Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
45
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Flugvirkjar
Óskum að ráða flugvirkja til starfa á verk-
stæði okkar á Akureyrarflugvelli.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
menntun og fyrri störf berist félaginu fyrir
15. apríl nk.
fluqfélaq
norditrlands IiF
Akureyrarflugvelli — Box612,
602Akureyri. Sími 96-24973.
Útgerðarmenn!
Vanur togaraskipstjóri óskar að leigja bát á
rækju- eða fiskitroll í sumar.
Tilboð merkt: „Fiskur — 1360-10“ sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 13. þ.m.
Matreiðslumaður
óskast á veitingastað með fjölbreytta starf-
semi í Reykjavík.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merkt: „M - 2128“.
Framkvæmdastjóri
Hestamannafélagið Fákur auglýsir eftir fram-
kvæmdastjóra. Starfið felst í því að veita
forstöðu skrifstofu félagsins, sjá um rekstur
hesthúsa og annast um annan rekstur fé-
lagsins.
Starfið veitist frá 1. maí nk.
Umsóknir óskast sendar til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir 7. apríl, merktar: „F — 5895".
Vélvirkjar
— bifvélavirkjar
Óskum eftir að ráða vél- eða bifvélavirkja
nú þegar á verkstæði okkar.
Upplýsingar í síma 40677.
Hlaðbærhf.
Birgðavörður
Vegna veikinda vill stórt fyrirtæki í Austur-
borginni ráða birgðavörð til starfa næstu 6
mánuði.
Öllum umsóknum svarað og þær sendist til
auglýsingadeildar Mbl. fyrir helgi merktar
„Birgðavörður — 1416“.
Verkafólk
Óskum að ráða nú þegar verkafólk til stand-
setninga og þrifa á nýjum bílum. Upplýsingar
gefur Jón V. Guðjónsson.
Bifvélavirkjar
Okkur vantar nú þegar vanan bifvélavirkja í
hemlaviðgerðir. Unnið er eftir bónuskerfi.
Umsóknir skulu vera skriflegar og greini m.a.
frá aldri og fyrri störfum. Meðmæli æskileg.
OlStilling
Skeifunni 11 Símar 31340 og 82740
Símavarsla
— sölumennska
Óskum eftir að ráða starfskraft til að svara
í síma og veita almennar upplýsingar um
vörur okkar. Laun eftir samkomulagi. Vinnu-
tími frá kl. 9.00-18.00, til greina kæmi styttri
vinnutími.
Upplýsingar veittar í síma 687954 frá kl.
13.00-18.00.
Aukastarf
35 ára reglusamur fjölskyldumaður óskar
eftir aukavinnu. Flest kemur til greina.
Þeir sem áhuga kunna að hafa sendi nafn
og símanúmer ásamt stuttri lýsingu á við-
komandi starfi inn á auglýsingadeild Mbl.
merkt: „Traust — 2000".
Skrifstofustarf
Stúlka óskast til skrifstofustarfa hjá fyrirtæki
í miðbænum.
Uppl. um aldur, menntun og fyrri störf sendist
auglýsingadeild Mbl. merkt: „S — 5245".
Verksmiðjuvinna
Óskum að ráða konur og karla nú þegar til
verksmiðjustarfa. Nánari upplýsingar gefur
starfsmannastjóri í síma 18700.
Verksmiðjan Vífilfell hf.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
fundir — mannfagnaöir
, -'
ii
Stangaveiðifélag
Reykjavíkur
Opið hús
Síðasta opna hús vetrarins verður föstudag-
inn 3. apríl í félagsheimilinu á Háaleitisbraut
68. Húsið verður opnað kl. 20.30.
Dagskrá:
1) Langá á Mýrum. Ingvi Hrafn Jónsson
miðlar okkur af þekkingu sinni og reynslu.
Hann lýsir veiðistöðum, segir frá tilraun-
um og sýnir okkur myndir úr eigin safni
og safni Rafns Hafnfjörð.
2) Veiðistaðagetraun.
3) Veiðihappdrætti.
Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Skemmtinefndin.
S VTR SVFR SVFR SVFR SVFR SVFR
Kjarr og lautir
1. ha. sumarbústaðarland á góðum stað í
Grímsnesi til sölu. Mikil útborgun.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 7.
apríl merkt: „S — 2129“.
Netadrekar
Til sölu litlir og stórir netadrekar 18-40 kíló.
Hagstætt verð.
Upplýsingar í síma 99-3149.
Austurlenskt
matreiðslunámskeið
Hefjum í apríl verkleg námskeið í austur-
lenskri matargerð.
Nánari upplýsingar í símum 35708 og
641243.
Vörubfll óskast
Ölfushreppur óskar eftir vörubíl til kaups.
Aðeins góður vestur-þýskur eða sænskur 6
hjóla bíll kemur til greina, árgerð 1982 eða
yngri. Upplýsingar í síma 99-3800.
Til foreldra
og aðstandenda fatlaðra barna
og unglinga á Reykjanesi
Svæðisstjórn Reykjaness málefna fatlaðra
athugar nú þörf fatlaðra barna og unglinga
í Reykjaneskjördæmi fyrir sumarþjónustu.
Með sumarþjónustu er átt við hvers konar
tilboð sem inniheldur t.d. störf, tómstundir
og lengri dvalir.
Ástæðan fyrir þessari athugun er að Svæðis-
stjórn hyggst gefa hlutaðeigandi sveitar-
félögum og samtökum fatlaðra upplýsingar
um þarfir fatlaðra þarna og unglinga fyrir
sumarstarf, áður en gengið er endanlega frá
skipulagningu þessarar þjónustu fyrir sumarið.
Nauðsynlegt er að Svæðisstjórn hafi fengið
upplýsingar um þessi atriði fyrir 15. apríl nk.
í síma 651056 eða 651692 milli kl. 9.00 og
10.00 virka daga, eða bréfleiðis til skrifstofu
Svæðisstjórnar Reykjaness, Lyngási 11,210
Garðabæ.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJANESSV/EÐI
Flökunarvél — leiga
Óskum að taka á leigu flökunarvél B-189V
eða B-184, næstu 6 mánuði.
Upplýsingar hjá framleiðslustjóra í símum
622800 og 29059.
Grandi hf.