þó athugaðar breytingar þeirra 10 ungl-
inga, sem hækkuðu eða lækkuðu um meira en 15 stig.
Reyndust 7 þeirra hafa hækkað, en 3 lækkað. Hækkun
er alltaf hugsanlegt að skýra þannig, að ekki hafi náðzt
nægilega góð samvinna við prófaðan eða hann hafi ekki
lagt sig fram við fyrri prófun, einkum er þetta hugsan-
legt, þegar um er að ræða ung börn, eins og hér var,
þ. e. 6—7 ára. Lækkun er líka hugsanlegt að skýra með
því, að prófaður hafi ekki lagt sig fram við síðari próf-
un eða ekki hafi þá náðzt við hann nægilega góð sam-
vinna. Vitað var, að þetta átti sér stað um einn þeirra,
sem lækkaði mikið, taugaveiklaðan ungling, sem þótti
miður að taka þátt í tilrauninni (annars voru unglingar
þessir mjög fúsir til þess og góð samvinna við þá). Vitað
er um annan, sem lækkaði, og það um 24 stig, að hann
hefur búið við erfið skilyrði á heimili vegna óreglu og
skilnaðar foreldra. Kennarar hans telja hann geta lært,
en segja hann lítt leggja sig fram og aldrei taka á við
starf. Við prófun var hann áhuga- og sinnulítill. Um
hinn þriðja, sem lækkaði, þó aðeins um 16 stig, er ekkert
vitað, er skýrt geti lækkunina.
Það er skoðun mín, og er þá meira stuðzt við reynslu
í hagnýtu starfi en tilraun þessa, að nokkrar breyting-
ar geti orðið á hæfileikum manna eða getu þeirra til að
notfæra sér áskapaða hæfileika. Þessar breytingar eru