Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
Nýjung:
Saltfiskur í
neytendapökkum
Morgunblaðið/JÁS
Sigurður Sigfússon, sölustjóri hjá Sambandi islenskra fiskfram-
leiðenda.
Um þessar mundir er Coldwater
Seafood, dótturfyrirtæki Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna, að
hefla sölu á saltfiski í neytenda-1
pökkum í Bandaríkjunum. Frétta-
ritari Morgunblaðsins náði tali af
sölustjóra Sambands íslenskra
fiskframleiðenda, Sigurði Sigfús-
syni, er hann var staddur á
fiskmetissýningunni í Boston og
innti hann eftir saltfisksölunni.
— Hverjum ætlið þið að selja
þennan saltfisk?
„Helstu neytendahópamir eiga
rætur að rekja til Portúgal, Spán-
ar og eyja í Káríbahafinu. En í
raun skiptist neytendahópurinn í
tvo hluta, þá sem eru frá Evrópu
og eru oft önnur eða þriðja kyn-
slóð hér í Bandaríkjunum og
reiðubúnir að borga talsvert fyrir
að fá góðan físk. Síðan er fólkið
sem kemur frá eyjunum í Karíba-
hafi, oft af fyrstu kynslóð innflytj-
enda og hefiir ekki mikil fjárráð.
Hingað til höfum við selt fyrr-
nefnda hópnum.
En nú er saltfískurinn kominn
í neytendapakkningar og þá stefn-
um við inn á alla hugsanlega
saltfiskmarkaði. Þessir hópar sem
ég nefndi búa einkum á Nýja-
Englandssvæðinu, það er að segja
norðausturhomi Bandaríkjanna.
Þeir em á Rhode Island, kringum
Boston og í New Jersey er til
dæmis stærsta portúgalska ný-
lendan í Bandaríkjunum. Fólkið
frá karabísku eyjunum hefur á
hinn bóginn komið sér fyrir á
Flórídaskaganum. Loks er Kali-
fomía vænlegur saltfiskmarkað-
ur.“
— Hafið þið kannað hvemig
landið liggur?
„Við höfum gert markaðskann-
anir og vonumst til þess að þetta
sé sú vara sem fólk mun sækjast
eftir. Saltfiskur er talsvert dýrari
en sá ferski, en á hinn bóginn er
mjög sterk hefð fyrir þessari
neyslu. í verði emm við alveg
samkeppnisfærir við Kanada-
menn og aðra, en svo er þess að
gæta að sala á saltfiski í
lofttæmdum neytendapökkum er
algjör nýjung á Bandaríkjamark-
aði.
Neyslan hjá innflytjendum af
evrópskum meiði virðist vera mest
fyrir jólin og aftur á föstunni fyr-
ir páskana. Það kom okkur
hinsvegar á óvart að eyjaskeggjar
úr Karíbahafi neyta saltfisks allan
ársins hring. Saltfiskurinn getur
geymst í tólf mánuði í þessum
neytendapökkum, ef hann er
hafður í kæli. Við emm mjög
bjartsýnir að vel takist með sölu."
— Fáið þið þolanlega hátt verð
miðað við Evrópu?
„Já, já, vegna skorts á saltfiski
alls staðar í heiminum hefur verð-
lag verið hátt. Náttúmlega hefur
fall dollarans komið jafn illa við
okkur og frystinguna, þegar við
bemm okkur saman við Evrópu-
markað. En í þeim efnum þýðir
ekkert annað en þreyja þorrann
og gefast ekki upp.“
Borgaraflokkurinn birtir stefnuskrá:
Atorka eínstaklinga í stað
miðstýrðs ríkisreksturs
- V arnar samningnr endurskoðaður reglulega
- Ný lög um fóstureyðingar
BORGARAFLOKKURINN, hinn
nýi stjómmálaflokkur Alberts
Guðmundssonar, hefur sent frá
sér stefnuskrá sína. í inngangi
hennar segir, að flokkurinn muni
leggja áherslu á samstarf fjöldans
til átaka í velferðarmálum
íslensku þjóðarinnar og gæta
reisnar hennar í samskiptum við
aðrar þjóðir. Borgaraflokkurinn
setji einstaklinginn i öndvegi og
virði frelsi hans til skoðana og
athafna, en vinni af tillitssemi að
mannúðarmálum og virði mann-
Iegar tilfinningar.
Stefnuskrá Borgaraflokksins
skiptist í átta kafla. í kafla um efna-
hags- og viðskiptamál segir, að
flokkurinn treysti á dugnað og at-
orku einstaklingsins fremur en
miðstýrðan ríkisrekstur. Hlutverk
ríkisins sé að skapa hagstæð ytri
skilyrði fyrir allan atvinnurekstur.
Útflutningsverslun eigi að gefa
fijálsa í áföngum og tekjuskattur
af almennum launatekjum verði
lagður niður. Þá vill flokkurinn að
ríkissjóður sé rekinn hallalaus í góð-
æri.
Um alþjóða- og öryggismál segir,
að eðlilegt sé að vamarsamningur-
inn við Bandaríkin sé endurskoðaður
reglulega. Lögð verði ríkari áhersla
á almannavamir og öryggismál ís-
lendinga sjálfra í samstarfinu við
Bandaríkjamenn. Sjálfsagt sé að
taka þátt í öllum umræðum um af-
vopnunarmál er leitt geti til varan-
legs friðar og eyðingar kjamorku-
vopna.
í kafla um fjölskyldumál og vel-
ferð segir, að umhyggja fyrir
mannlegu lífi, gagnstætt eyðingu
þess, sé æðsta markmið góðrar ríkis-
stjómar. Því muni Borgaraflokkur-
inn beita sér fyrir því að sett verði
ný löggjöf um fóstureyðingar og
ófrjósemisaðgerðir. Tryggt verði að
foreldrar geti valið um að annast
böm sín á heimiiinum ef þeir óska
þess. Skilyrði kirkju og trúarlífs
verði bætt. Öldruðum verði tryggt
áhyggjulaust ævikvöld með reisn.
Um menntamál segir, að huga
skuli að endurskipulagningu á
menntakerfi landsins og gæði
menntunar verði á við það sem best
gerist erlendis. Lánasjóður íslenskra
námsmanna tryggi öllum jafna
möguleika til náms. Launatekjur
námsmanna skerði ekki rétt þeirra
til námslána.
Um iðnaðar- og orkumál segir,
að stuðla beri að því að íslensk iðn-
fyrirtæki geti fengið raforku á
hagstæðu verði til jafns við erlend
stóriðjufyrirtæki. Haldið verði áfram
að kanna möguleika á samstarfi við
erlend stóriðjufyrirtæki. Um land-
búnaðar- og sjávarútvegsmál segir,
að stefna beri að því að leggja núver-
andi kvótakerfi í þessum atvinnu-
greinum niður. Halda beri áfram
skynsamlegri nýtingu hvalastofna.
Gera skuli átak til þess að nýta bet-
ur og fullvinna fiskafla innanlands.
Um samgöngumál segir, að lagn-
ingu hringvegarins með bundnu
slitlagi skuli lokið í einum áfanga
og hann tengdur þéttbýliskjömum
landsins. Bent er á nauðsyn góðra
fjarskipta og tengsla við umheiminn
með tilliti til verslunar og viðskipta.
Hugað verði að heimsverslunarmið-
stöð á íslandi með beinum fjarskipta-
og tölvutengslum við allar helstu
kauphallir heimsins.
Loks segir í kafla um stjómsýslu-
mál, að aukin völd skuli færð til
sveitastjóma og landshluta. Jafn-
framt verði dregið úr miðstýringu
og samþjöppun framkvæmdavalds-
ins á einum stað. Stefnt skuli að
eðlilegri og réttlátari kjördæmaskip-
un.
Hrunamannahreppur:
Fjölsóttir tónleikar til
heiðurs Signrði Agnstssyni
Syðra-Langholti, Hrunamannahreppi.
TÓNLISTARFÉLAG Ámessýslu
gekkst fyrir afmælistónleikum til
heiðurs Sigurði Ágústssyni í Birt-
ingaholti laugardaginn 21. mars.
Voru þeir haldnir á Flúðum kl.
15 en í Selfosskirkju kl. 20.30. Öll
lögin og tónverkin sem flutt voru
eru eftir Sigurð Ágústsson. Alls
voru það sex kórar, samtals 240
manns, sem sungu 23 lög eftir
tónskáldið sér eða sameiginlega,
auk þriggja einsöngvara. Var hús-
fyllir á báðum stöðum og þótti
söngurinn takast vel.
Sigurður Ágústsson fæddist í Birt-
ingaholti 13. mars árið 1907, yngstur
10 bama þeirra hjóna Móeiðar
Skúladóttur og Magnúsar Ágústs
Helgasonar. Hann var bóndi í Birt-
ingaholti 1934 til 1964, bjó stóru búi
og var mikill ræktunarmaður bæði á
jarðargróða sem búfé. Sigurður
gegndi Qölmörgum trúnaðarstörfum
fyrir sveit sína og hérað. Þá var
hann skólastjóri Flúðaskóla um ára-
bil og kennari við Reykholtsskóla í
Biskupstungum, einnig var Sigurður
við kennslu á Stokkseyri og Selfossi
um tíma. Þá var Sigurður skólastjóri
Tónlistarskóla Ámessýslu
1974—1978 og stundakennari við
þann skóla til 1986. Sigurður var
aðeins 17 ára gamall þegar hann
stofnaði sinn fyrsta kór, sem var
Hreppakórinn, karlakór skipaður
mönnum úr Hreppunum, og starfaði
þessi kór lengi. Sigurður hefur feng-
ist mikið við tónsmíðar og tónlist og
verið athafnasamt tónskáld.
í upphafi tónleikanna á Flúðum
afhenti Loftur Þorsteinsson oddviti
Sigurði skrautritað skjal og tilkynnti
að hann hefði verið gerður að heið-
ursborgara Hrunamannahrepps.
Steinþór Gestsson fyrrverandi al-
þingismaður á Hæli flutti ávarp, en
hann er einn af söngfélögunum úr
Hreppakómum. Kóramir sex, sem
sungu hver fyrir sig tvö til þijú lög
efíir tónskáldið, eru: Samkór Selfoss,
stjómandi Jón Kristinn Cortes, Kór
Fjölbrautaskóla Suðurlands, stjóm-
andi Jón Ingi Sigurmundsson,
Ámesingakórinn í Reykjavík, stjóm-
andi Hlín Torfadóttir, Ámeskórinn,
stjómandi Loftur S. Loftsson, Karla-
kór Selfoss, stjómandi Ásgeir
Sigurðsson, Karlakórinn Fóstbræð-
ur, stjómandi Ragnar Bjömsson. Þá
sungu einsöng þau Guðbjörg Sigur-
jónsdóttir og bræðumir Gunnar og
Morgunblaðið/Sig. Sigm.
Loftur Þorsteinsson oddviti hefur afhent Sigurði Ágústssyni skraut-
ritað skjal um að hann hafi verið gerður að heiðursborgara í
Hrunamannahreppi.
Guðbjöm Guðbjömssynir. Karlakór-
amir sungú saman eitt lag og
blönduðu kóramir nokkur lög, stjóm-
aði höfundurinn því síðasta, laginu
Ámesþingi, við texta Eiríks Einars-
sonar frá Hæli.
Á tónleikunum á Selfossi flutti Jón
R. Hjálmarsson, fræðslustjóri Suður-
lands, kveðju frá menntamálaráð-
herra og afhenti blómakörfu. Einnig
var tónskáldinu fært skrautritað
skjal frá stjóm Tónlistarfélags um
árabil. Stjómendum, undirleikurum,
einsöngvurum og formönnum kó-
ranna var færð að gjöf hljómplatan
„Söngkveðjur", sem geymir mörg af
lögum Sigurðar. Þessi hljómplata
kom út árið 1982, en er löngu upp-
seld. Hún hefur nú verið gefín út að
nýju af Fálkanum í Reykjavík.
Stjóm Tónlistarfélags Ámessýslu
skipa nú Helgi Helgason formaður,
Hjörtur Hjartarson ritari og Hjörtur
Þórarinsson gjaldkeri, og mun hann
hafa haft mestan veg og vanda af
framkvæmd þessara vel heppnuðu
tónleika. Þess skal að lokum getið
að Ríkisútvarpið tók upp tónleikana
á Flúðum.
— Sig. Sigm.