Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
Að vilja breyta
eftirHöllu
Eiríksdóttur
Að undanfömu hefur hlutdeild
kvenna í stjórnmálum verið til um-
ræðu. Sitt sýnist hverjum í þeim
efnum. Konur á kvennalista telja
að sterkasta staða konunnar sé
stjómmálaflokkur skipaður konum
eingöngu. Á þann hátt verði hags-
munir kvenna best tryggðir. í
skrifum þeirra kemur m.a. fram að
þær einar setji málefni kvenna í
öndvegi, samstillt aðgerð kvenna
byggð á reynslu þeirra. Jafnframt
geta þær þess að konum sé stillt
upp á framboðslista annarra flokka
aðeins sem sýnishom af tegundinni.
Ámælisverð
vinnubrögð
Þessi tvö dæmi bera vott um
vanþóknun og aðför að konum í
öðmm stjómmálaflokkum. Nýstimi
sjálfstæðismanna í Reykjavík, Sól-
veig Pétursdóttir, notar sömu
aðferð í grein í Morgunblaðinu ný-
verið. Þar beinir hún spjótum sínum
einungis að kvenframbjóðendum
annarra flokka. Þessi vinnubrögð
em ámælisverð.
Endanleg markmið ættu allir að
vera sammála um, þ.e. „að jafna
hlutdeild karla og kvenna í stjóm-
sýslu og ákvarðanatöku í þjóðfélag-
inu“. í stað þess að hnýta
sérstaklega í konur innan stjóm-
málaflokkanna á að fagna hveiju
nýju andliti. Valið er í höndum
kvenna — afstöðuleysi og firring í
anda Rósu Ingólfs eða virk þátttaka
í stjómmálum.
Skammsýni
Með jafnréttislögum er tryggð
lagaleg forsenda þess að áhrifa
kvenna gæti. Afstaða kvennalistans
er athyglisverð þar sem þær segja
að nýju lögin séu harla lítil bót á
aðstæðum kvenna í íslensku þjóð-
félagi og málið hafi verið svæft
með úttekt á aðstæðum kvenna í
könnun. Þetta er afstaða sem ein-
kennist af skammsýni.
Framsóknarkonur
Konur í Framsóknarflokknum
tóku þátt í prófkjöri á jafnréttis-
grunni og starfa nú af fullum krafti
í kosningabaráttunni með körlun-
um. Þær em margar hveijar í
íorsvari fýrir flokkinn og eiga frum-
kvæði að stefnumörkun í ýmsum
málaflokkum. Besta dæmið er kosn-
ing Rannveigar Þorsteinsdóttur
lögfræðings sem vann fyrsta þing-
sæti Framsóknarflokksins í
Reykjavík árið 1949. Á sama tíma
var hún formaður margra kvenna-
samtaka.
Sigrún Magnúsdóttir fulltrúi
Framsóknarflokksins í borgarstjóm
Reykjavíkur heldur uppi þróttmiklu
andófi gegn einræðishrammi
íhaldsins í borgarmálum.
Valgerður Sverrisdóttir frá Norð-
urlandi eystra er verðugur fulltrúi
þeirra Norðanmanna og á eftir að
láta að sér kveða jafnt í baráttumál-
Halla Eiríksdóttir
„Konur í Framsóknar-
flokknum tóku þátt í
prófkjöri á jafnréttis-
grunni og starfa nó af
fullum krafti í kosn-
ingabaráttunni með
körlunum. “
um kvenna sem annarra.
Fleiri konur eiga möguleika á
þingsetu fái Framsóknarflokkurinn
byr í kosningunum.
Baráttumál Framsókn-
arflokksins
Á nýafstöðnum aðalfundi mið-
stjómar Framsóknarflokksins sem
haldinn var á Selfossi voru tekin
saman baráttumál flokksins fyrir
næsta kjörtímabil. Varðandi félags-
og fjölskyldumál skal það undir-
strikað að flokkurinn hefur komið
til leiðar miklum umbótum á síðasta
kjörtímabili og hæst ber þar vita-
skuld nýtt og róttækt húsnæðis-
lánakerfi sem gerir flestum
íslendingum kleift að eignast eigið
húsnæði. Af mörgum baráttumál-
um flokksins vil ég sérstaklega
nefna:
★ að staðið verði vörð um þetta
nýja húsnæðislánakerfí,
★ að dregið verði úr miðstýringu
en hagkvæmni beitt í rekstri heil-
brigðiskerfísins,
★ að mótuð verði opinber mann-
eldis- og neyslustefna,
★ að launakerfi ríkisstarfsmanna
verði endurskipulagt frá grunni,
★ að jafnaður verði aðgangur allra
að heilsugæslu,
★ komið verði á launajafnrétti
kynjanna,
★ að haldið skuli uppi blómlegu
tónlistar- og leiklistarstarfí.
Þessi mál eru hluti af þeim bar-
áttumálum sem fulltrúar flokksins
beijast fyrir án tillits til þess hvort
þeir eru karlar eða konur.
Berjumst málefnalega
Ég hvet konur til að láta af allri
niðurrifsstarfsemi gagnvart kyn-
systrum sínum og halda sér á
málefnalegum grunni. Eitt er að
beina spjótum sínum að stefnum
ákveðinna flokka, annað er að beina
þeim eingöngu að ákveðnu kyni.
Höfundur skipar 4. sæti lista
Framsóknarflokksins í Reykjavík.
* * ♦ ♦
Brids
Arnór Ragnarsson
Taf 1- og brids-
klúbburinn
Fimmtudaginn 26. mars var
næstsíðasta kvöldið í aðaltvímenn-
ingi klúbbsins. Staðan eftir 19
umferðir af 25 er þessi:
Ami Már Bjömsson —
Guðmundur Grétarsson 167
Sæmundur Knútsson spilaði fyrir
G.G.
Ingólfur Böðvarsson -
Jón Steinar Ingólfsson 157
Þórður Jónsson -
Ragnar Bjömsson 136
Gunnlaugur Óskarsson —
Sigurður Steingrímsson 105
Kristján Blöndal —
ValgarðBlöndal 85
Gísli Tryggvason -
Guðlaugur Nielssen 75
Siguijón Helgason -
Gunnar Karlsson 48
Fimmtudaginn 2. apríl lýkur
keppninni en 9. apríl verður loka-
spilakvöld klúbbsins, einskvölds-
tvímenningur með bókaverðlaun-
um. svo verður einnig krýndur
stigameistari TBK ’86—’87.
NÆRINGARGII.DI; MINNAENII®
ÞESSIR ERU ÚR HREINU 0