Morgunblaðið - 02.04.1987, Side 1

Morgunblaðið - 02.04.1987, Side 1
96 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 77. tbl. 75. árg. FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Sjónvarpsstöð bætir fyrir róg London, AP. BREZKA sjónvarpsstöðin Tham- es Television féllst í gær á að greiða kóreska flugfélaginu Kor- ean Air Lines „verulegar" miskabætur vegna sjónvarps- þáttar, þar sem því var haldið fram að þota félagsins hefði ver- ið í njósnaflugr er hún var skotin niður í sovézkri lofthelgi 1. sept- ember 1983. Sjónvarpsstöðin neitaði því í yfir- Skotbar- dagi við réttarhöld Liege, AP. Reuter. SAKBORNINGUR og lögfræð- ingur biðu bana í skotbardaga, sem braust út í dómssal í borg- inni Liege í Belgíu í gær. Þar fóru fram réttarhöld yfir fjór- um hættulegum síbrotamönn- um. Einn sakborninganna, Jose Cokaiko, beið bana í skotbardag- anum og lögfræðingur, Jacques Henry, sem er 59 ára, lézt síðar í sjúkrahúsi. I miðju réttarhaldinu báðu sakbomingamir um að fá að fara á salemi en var neitað. Stóð þá stúlka upp í áhorfendastúkunni og fleygði byssu og hand- sprengju til Cokaiko. Talið er að hún hafi verið unnusta hans. Cokaiko greip í lögregluþjón og reyndi að skýla sér á bak við hann í skothríðinni, en um síðir hæfði annar lögrelumaður hann og beið hann samstundis bana. Gífurleg ringulreið varð í rétt- arsalnum og var lengi óljóst hvað raunvemlega gerðist. Heimildir herma m.a. að handsprengja hafi spmngið. Talsmaður sjúkrahúss í Liege sagði að lögmaðurinn, sem beið bana, hefði fengið byssuskot í höfuðið. lýsingu að það hefði verið vísvitandi ætlan hennar að láta að því liggja í þætti, sem sýndur var í júlí 1984, að áhöfn þotunnar hefði verið beðin að láta þotuna „reika“ inn í sovézka lofthelgi til að kanna viðbrögð sov- ézkra loftvama á Sakhalín-eyju. KAL-flugfélagið stefndi stöðinni fyrir rógburð og lauk málinu í gær með því að stöðin féllst á að greiða miskabætur. Sovézk ormstuþota skaut kór- esku þotuna niður og fómst allir sem um borð vom, 269 manns. Þotan villtist af leið og hafði flogið í sovézkri lofthelgi í rúmar tvær klukkustundir þegar hún var skotin niður. Hún var í venjulegu áætlun- arflugi frá Anchorage í Alaska til Seoul í Suður-Kóreu. Upphæð miskabótanna, sem Thames Television féllst á að greiða var ekki gefin upp en sögð vemlega há. í nóvember 1984 vann flugfé- lagið mál gegn brezku tímariti, Defense Attache, sem dæmt var til að greiða bætur fyrir að halda því fram að þota félagsins hefði verið í njósnaflugi fyrir Bandaríkjamenn. Páfi í Uruguay Jóhannes Páll páfi annar veifar til tugþúsunda I uðborg Uruguay, í gær. Sjá nánar , manna við upphaf útimessu í Montevideo, höf- I Chile láti mannréttindi til sín taka“ Keuter .Kirkjan í á bls. 35. Þýzku rfldn tvö skipt- ast á átta njósnurum Frankfurt, AP. ALRÆMDUR njósnari, sem stal mjög viðkvæmum og leynilegum NATO-skjölum fyrir Austur-Þjóðverja meðan hann starfaði í varnarmála- ráðuneytinu í Bonn, var afhentur austur-þýzkum yfir- völdum í gær í fangaskiptum Austurs og Vesturs. Njósnarinn, Lothar-Erwin Lutze, var dæmdur árið 1979 og þótti sannað að hann hefði ásamt konu sinni, Renötu, stolið hundr- Thatcher snæddi árbít með Beefim London, AP, Reuter. Opinberri heimsókn Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, tii Sovétrikjanna lauk í gærkvöldi, en lokadegi heimsóknarinn- ar varði hún í borginni Tíflis í Grúsíu. Thatcher bytjaði gær- daginn á því að snæða morgunverð með sovézka andófsmanninum Josef Begun, sem barizt hefur fyrir málstað sovézkra gyð- inga. Begun sagði að Thatcher hefði sagt sér að sovézkir ráðamenn hefðu orðið „óstyrkir" er hún hvatti þá til að leyfa gyð- ingum að fara frá Sov- étríkjunum. Hefðu þeir sagt það vera sovézk inn- anríkismál. Begun sagði að það væri til marks um aukið frelsi og jákvæða þróun í Sov- étríkjunum að sér skyldi leyft að snæða morgunverð þó að staða sovézkra gyð- inga væri verri nú en fyrir nokkrum árum. í Tíflis fögnuðu þúsundir manna Thatcher og skaut hún öryggisvörðum sínum nokkrum sinnum skelk í bringu með því að strunsa af leið og fara inn í mann- þröngina. Eitt sinn lét hún stöðva bifreið sína og vipp- aði sér út á meðal fólksins og reyndu þá margir að heilsa henni með handa- bandi. Á einum stað tók skeggjúði hönd hennar og smellti kossi á handarbak- ið. Margaret Thatcher fylgist með þjóðdansara í Tíflis. uð leyniskjala úr vestur-þýzka varnarmálaráðuneytinu á fjög- urra ára tímabili á síðasta áratug og afhent þau Austur-Þjóðverj- um. Upp komst um Lutze og konu hans þegar Giinther Guillaumc, ráðgjafí þáverandi kanzlara, Willy Brandt, var afhjúpaður fyr- ir njósnir í þágu Austur-Þjóð- verja. Renata Lutze var einkaritari starfsmannastjóra varnarmálaráðuneytisins. Hún sat tvö ár í fangelsi en var af- hent austur-þýzkum yfírvöldum í fangaskiptum árið 1981. Skjölin, sem hjónin stálu, höfðu m.a. að geyma upplýsingar um eldsneytisleiðslur NATO í Mið-Evrópu, mat Vestur-Þjóð- veija á viðbragðsflýti heija Varsjárbandalagsins, áætlanir um orkunotkun NATO á hættu- tíma og áætlanir um nýjan skriðdreka, sem smíða átti á tíunda áratug aldarinnar. Asamt Lutze voru þrír menn aðrir, sem njósnað höfðu í þágu kommúnistaríkjanna, afhentir austur-þýzkum yfirvöldum. Tveir þeirra, Ott-Friedrich Schweik- hardt og Alois Tomaschek, voru nafngreindir en ekki sá þriðji. Fangaskiptin fóru fram í Herles- hausen-landamærastöðinni. í fangaskiptunum létu Aust- ur-Þjóðveijar lausa fjóra vestur- þýzka leyniþjónustumenn, þijá menn og eina konu, sem gripnir voru í Austur-Þýzkalandi og af- plánuðu langa fangelsisdóma. Synjar lausnar- beiðni Craxi Rómaborg, AP. Rcuter. FRANCESCO Cossiga, forseti Italíu, sagðist í gær ekki mundu taka lausnarbeiðni Bettino Craxi, forsætisráð- herra, til greina og sagði honum að óska eftir trausts- yfirlýsingu þingsins. Craxi baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt fyrir mánuði en tilraunir til að mynda nýja stjóm hafa reynst árangurs- lausar. Með því að neita að taka lausnarbeiðnina til greina mun Cossiga vera að gera tilraun til að afstýra þingkosningum, sem að öllu jöfnu eiga ekki að fara fram fyrr en næsta vor. Craxi baðst lausnar vegna deilna sósíalista og kristilegra demókrata, tveggja stærstu stjómarflokkanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.