Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
Landsmót íslenskra barnakóra:
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Pétur Hafþór Jónsson, form-
aður Tónmcnntakennarafé-
lags íslands.
Það verður líka að klappa.
Sönggleðin var í fyrirrúmi á mótinu.
Sönggleði og öguð fram
koma flytjenda í fyrirrúmi
Selfossi.
UM 800 böm og unglingar komu
saman á Heimalandi undir Eyja-
fjöllum síðastliðinn sunnudag og
tóku þátt i Landsmóti íslenskra
barnakóra sem Tónmenntakenn-
arafélag íslands gengst fyrir
annað hvert ár. Mótið á Heima-
landi er hið sjötta í röðinni og
var nú í fyrsta skipti haldið i
dreifbýli og þótti takast vel þrátt
fyrir að þröng væri á þingi.
Á fyrsta bamakóramótinu vom
þátttakendur 360 en vom núna
hátt í 800, þó mættu ekki allir.
Vegna hins mikla fjölda þátttak-
enda er mótið orðið erfitt í skipu-
lagningu. Pétur Hafþór Jónsson
formaður Tónmenntakennarafélag-
isns sagði mótið sanna ótvírætt að
kórstarf ætti tvímælalaust rétt á
sér í skólastarfi og að því væri
meiri gaumur gefinn.
Þátttakendahópnum var skipt
niður á félagsheimili og skóla í
nágrenni Heimalands og var gist á
Hvolsvelli, í Gunnarshólma og á
Heimalandi. Kennarar, skólastjóri
og nemendur Tónlistarskóla Rang-
æinga bám hitann og þungann af
skipulagningunni og undirbúningi
mótsins. Á laugardagskvöldið var
haldin kvöldvaka í Njálsbúð, félags-
heimili V-Landeyinga og var hún
rómuð af krökkunum, ekki síst
diskótekið sem fylgdi. Annars not-
uðu kóramir dagana til æfinga og
söngs. Á hveijum gististað var efnt
til samsöngs kóranna sem þar gistu
og sögðust krakkamir hafa kynnst
innbyrðis og allir sem rætt var við
höfðu sömu sögu að segja af mót-
inu, það hefði verið mjög skemmti-
legt. Auk þess að syngja var litast
um í nágrenninu, safnið á Skógum
GAGGENAU
VERÐLÆKKUN
Þrátt fyrirverulega gengishækkun þýska marks-
ins gera hagstæð innkaup okkur kleift að bjóða
stórkostlega verðlækkun á takmörkuðu magni
af GAGGENAU heimilistækjum.
Núerekkertvitíþví
að kaupa ekki það besta.
GAGGEMAU
Vestur-þýsk hönnun og tækni í
heimsklassa.
I Nýjabæ-Eiðistorgi Sími 622-200
N«J ER MAGKVÆMT
ER ISKOLD STAÐREYND