Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987 75 Bikarkeppni kvenna: Fram og FH í úrslit FRAM sigraði Armann 33:13 og FH vann Val 16:15 í undanúrslit- um bikarkeppni kvenna í hand- knattleik i gærkvöldi. Fram vann Armann auðveldlega i Höllinni. Staðan í hálfleik var 19:7 fyrir Fram. Einstefnan hélt áfram í siðari hálfleik og endaði leikurinn 33:13. Markahæstar hjá Fram voru Hafdís Guðjónsdóttir með 7 mörk og Jóhanna Halldórsdóttir með 6 mörk. Hjá Armann var Margrét Hafsteinsdóttir með 5 mörk. FH-Valur 16:15 FH og Valur háðu spennandi viðureign í Firðinum.sem endaði með naumum sigri FH. FH-stúlkur voru mun frískari í byrjun og náðu góðu forskoti strax í byrjun. Vals- stúlkur náðu þó að rétta úr kútnum og var staðan í leikhléi 8:7 fyrir FH. Seinni hálfleikurinn var eins jafn og sá fyrri. Eftir mikinn barning og taugaspennu á báða bóga, stóðu FH-stúlkur uppi sem sigur- vegarar.Leikurinn endaði 16:15 fyrir FH. Mörk FH: Maria Sigurðardóttir 4, Kristín Pétursdóttir, Heiða Einarsdóttir og Inga Einarsdóttir 3 mörk hver, Rut Baldurs- dóttir 2 og Sigurborg Eyjólfsdóttir eitt mark. Mörk Vals: Erna Lúöviksdóttir 5, Katrin Friðriksen og Guðrún Rebekka Kristjáns- dóttir 4 mörk hvor, Asta Björk Sveinsdóttir og Harpa Sigurðardóttir eitt mark hvor. KF og ÁS England heldur sínu striki ENGLAND átti ekki í erfiðleikum með Norður-írland í Belfast i 4. riðli Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu f gærkvöldi. Úrslit urðu 2:0 og er England með fullt bús stiga að þremur leikjum lokn- um og markatöluna 7:0. „ÉG hef ekki ákveðið mig endan- •ega, en líklega skipti ég yfir í Vfði,“ sagði Sævar Leifsson, varnarmaður í KR, við Morgun- blaðið í gærkvöldi. Sævar hefur verið einn sterk- asti leikmaður hins sigursæla innanhússliðs KR í knattspyrnu í mörg ár, en lítið fengið að spreyta sig með 1. deildarliðinu úti undan- farin tvö ár. Aðspurður sagðist hann vilja spila í 1. deild og þar sem erfitt væri að komast í KR- liðið, væri Víðir sterklega inni í myndinni. Þá er líklegt að Þorsteinn J. Vil- hjálmsson skipti úr Fram yfir í Fylki og leiki í 3. deild í sumar. Vafasöm vítaspyrna ÍRLAND tapaði sínum fyrsta leik í 7. riðli Evrópukeppni landsliða í gærkvöldi. Búlgaría sigraði 2:1 í Sofia og var sigurmarkið skorað úr umdeildri vítaspyrnu átta mínútum fyrir leikslok. Líkamlegur styrkur heima- manna var meiri og Ano Sadkov skoraði fyrsta markið á 41. mínútu eftir góðan samleik. Frank Staple- ton jafnaði skömmu eftir hlé eftir góða skallasendingu frá Paul McGrath. Englendingar léku ekki eins vel og í 4:2 leiknum gegn Spáni, en vel samt þó Glenn Hoddle væri fjarri góðu gamni og Shilton yrði að fara af velli vegna flensu. Bryan Robson, fyrirliði, skoraði fyrra markið og sitt nítjánda í landsleik á 18. mínútu eftir langt innkast frá Gary Mabbutt. Terry Butcher skall- aði til Robsons og eftirleikurinn var auðveldur. Chris Waddle skoraði seinna mark- ið á 43. mínútu eftir sendingu frá Peter Beardsley, sem átti góðan leik. Essen vann ESSEN vann Hameln 26:19 í Bun- desligunni í gærkvöldi og þarf nú aðeins tvö stig til að verja Þýska- landsmeistaratitilinn í handbolta. Essen hafði mikla yfirburði í leiknum, staðan var 12:5 í hálfleik og léku varamenn liðsins þann seinni. Fraats skoraði sex mörk og Alfreð Gíslason fjögur. Gummersbach sigraði í Kiel 16:15. Kristján Arason skoraði eitt mark. Breiðablik í 3. sæti UBK vann Þrótt 3:0 og hlaut 3. sætið í 1. deild kvenna í blaki en Víkingur og ÍS verða að leika þriðja leikinn um fyrsta sætið. UBKvann 15:8, 18:16 og 15:10. í annarri hrinunni komst Þróttur í 8:1 og 14:7, en þá gaf Sigurlín Sæmundsdóttir upp fyrir Breiða- blik, sem komst yfir 15:14. Þróttur komst í 16:15, en Breiðablik skor- aði þrjú síðustu stigin. Sigurlín og Sigurborg Gunnarsdóttir hjá UBK voru bestar í leiknum. Víkingur vann ÍS 3:0 í óhemju daufum og leiðinlegum leik. Morgunblaöið/RAX • Vikingar réðu ekki við sterka vörn Stjörnunnar í seinni hálfleik. Bjarki Sigurðsson á hér í höggi við Sigurjón Guðmundsson og Gylfa Birgisson. Vikingar máttu þola tap gegn Garðbæingum og eru úr leik í bikarkeppninni. Bikarkeppni HSÍ: Víkingur úr leik- í bikarkeppninni - eftir æsispennandi leik gegn Stjörnunni „ÞETTA hefði átt að vera úrslita- leikur keppninnar. Góður leikur hjá báðum liðum og sannkölluð bikarstemmning í Höllinni. Ég vissi það fyrir leikinn að Víkingar gætu ekki unnið tvöfalt án mín,“ sagði Páll Björgvinsson, þjálfari og leikmaður Stjörnunnar kampa- kátur eftir leikinn. Páll lék þarna gegn sínum gömlu félögum þar sem hann lék í áraraðir en stöðv- aði nú sigrgöngu þeirra í bikar- keppninni í æsispennadi leik sem varð að framlengja. Lokatölurnar urðu 29:26 eftir að staðan hafði verið 24:24 eftir venjulegan leiktíma. Víkingar voru yfir allan fyrri hálf- leikinn og höfðu fjögurra marka forskot í leikhléi, 15:11 og náðu síöan sex marka forystu í byrjun seinni hálfleiks. Garðbæingar gáf- ust ekki upp og jöfnuðu 22:22 þegar 5 mínútur voru til leiksloka. Skoruðu síðan næstu tvö mörk og sigurinn virtist í höfn og aðeins 2 mínutur eftir. Páli Björgvinssyni var vikið af leikvelli þegar ein mínúta var eftir og Víkingar nýttu sér það og náðu að jafna, 24:24. Hilmar skoraði jöfnunarmarkið þegar ein sekúnda var eftir og Víkingur—Stjaman 26 : 29 Laugardalshöll undanúrslit bik- arkeppni HSf, 1. apríl 1986. 1:1, 3:1, 3:2, 5:2, 5:3, 6:5, 10:5, 10:8, 13:9, 15:11, 17:11, 17:14, 19:15, 20:16, 20:19, 22:20, 22:22, 22:24, 24:24, 24:26, 25:27, 26:27 26:29. MÖRK VÍKINGS: Bjarki Sigurðsson 6, Hilmar Sigurgíslason 5, Guðmund- ur Guðmundsson 5/2, Ámi Friðleifs- son 4, Siggeir Magnússon 3, Einar Jóhannesson 2 og Karl Þráinsson 1/1, MÖRK STJÖRNUNNAR: Hannes Leifsson 9/5, Gylfi Birgisson 6, Einar Einarsson 4, Skúli Gunnsteinsson 3, Hafsteinn Bragason 2, Sigurjón Guð- mundsson 2 og Páll Björgvinsson 2. varð því að framlengja í 2X5 mínútur. Gylfi Birgisson skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna gegn engu marki Víkinga í fyrri hálfleik framlenging- arinnar, 24:28. Karli Þráinssyni var þá vikið af leikvelli í þriðja sinn og því útilokaöur. Þetta nýtti Stjarnan sér og lék af yfirvegun seinni hluta framlengingarinnar og vann örugg- lega, 26:29. Leikurinn var skemmtilegur á að horfa og sannkölluð bikar- stemmning þótt hann hafi verið sveiflukendur. Víkingar léku mun betur í fyrri hálfleik og náðu þá stöðva skyttur Stjörnunnar, komu vel út á móti þeim og voru mjög hreifanlegir. Þetta snérist við í seinni hálfleik. Sigmar Þröstur í marki Stjörnunnar varði oft vel ótímabær skot Víkinga í lokin. Leik- menn beggja liöa gerðu sig seka um mistök enda mikið í húfi. Hilmar, Bjarki, Guðmdundur og Árni Friðleifsson voru bestu leik- menn Víkings. Siggeir lék mjög vel i fyrri hálfeik og eins var Einar Jó- hannesson sterkur í vörninni. Kristján Sigmundsson varði vel í fyrri hálfleik en náði sér ekki á strik í þeim seinni. Karl Þráinsson hefur oft leikið betur. Hannes var bestur í liði Stjörn- unnar. Hann lék vel í sókn og vofBS. allan leikinn. Gylfi var drjúgur seinni hlutan og eins varði Sigmar Þröstur vel, alls 17 skot þar af eitt vítakast. Skúli, Einar, Hafsteinn og Sigurjón stóðu einnig vel fyrir sínu. Páll Björgvinsson kom inná á rétt- um augnablíkum og skoraði mikil- væg mörk. Gunnar Kjartansson og Rögn- valdur Erlingsson dæmdu erfiðan leik ágætlega. Vajo Fram í úrslit Sigurmarkið á síðustu stundu FRANCISCO Carrasco var hetja Spánar í Vín í gærkvöldi. Þegar nokkrar sekúndur voru til leiks- loka, fékk hann boltann rétt við miðlínu, einlék að marki Aust- urrikis og skoraði sigurmarkið, 3:2. Spánverjar voru ávallt fyrri til að skora, en Austurríkismenn jöfnuðu tvívegis. Jose Eloy, sem kom inná fyrir Butragueno á 13. mínútu, skoraði tvö fyrstu mörk Spánar, en Manfred Linzmaier og Toni Polster svöruðu fyrir Austurríki. „Ég sætti mig viðjafn- tefli, en úrslitin færa okkur sannarlega nær lokakeppninni,“ sagði Migual Munoz, þjálfari Spánar eftir leikinn. Fram tryggði sór óvænt sæti í bikarúrslitum HSÍ með því að sigra Vai í gærkvöldi 23-20. Sigur Fram var sanngjarn, leikmenn liðsins lögðu sig meira fram en Valsmenn sem margir hverjir gerðu sig seka um aragrúa mis- taka f síðari hálfleiknum. Baráttugleði leikmanna Fram í varnarleiknum kom Valsmönnum úr jafnvægi í byrjun og það tók þá þó nokkurn tíma að átta sig. Eftir góða byrjun Fram náði Valur undir- tökunum og liðiö hafði 12-9 yfir í byrjun síðari hálfleiksins. Þá fór vinstrihandarskyttan Júlíus Gunn- arsson í gang og með góðri hjálp frá félögum sínum náði Fram fimm marka forystu 21-16. Þrátt fyrir góða viðleitni tókst Valsmönnum ekki að vinna upp þann mun. Framliðið var jafnt en enginn lék þó betur en Júlíus er átti stórleik. Liöið hefur nú slegið bæði FH og Val út úr bikarkeppninni og enginn skyldi gera lítiö úr möguleikum liðsins gegn Stjörnunni í úrslita- leiknum 12. þessa mánaðar. Valsliðið virtist ekki þola mót- spyrnuna í síðari hálfleiknum eftir ágætan leik í þeim fyrri. Jakob Sig- urðsson var eini leikmaður liðsins sem barðist allan leiktímann. Stefán Arnarson og Ólafur Har- aldsson dæmdu leikinn ágætlega. FE Valur—Fram 20 : 23 Laugardalshöll 1. april. Undan- úrslit í bikarkeppni karla í hand- knattleik. 4:4, 5:8, 11:9, 12:9, 12:15, 15:15, 15:19, 16:22, 20:22, 20:23. Mörk VALS: Stefán Halldórsson 5/3, Jakob Sigurðsson 4, Júlíus Jónasson 4, Geir Sveinsson 3, Valdimar Grímsson 3, Þorbjöm Guðmundsson^ 1. v. Mörk FRAM: Júlfus Gunnarsson 8, Agnar Sigurðsson 6/4, Birgir Sig- urðsson 3, Hermann Bjömsson 2, Per Skaarup 2, Ragnar Hilmarsson 1, Bjöm Eiríksson 1.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.