Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
3
Morgunblaðið/V aldim.G.
Vörubíllinn sem valt af einum varnargarðinum í Þjórsá.
Óhapp við lagn-
ingu varnar-
Igarða í Þjórsá
Gaulverjabæ.
UNNIÐ er þessa dagana að lagn-
ingu varnargarða i Þjórsá milli
bæjanna Mjósyndis og Feijuness
í Villingaholtshreppi. Það óhapp
varð við verkið, að vörubíl hvolfdi
út í ána. Engin slys urðu.
Festing pallsins við vörubílinn mun
hafa gefíð sig öðru megin er verið
ivar að sturta. Kom þá slagsíða og
valt bíllinn um leið.
Með tilkomu virkjananna hefur
vetrarrennslið aukist og er landbrot
Þjórsár mikið á þessu svæði. Kristján
Ásmundsson í Ferjunesi sagði þó ís
jog jakaburð í ánni heldur minni síðan
j Sultartangastíflan kom.
Verkið er unnið á þann hátt að
stuttir garðar eru lagðir þvert út í
ána. Koma þeir á 100 metra bili og
er áætlað að beina straumnum frá
bakkanum. Einnig á að minnka jaka-
iskrið með bökkunum.
Efnið er tekið í landi Sýrlækjar
þama rétt hjá. Vélar við verkið eru
frá Suðurverki á Hvolsvelli og vöm-
bílar úr nágrenninu. Þess má geta
að bærinn í Feijunesi var síðast færð-
Áin étur mjög undan sandbökk-
unum.
ur á 19. öld undan ágangi árinnar.
Einnig mun býlið Mjósyndi hafa ve-
rið fært nokkrum sinnum gegnum
aldimar. _ Valdim. G.
Fiskmarkaðarnir í Þýzkalandi:
65 krónur fyrir
kíló af blálöngu
TÖLUVERT hefur verið um sölu
á gámafiski erlendis undanfarna
daga. Verð hefur verið þokkalegt
fyrir flestar tegundir og komizt
injög hátt fyrir kola, ufsa og blá-
löngu.
A mánudag voru seldar héðan 180
lestir úr gámum í Bretlandi. Heildar-
verð var 12,4 milljónir króna,
meðalverð 68,80. Fyrir þorsk fengust
að meðaltali 64,06 krónur á kíló, ýsu
72,46 og kola 82,80. Á þriðjudag
voru á sama stað seldar 364 lestir
að verðmæti 24 milljónir króna, með-
alverð 65,44. Fyrir þorsk fengust að
meðaltali 62,66 krónur, 71.54 fyrir
ýsu og 66,86 fyrir kola. Töluvert af
físki var selt með þessum hætti á
miðvikudag. Endanlegar tölur lágu
ekki fyrir þann dag hjá LÍÚ, en verð
var svipað og á þriðjudag.
Á miðvikudag var seldur fiskur
úr 18 gámum í Þýzkalandi. LÍÚ
höfðu síðdegis borizt upplýsingar um
verð úr 8 þeirra, samtals 124,5 lest-
um. Heildarverð var 7 milljónir
króna, meðalverð 56,16. Fyrir karfa
fengust að meðaltali 52,96 krónur,
54,89 fyrir ufsa og 64,84 fyrir blá-
löngu.
Skemmdarverkin á eigum Hvals hf
Bandaríkjamönnum
og Bretum send gögn
' LOK ASKÝRSL A, sem rannsókn-
arlögregla ríkisins hefur unnið
um skemmdarverkin á eigum
Hvals hf., er nú komin til dóms-
málaráðuneytisins og verður send
til Bandarílý'anna og Bretlands á
næstunni.
í skýrslu rannsóknarlögreglunnar
er atburðarás hér á landi rakin ítar-
; lega. Að sögn Hjalta Zóphóníasson-
ar, deildarstjóra í dómsmálaráðu-
neytinu, er búið að vélrita upp og
fjölfalda viðtöl sem tekin voru við
Paul Watson og Rodney Coronado í
Bandaríkjunum. Watson er forsvars-
maður Sea Shepherd-samtakanna,
sem stóðu að baki skemmdarverkun-
um, en hann er búsettur í Kanada.
Bandaríkjamenn höfðu óskað eftir
frekari uppýsingum um málið, þar
sem Rodney Corodano er búsettur
þar, en frá Bretum hefur ekkert
heyrst. Félagi Coronado, sem kom
með honum hingað til lands, David
Howitt, er Breti. íslensk yfirvöld eru
nú að velta fyrir sér leiðum til að
koma lögum yfír mennina.
og hljótt“:
Egill, Sverrir og Diddú syngja
bakraddir og leika á hljóðfæri
Hjálmar H. Ragnarsson verður hljómsveitarstjóri
EUROVISION-lag Valgeirs Guðjónssonar „Hægt og hljótt“
hefur breytt töluvert um svip frá því sem áður var. Reglur
keppninnar kveða á um að sex listamenn megi koma fram I
hveiju lagi og mun Valgeir nýta sér þann möguleika. Hann
hefur bætt inn þremur hljómlistarmönnum, sem jafnframt
munu syngja bakraddir í laginu, sem flutt verður í Brussel
þann 9. maí nk.
Ásamt þeim Höllu Margréti rafmagnsbassa og syngja bak-
Ámadóttur söngkonu og Valgeiri, rödd. Sverrir Guðjónsson mun
sem leikur á flygil og syngur bak- leika á trommur og syngja bak-
rödd, mun Egill Ólafsson leika á ' rödd og Sigrún Hjálmtýsdóttur
mun leika á hljómborð og einnig
syngja bakrödd. Hjálmar H. Ragn-
arsson verður hljómsveitarstjóri
strengjasveitarinnar og Kolbrún
Halldórsdóttir mun kynna keppn-
ina fyrir Islendingum í beinni
útsendingu.
Bannað er að leika keppnislag
hvers lands í útvarpi frá því að
ljóst er hvaða lag mun keppa fýr-
ir hönd hvers lands og þar til
aðalkeppnin hefur farið fram.
Laugavegi 66, sími: 45800.