Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 70
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
,,Y\ér segir -frzx, stðlKu sem hefoi-
erf-t 4o milljónirl aetrtir o2>
hrín^ja- í- hcunaj
Með
morgunkaffínu
Ja, nú vantar bara komp
ásinn.
HÖGNIHREKKVÍSI
//HAMKJ ERGCfoUR VEIPIKÖTTUR,
PAV HAMN EIGA.'"
Áhrif listagyðjunn
ar eru alltaf sígild
Gunnar Sverrisson er mjög án-
ægður með þætti Péturs Péturs-
sonar í Ríkisútvarpinu á
laugardagsmorgnum.
Kannski var það draumur...draum-
stef eða raunveruleg minning óljóss
fyrirheits alls þess, sem á sér þann
samnefnara að vera forgengilegt í
minninguni. Forgengilegt í fegurð
sinni, sem þó er sígild, í meðförum
ólíkra tækifæra.
Eg man það ekki. En hverju sem
því líður er ég þess fullviss, að minn-
ing fagurra hljóma, eða talaðs máls
fyrr og síðar, göfgar, bætir og
græðir hugi og hjörtu þeirra, sem
eru á annað borð móttækilegir fyr-
ir því, að vilja verða betri þegnar
en áður. Því áhrif listagyðjunnar
eru alltaf sígild, þeim sem á annað
borð opna sig fyrir því fagra í tilve-
runni. Raunveruleg minning sem
fijóvgar og glæðir. Hugur einn það
veit, eins og einhversstaðar stendur.
Mér kom þetta í hug, er ég hlust-
aði á laugardagsmorgni, í eitt skipti
af mörgum, á þátt Péturs Péturs-
sonar - Góðan dag, góðir hlustend-
ur.
Lögin eru í heild sinni smekklega
valin og enda þótt þau séu, eins og
eðlilegt má teljast, ólík innbyrðis,
finnst mér að Pétri takist að glæða
heildina þeim þokka er þessum
aldna og reynda þul er einum lagið.
Eg þykist vita að ég tali þar fyrir
munn fleiri þeirra sem kunna að
unna góðum stundum í listlægu
tali og hrynjanda fagurra tónverka,
er gera kannski þurfandi samferða-
mann betri og hamingjusamari en
áður. Létta honum gönguna, méð
yfirfærðu listlægu hugarþeli sínu,
svo þeim sama megi vel farnast í
ókomnum tímum.
Haf þú þökk fyrir Pétur,
Gunnar Sverrisson
Hótel Borgaraf lokkurinn!
Tilefni þessara skrifa er að enn
einn grasrótar-þverpólitíski hópur-
inn hefur ákveðið að bjóða fram til
Alþingis, en þar á ég við gömlu
karlana sem drekka saman kaffi á
Borginni á morgnana. Hópurinn er
núna kominn á það stig að þeir eru
búnir að leysa öll sín vandamál og
allra vina og vandamanna. Mætti í
því sambandi telja upp nokkur
meiriháttar fjármálahneykslismál
sem upp hafa komið á síðustu árum
en ég hirði ekki um að telja þau
upp, því fólk er orðið svo þreytt á
að tala um þau. Sem sagt, líklega
eru þeir aðeins farnir að kalka
karlarnir enda ætla þeir að fara að
leyfa þjóðinni að njóta þeirra stóru
orða sem þeir eru búnir að hripa á
servíetturnar sínar á síðustu árum.
Sem afsökun hafa þeir að lýðræðis-
kjörnir forystumenn Sjálfstæðis-
flokksins (flokkseigendafélagið)
vilji ekki leyfa þeim hvað sem er í
trúnaðarstörfum, sem þeir hafa
komist í. Sendisveinadeildin hjá
þeim heitir Hulduherinn og kvað
vera algerlega ómótstæðileg vígvél
að eigin sögn. Þó vantar einhver
fylgiskjöl í spjaldskrá hersins því
ekki fundust 50 meðmælendur í
öllu Vestijarða-kjördæmi, (6.800
kjósendur 1983) og varð því ekki
úr framboði þar. Að sumu leyti
mætti líkja aðferðum hersins við
aðferðir sr. Moon í samnefndum
söfnuði í Bandaríkjunum þar sem
fámenn klíka lifir í vellystingum á
kostnað auðtrúa almennings með
loforðum um betri framtíð. Með til-
liti til fámennis kjósenda Borgara-
flokksins í hverju byggðarlagi má
því búast við að fjöldi atkvæða nýt-
ist ekki og má því alveg eins búast
við að samanlögðum þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins og Borgara-
flokks fækki í stað þess að Sjálf-
stæðisflokkur einn hefði bætt við
sig þingmönnum. Líkja má þessum
flokkum þannig saman að annars
vegar eru Albert og kaffibrúsakarl-
amir sem eru búnir að rækta upp
allgóðan lund í kringum sig og sína
og hins vegar Sjálfstæðisflokkurinn
sem vinnur skipulega að upp-
græðslu landsins alls með samtaka-
mætti sínum og áhrifum. Mætti í
því sambandi minnast orða Rolfs
Johansen stórkaupmanns í útvarpi
fyrir nokkrum árum þar sem hann
sagði: Að betra væri að eiga lítið í
stóru en stórt í engu. Ef kjósendur
em fylgjandi smáflokkakerfi mætti
benda fleirum í þverpólitískum hóp-
um að bjóða fram strax í næstu
kosningum og mætti þar nefna
fastagesti í heita pottinum í Laug-
ardalslauginni, örvhenta vörubíl-
stjóra, húsmæður með gleraugu,
eðlisfræðikennara í gmnnskólum á
Suðurlandi o.s.frv.
Langlífur getur Borgaraflokkur-
inn tæplega orðið, því einn maður
sem á vafasömum forsendum segir
sig úr flokknum getur aldrei haldið
úti sjálfstæðu útibúi frá stærsta
stjórnmálaflokki landsins.
Að lokum vil ég hvetja kjósendur
og sérstaklega ungu kjósenduma
að fylkja sér um Sjálfstæðisflokkinn
í næstu kosningum því stór og
sterkur frjálslyndur lýðræðisflokk-
ur er eina aflið í íslenskum stjóm-
málum sem getur skapað einka-
framtakinu þann farveg sem þarf.
Með hrærigrautarríkisstjórn smá-
flokka fæst ekkert nema endalausar
málamiðlanir. Tryggjum Sjálfstæð-
isflokknum hreinan meirihluta í
komandi kosningum, X-D.
Hjörtur Aðalsteinsson
Yíkverji skrifar
Bílasala á síðasta ári var með
ólíkindum mikil og engin
breyting hefur orðið á þessu ári
hvað varðar nýjar bifreiðar.
Tollalækkunin örvaði mjög söl-
una og einnig hafa margir haft
talsvert af peningum úr að spila.
Eldri bílar hafa sömuleiðis selzt
vel fram undir þetta. Bílasali
sagði í samtali við Víkveija í
vikunni að nú væri sala á notuð-
um bifreiðum hins vegar orðin
miklu tregari. Astæðan væri
einfaldlega sú að markaðurinn
væri mettaður og að því hefði
hlotið að koma. Þessi maður
sagðist þó gera sér vonir um
sölukipp í kringum páska og svo
aftur þegar nær drægi sumri.
Einstaklingar hafa gert tal-
svert af því að flytja sjálfir inn
notaða bíla frá meginlandi Evr-
ópu og einnig frá Bandaríkjun-
um eftir að dollarinn lækkaði í
verði. Bæði hafa menn flutt inn
bíla til einkanota og til að selja
öðrum. Hefur þetta komið vel
út fyrir fólk, en nú, þegar treg-
ara er orðið með sölu á gömlum
bílum, er spurning hvort slíkt
sé lengur ábatasamt.
XXX
að er ekki ný bóla að
íþróttafélög beijist í bökk-
um og hafi allar klær úti til að
endar nái saman. Þekktar að-
ferðir til að ijármagna starfsem-
ina eru áheit ýmiss konar,
auglýsingablöð og -skilti, get-
raunir, bingó, dansleikjahald og
nú síðast lottóið. Ýmsir hafa
selt rækju eða harðfisk, aðrir
farið í að landa úr togurum eða
hreinsa timbur. Það nýjasta sem
Víkveiji heyrði um í þessum efn-
um var innflutningur íþrótta-
deilda á notuðum bifreiðum
erlendis frá. Sjálfsagt ekki verra
en hvað annað.
XXX
Að láta náungann hlaupa
apríl er gamall leikur og
þekktur víða um lönd. Margir
hafa gaman af narrinu og hug-
vitssemi er að baki mörgum
uppátækjunum. Stundum vill
gamanið verða heldur grátt og
oft er fólk alls ekki látið hlaupa
apríl, heldur er eingöngu verið
að ljúga að því. Slíkt er miður
og nær að sleppa.
í bók Arna Björnssonar um
sögu daganna kemur fram að
ekki er vitað með neinni vissu
um upphaf þessarar venju.
Líklegast er þó talið að hún sé
runnin frá þeim tíma þegar ný-
ársdagurinn í Róm var enn 25.
marz og var lokadagur mikillar
hátíðar, 1. apríl, notaður til
margvíslegra ærsla.
Samkvæmt bók Árna fara
ekki beint sögur af þessum leik , a
hér á landi fyrr en nálægt
síðustu aldamótum. Hins vegar
kemur nokkuð snemma í Ijós að
íslendingar kannast við siðinn
og þannig er talað um aprílbréf
árið 1698 og Jón á Bægisá orti
gamankvæði 1773, að því talið
er, þar sem hann talar beinlínis
um að hlaupa apríl.