Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
Ungt fólk vill eigii-
ast eigin íbúð
eftir Harald Pál
Gunnlaugsson
Reynslan hefur sýnt okkur að ein
helsta ósk ungs fólks í dag er að
geta komist í sitt eigið húsnæði,
vegna þeirrar ánægju og öryggis
sem það veitir. Með þeirri breytingu
sem átti sér stað í húsnæðismálum
á síðasta ári, er ljóst að stefnumál
sjálfstæðismanna um eign fyrir alla
er orðið að veruleika.
Hvað gerðist?
Með samkomulaginu milli aðila
vinnumarkaðarins og ríkisins varð
sú breyting á húsnæðismálum að
fé var veitt úr lífeyrissjóðum inn í
húsnæðismálakerfið. Við þetta gat
húsnæðismálakerfið veitt auknu
fjármagni til húsbygginga. Sé mið-
að við staðalíbúð jókst lánahlutfallið
úr 40% í allt að 70%. Og hafði þá
aukist úr 19,4% frá því að núver-
andi ríkisstjóm hafði tekist við.
Þess ber að gæta að í lífeyrissjóð-
ina safnast geisimikið flármagn og
það ber að nýta það fé í starfsemi,
sem er allri þjóðinni til hagsbóta,
og þar sem vilji var fyrir hendi af
hálfu lífeyrissjóðanna varð það að
samkomulagi að þeir veittu allt að
55% af ráðstöfunarfé sínu í hús-
næðismálakerfið.
Sprengjan
Alþýðuflokkurinn hefur með
Haraldur Páll Gunnlaugsson
„Ungt fólk vill ekki
kasta á glæ þeim mögu-
leikum, sem eru í hinu
nýja húsnæðislána-
kerfi. Við viljum eign-
ast okkar eigin íbúðir
og skiljum hreinlega
ekki vangaveltur um
eitthvert hálfgildings
leigukerfi.“
framburði sínum sýnt vilja til að
sprengja þetta kerfi. Sá rökstuðn-
ingur sem þeir nota er í þá veru
að kerfið ráði ekki við allan þann
fjölda umsókna sem hefur borist
og vilja láta setja mun meira fé í
kerfið svo hægt sr að afgreiða allar
umsóknir á mun styttri tíma.
Sjálfsagt væri hægt að afgreiða
umsóknirnar á þann hátt en við það
yrði allt of mikil þensla á bygging-
armarkaðinum, sem myndi leiða til
hækkunar á íbúðarverði. Þá þyrfti
að hækka lánin til að standa við
gefin loforð o.s.frv. Þá fyrst yrði
kerfið í hættu statt. Þessa einföldu
staðreynd virðast alþýðuflokks-
menn ekki skilja.
Astæðan er ekki sú að þeir skilji
ekki þessa einföldu staðreynd held-
ur skortir þá allan vilja til þess.
Þeir hafa fundið upp nýtt slagorð,
sem þeir nota nú óspart, það eru
hinar svonefndu kaupleiguíbúðir.
Það gætir nokkurs tvískinnungs
í málflutningi þeirra um þessar
mundir; á sumum vígstöðvum gera
þeir allt til að „bæta“ húsnæðiskerf-
ið en annars staðar predika þeir að
kaupleiguíbúðir séu það sem koma
skal.
Hin leiðin
Sjálfstæðisflokkurinn mun
standa gegn slíkum slagorðamönn-
um og stuðla að því að nýja
húsnæðislánakerfíð hrynji ekki. Það
er yfírlýst stefna Sjálfstæðisflokks-
ins að standa vörð um þann árangur
sem náðst hefur í húsnæðismálum.
Þar er að finna þann vilja og þá
áræðni sem þarf til að tryggja að
fólk geti eignast sitt eigið húsnæði.
Ungt fólk vill ekki kasta á glæ
þeim möguleikum, sem eru í hinu
nýja húsnæðislánakerfi. Við viljum
eignast okkar eigin íbúðir og skilj-
um hreinlega ekki vangaveltur um
eitthvert hálfgildings leigukerfi
þegar baráttumál sjálfstæðismanna
fyrir eign fyrir alla er orðið raun-
veruleiki. Fjárhagslegt sjálfstæði
ijölskyldna í landinu hefur verið
best tryggð með sjálfseignarkerf-
inu. Nýtt leigukerfi er stórvarasamt
skref aftur á bak, skref, sem enginn
íslenskur stjómmálaflokkur ætti að
kenna sig við. Við viljum ekki vera
í íbúðum sem eru komnar undir
embættismönnum í leigukerfi. Við
viljum eign fyrir alla.
Höfundur er nemi.
Ráðsfundur
hjá málfreyj-
um III. ráðs
ELLEFTI og tólftj fundur III.
ráðs málfreyja á Islandi verða
haldnir um næstu helgi.
Fundimir verða laugardaginn 4.
apríl kl. 16.30 og sunnudaginn 5.
apríl kl. 10 f.h. Fundarstaður er
Hótel Borgarnes, Borgarnesi. Get-
gjafadeildir em Ösp, Akranesi á
laugardag og Embla í Stykkishólmi
á sunnudag. Fundirnir eru öllum
opnir.
Fréttatilkynning.
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!